Morgunblaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Kletthálsi Rvk Akureyri Reykjanesbæ Húsavík Vestmannaeyjum KALT ÚTI Rafmagnshitablásari 2Kw 1 fasa 6.590 Rafmagnshitablásari 5Kw 3 fasa 11.990 Panelofnar í MIKLU ÚRVALI! FRÁBÆRT VERÐ! Rafmagnshitablásari 2Kw 1.995 Gas hitablásari 15Kw 17.900 KRANAR OG HITASTILLAR FRÁ Olíu hitablásari 28Kw 79.900 Nokkrar stærðir á lager Það hriktir í stoðum atvinnulífsins og launa- fólk stendur frammi fyrir þeim nöturlega veruleika að langtíma- atvinnuleysi kunni að taka sér bólfestu á Ís- landi. Á síðasta ári var atvinnuleysi 8% og fátt bendir til þess að stað- an verði mikið betri á þessu ári. Við þekkjum ekki það böl og þá erfiðleika sem at- vinnuleysi sem varir kynslóð eftir kynslóð hefur í för með sér fyrir ein- staklinga og fjölskyldur. Það ber í sjálfu sér að þakka. En blikur eru á lofti og þetta kann að breytast verði ekki tekið í taumana hið fyrsta. Frá miðri síðustu öld fram að hruni árið 2008 var alla jafna næga vinnu að fá á Íslandi. Vissulega komu erfið tímabil þegar þúsundir launamanna sáu á eftir störfum sínum. Atvinnu- leysi var mikið í byrjun sjötta áratug- arins og aflabrestur í lok þess sjö- unda kostaði einnig marga vinnuna. Og flestum er eflaust í fersku minni mikið atvinnuleysi um miðjan tíunda áratuginn í kjölfar efnahagslægðar sem reið yfir heimsbyggðina. Við hjá VR höfum áður séð mikið atvinnu- leysi í okkar röðum – í janúar árið 1994 var atvinnuleysi 8,1% og þeir voru fáir félagsmennirnir sem höfðu upplifað slíkt áður. En tölurnar eru því miður hærri núna. Á síðasta ári voru að jafn- aði 2.700 VR félagar á atvinnuleysisskrá í hverjum mánuði eða 9% félagsmanna – atvinnu- leysið fór yfir 10% á vormánuðum 2010. Og þrátt fyrir að dregið hafi úr atvinnuleysi á þessu ári óttumst við að það sé skammgóður vermir og að frekar taki að fjölga en fækka í hópi atvinnu- lausra félagsmanna VR í upphafi næsta árs. VR krefst aðgerða VR sættir sig ekki lengur við óbreytt ástand og félagsmenn kalla eftir atvinnuskapandi aðgerðum. „Stjórn VR krefst þess að stjórnvöld og atvinnurekendur taki höndum saman, auki fjárfestingu og uppbygg- ingu atvinnulífs í landinu,“ segir í ályktun sem stjórn félagsins sam- þykkti á fundi sínum hinn 7. desem- ber. „Um þessar mundir eru um 2.400 félagsmenn VR atvinnulausir og sá hópur stækkar stöðugt sem hefur verið án atvinnu í meira en eitt ár. Ís- lenskt samfélag getur ekki sætt sig við að vinnufúsar hendur finni ekki kröftum sínum viðnám. Verði ekki brugðist við með fumlausum hætti mun það taka íslenskt samfélag mörg ár að vinna úr þeim vandamálum sem langvarandi atvinnuleysi leiðir af sér.“ Stjórnvöld hafa því miður rofið þá samstöðu sem náðist við gerð síðustu kjarasamninga og hafa gleymt lof- orðum þeim sem tíunduð voru í yf- irlýsingu hennar frá 5. maí 2011. All- tént höfum við lítið orðið vör við efndirnar. Skapa þarf ný störf í stað þeirra þúsunda sem hafa tapast frá hruni. Til þess þurfa allir að leggja sitt af mörkum. Við getum ekki beðið lengur. VR hefur hrint af stað herferð til að minna stjórnvöld og atvinnurek- endur á það hvað er í húfi. Rúmlega tvö þúsund og fjögur hundruð end- urskinsborðar hanga á áberandi stað við Kringlumýrarbraut í Reykjavík – einn fyrir hvern atvinnulausan fé- lagsmann VR. Okkar markmið er að fækka þessum borðum. Þar til það gerist er hugur okkar hjá þeim sem finna sig afskipta og svikna af þeim sem síst skyldi. Skapið jarðveg fyrir fleiri störf Eftir Stefán Einar Stefánsson » Við þekkjum ekki það böl og þá erf- iðleika sem atvinnuleysi sem varir kynslóð eftir kynslóð hefur í för með sér fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Stefán Einar Stefánsson Höfundur er formaður VR og LÍV. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Gullsmárinn Spilað var á 14 borðum í Gullsmára fimmtudaginn 8.desember. Úrslit í N/S: Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 344 Pétur Antonsson – Örn Einarsson 338 Jón Bjarnar – Katarínus Jónsson 298 Sigurður Gunnlss. – Gunnar Sigurbjss. 283 A/V Haukur Guðbjartss. – Jón Jóhannsson 355 Þorsteinn Laufdal – Páll Ólason 349 Sæmundur Árnas. – Jón Ingi Ragnarss. 281 Magnús Hjartarson – Narfi Hjartars. 277 Fjögurra kvölda Butler lokið á Suðurnesjum Pétur Júlíusson, Jóhannes Sig- urðsson og Svavar Jenssen sigruðu í fjögurra kvölda Butler tvímenningi sem lauk sl. miðvikudagskvöld. Röð efstu para varð annars þessi: Pétur - Jóhannes - Svavar 155 Garðar Garðarss. - Svala K. Pálsd. 137 Guðjón Einarsson - Ingvar Guðjónss. 82 Arnór Ragnarsson - Gunnlaugur Sævarsson - Birkir Jónsson 79 Sigurj. Ingibjörnss. - Gunnar Guðbjörnss. 78 Feðgarnir Guðjón Einarsson og Ingvar Guðjónsson skoruðu langmest eða 68 síðasta kvöldið. Svavar og Pét- ur skoruðu 52 og bræðurnir Kristján og Ólafur Karvel Pálssynir þriðju með 28. Spilaður verður jólatvímenn- ingur næstu 2 miðvikudaga. Spilað er í félagsheimilinu kl. 19. Ármann og Guðlaugur unnu Guðmundarmótið í Gullsmára Spilað var á 11 borðum í Gullsmára mánudaginn 5. desember. Úrslit í N/S: Díana Kristjánsd. - Ari Þórðarson 195 Pétur Antonsson - Örn Einarsson 188 Katarínus Jónsson - Jón Bjarnar 182 Steindór Árnason - Einar Markússon 176 A/V Jón Jóhannsson - Haukur Guðbjartss. 207 Ármann J.Láruss. - Guðl.Nielsen 203 Ásgr.Aðalsteinss. - Gunnar M. Hanss 198 Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 195 Þetta var lokadagurinn í Guðmund- armótinu sem spilað var í 5 skipti í röð. Ármann og Guðlaugur urðu öruggir sigurvegarar. Röð efstu para varð annars þessi: Ármann J. Láruss. - Guðl. Nielsen 1325 Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 1280 Gunnar Sigurbjss. - Sigurður Gunnlss. 1237 Pétur Antonsson - Örn Einarsson 1142 Guðm. Magnúss. - Leifur Jóhanness. 1132 Jón Jóhannss. - Haukur Guðbjartss. 1123 Eldri borgarar Hafnarfirði Þriðjudaginn 6. desember var spil- að á 17 borðum hjá FEBH, með eft- irfarandi úrslitum í N/S: Júlíus Guðms. – Óskar Karlsson 406 Örn Einarsson – Pétur Antonsson 371 Bjarnar Ingimars – Bragi Björnsson 370 Ólafur Ingvarss. – Sigurberg Elentínuss. 334 Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 331 A/V. Óli Gíslason – Steinmóður Einarsson433 Oddur Jónsson – Óskar Ólafsson 381 Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 380 Nanna Eiríksd. – Bergljót Gunnarsd. 373 Birgir Sigurðss. – Jón Svan Sigurðsson 335 Föstudaginn 2. desember var spil- að á 17 borðum hjá FEBH með eftirfarandi úrslitum í N/S: Jón Lárusson – Bjarni Þórarinsson 400 Örn Ingólfsson – Örn Ísebarn 389 Skafti Þóriss. – Dagur Ingimundars. 362 Örn Einarsson – Pétur Antonsson 355 Knútur Björnss. – Sæmundur Björnss. 343 A/V. Ólafur Gíslason – Guðm. Sigurjónss. 394 Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss. 391 Tómas Sigurjónss. – Björn Svavarss. 354 Stígur Herlufsen – Sigurður Herlufsen 338 Kristján Þorlákss. – Haukur Guðmss. 335 Flúðabrids Nú er nýlokið tveggja kvölda tví- menningi og sem fyrr eru það gömlu „refirnir“ sem sigra. Efstu sæti skipuðu: Karl Gunnlaugss.- JóhannesSigmundsson.- Stefán Arngrímsson 394 Viðar Gunngeirss. - Haukur Viðarsson 371 Knútur Jóhannesson - Ari Einarsson 370 Margrét Runólfsd. - Bjarni Ansnes - Björn Snorrason 366 Stefán Sævaldsson - Vilhj. Vilhjálmss. 364 Þóra Þórarinsd. - Páll Árnason 331 Síðasta spilakvöld fyrir jól er keppni um topp 16 nk. þriðjudag kl. 19.30 og er það síðasta spilakvöld fyr- ir jól.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.