Morgunblaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011 Sprengur.is Er þér alltaf mál? Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Ósamið í makríldeilunni  Ekkert samkomulag náðist um skiptingu aflaheimilda  Hlutdeild Íslands í veiðunum verður að óbreyttu um 16%  Óska eftir fundi í atvinnuveganefnd Ekki náðist samkomulag um skiptingu aflaheim- ilda í makrílveiðum á Norðaustur-Atlantshafi á næsta ári á fundi strandríkjanna fjögurra, Íslands, Noregs, Færeyja og ESB, sem lauk í Clonakilty á Írlandi í gær. Hlutdeild Íslands í veiðunum verður því óbreytt, eða um 16%, segir í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Á fundinum lögðu Noregur og ESB fram tillögu um skiptingu aflaheimilda sem var að mati ís- lenskra stjórnvalda óraunhæf og fól í sér skref aft- ur á bak frá undanförnum fundum. Ísland lagði þá til bráðabirgðalausn sem fólst í því að ráðgjöf Al- þjóðahafrannsóknaráðsins um 639.000 tonna heildarafla árið 2012 yrði virt en ríkin héldu nú- verandi hlutdeild sinni í veiðunum. Þessu var hafnað. „Það er það langt á milli aðila að það eru engar forsendur fyrir samningi og ef það breytist ekki þá í sjálfu sér setjum við bara okkar kvóta sjálf og veiðum hann. En auðvitað hefðum við viljað sjá samning,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ. Noregur og ESB úthlutuðu sér rúmlega 90% af ráðlögðum kvóta fyrir árið 2011 en íslensk stjórn- völd hafa lagt ríka áherslu á að strandríkin nái samkomulagi um kvótann til þess að tryggja sjálf- bærar veiðar. Friðrik segir þó allt útlit fyrir að veitt verði langt umfram ráðgjöf á næsta ári. „Maður hefur í sjálfu sér ekki stórar áhyggjur af stofninum núna, þrátt fyrir að veitt verði um- fram af honum á næsta ári. En þetta er auðvitað ekkert verklag,“ segir hann um samkomulagsleys- ið. Einar K. Guðfinnsson og Jón Gunnarsson, fulltrúar Sjálfstæðisflokks í atvinnuveganefnd Al- þingis, og Sigurður Ingi Jóhannsson, fulltrúi Framsóknarflokks, hafa óskað eftir fundi í nefnd- inni vegna málsins. Hafa þeir farið fram á að við- staddir verði Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og fulltrúar ráðuneytisins og viðræðunefndar Íslands í deilunni. holmfridur@mbl.is Hörður H. Bjarnason, einn af erfingj- um Harðar Bjarnasonar, arkitekts Skálholtskirkju, segir óljóst hvað taki við nú þegar úrskurðarnefnd skipu- lags- og byggingarmála hafi vísað frá kæru vegna þeirrar ákvörðunar bygg- ingarnefndar Bláskógabyggðar að leyfa byggingu Þorláksbúðar í Skál- holti. „Þetta eru ekki bara hagsmunir okkar. Hagsmunir almennings eru sýnilega líka í veði,“ segir Hörður. Fleiri en erfingjar Harðar Bjarnason- ar gætu látið málið til sín taka. Leyfi til byggingar Þorláksbúðar var gefið 23. apríl 2010. Í úrskurði nefndarinnar segir m.a. að í ljósi þess að talsverðar vegg- hleðslur höfðu verið gerðar um sum- arið 2010 og að opinber umfjöllun hafi verið um málið þá um haustið verði að telja að kærendum hafi þegar á árinu 2010 verið kunnugt um að leyfi til framkvæmda hafi verið veitt. Kæru- frestur vegna ákvörðunarinnar hafi verið einn mánuður og hann hafi verið liðinn þegar kæran barst úrskurðar- nefndinni, sem var 15. nóvember á þessu ári. Fyrst kunnugt um málið í haust Hörður segir að sér hafi ekki verið kunnugt um málið fyrr en nú í haust, eftir að umræða hófst um það í fjöl- miðlum. Það ætti við um fleiri, m.a. húsafriðunarnefnd. Eftir því sem leit í gagnasafni Fjöl- miðlavaktarinnar leiddi í ljós var fyrst fjallað um Þorláksbúð í kvöldfréttum Stöðvar 2 hinn 12. júlí 2010. Þá voru framkvæmdir vel á veg komnar og á myndum mátti sjá að vegghleðslur voru orðnar um einn metri á hæð. Næst var fjallað um málið í Frétta- blaðinu 13. september 2010. Aðrir fjöl- miðlar fjölluðu ekki um málið og ekki var aftur fjallað um Þorláksbúð í fjöl- miðlum fyrr en eftir að Þorkell Helga- son skrifaði grein í Morgunblaðið 25. ágúst sl. Ákvarðanir Bláskógabyggð- ar um að veita leyfi fyrir byggingunni voru hvergi auglýstar enda engin lagaskylda til þess, að sögn Valtýs Val- týssonar sveitarstjóra. runarp@mbl.is Óljóst hvað tekur við  Tvær fréttir af Þorláksbúð 2010 þegar framkvæmdir voru hafnar  „Hagsmunir almennings eru sýnilega líka í veði“ Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins og fengi um 50% fylgi ef gengið yrði til kosninga í dag, skv. könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Greint var frá þessu í fréttum Stöðvar 2 í gær- kvöldi. Þá segir að um 17% myndu kjósa Samfylkinguna og svipaður fjöldi segist myndu kjósa Framsóknarflokkinn. Þá myndu rúm 13% kjósa Vinstri græn og tæp 3% Hreyfinguna. 16% sögðust ætla að skila auðu og 22% sögðust vera óákveðin. Fram kom að niðurstöðum könnunarinnar þyrfti að taka með ákveðnum fyrirvara vegna þess hversu fáir hefðu tekið afstöðu í henni, eða aðeins tæp 44%. Hringt var í átta hundruð manns, sem valdir voru af handa- hófi úr þjóðskrá, dagana 7. og 8. desember. Sjálfstæð- isflokkur með tæp 50%  Meirihluti svarenda tekur ekki afstöðu Vélhjólasamtökin Hell’s Angels á Ís- landi, eða Vítis- englar, hafa stefnt Ögmundi Jón- assyni innanrík- isráðherra fyrir meiðyrði en auk ráðherrans hafa samtökin stefnt Haraldi Johann- essen ríkislög- reglustjóra og íslenska ríkinu. Þetta staðfesti Einar Marteinsson, forseti samtakanna, í samtali við mbl.is en stefnan er lögð fram í nafni bæði sam- takanna og Einars. Ögmundur greindi frá því á heima- síðu sinni í gær að Vítisenglar færu fram á fjórar milljónir króna í skaða- bætur vegna ummæla sem þeir teldu vera „ósönn og óþarflega meiðandi“. Ögmundur sagðist í samtali við Rík- isútvarpið í gær standa við þau orð sín að Hell’s Angels væru skipulagðir glæpahópar og hann væri tilbúinn til að verja ummæli sín hvar sem er. Vítisenglar stefna ráðherra Ögmundur Jónasson  Fara fram á fjórar milljónir í skaðabætur „Þetta er alveg að klárast,“ sagði Árni Johnsen, formaður Þorláksbúð- arfélagsins og framkvæmdastjóri, í gær þar sem hann var staddur í Skál- holti. Þá var verið að einangra þakið og setja vindskeið á gafla Þorláks- búðar. Síðan verður sett bárujárn yfir einangrunina og það tjargað áður en þakið verður tyrft. Árni vonaðist til að hægt yrði að ljúka við þakið á mánu- dag eða þriðjudag. Innanhúss verða settir langbekkir yfir gömlu hleðslurnar úr Þorláksbúð og timburgólf. Þá verður framkvæmdum lokið að mestu, að sögn Árna. Í gær voru átta menn að vinna við húsið í 14 stiga frosti og héldu sínu striki þrátt fyrir kuldann. Stefnt er að því að ljúka smíðinni í vor og afhenda hús- ið Skálholtsstað og þjóðkirkjunni í júlí næsta sumar. „Ég er ákaflega þakklátur fyrir þann mikla stuðning sem við höfum fengið frá almenningi víða um land. Við höfum ekki bara þurft að kljást við úrtölumenn heldur líka náttúruöflin. Hér hefur verið unnið í brunagaddi og roki, en nú sér fyrir endann á því. Við erum bjartir og glaðir, lífsglaðir menn og horfum í suðurátt – enda Sunnlendingar,“ sagði Árni. Smíði Þorláksbúðar í Skálholti er langt komin Morgunblaðið/RAX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.