Morgunblaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011 Í nýútkominni bók Sigurðar Más Jóns- sonar um Icesave- málið er það í raun staðfest, sem margsagt hafði verið í pistlum á vef Þjóðarheiðurs í haust, að þrátt fyrir að eignasafn Landsbank- ans gamla nægi til að borga allar Icesave- höfuðstólskröfurnar (upp að í mesta lagi 20.887 á hverja), þá hefðum við Íslendingar samt þurft, skv. Icesave I, að greiða Bret- um og Hollendingum gríðarlegar, óafturkræfar vaxta-fjárhæðir, sem hefðu leikið samfélag okkar grátt – kollsteypt ríkissjóði eða valdið hér ómældum hörmungum. Samkvæmt útreikningum Sigurðar Más næmi gjaldfallin upphæð óaft- urkræfra Icesave-vaxta vegna Svav- arssamnings, til 1. okt. sl., 110 millj- örðum króna! Hvar ætlaði fjármálaráðherrann og viðhlæjendur hans að taka þessa peninga? Þetta er margfalt á við allt það sem þó hefur verið skorið niður í ríkiskerfinu frá bankakreppunni. Hvar væri þjóðin nú stödd, ef Steingrímur og Jóhanna hefðu ko- mizt upp með að leggja Icesave- byrðina á bökin á okkur? Hvernig væri hér umhorfs, ef forseti Íslands hefði ekki komið okkur til bjargar? Hvað ef grasrótin og sjálfvakin sam- tök hefðu ekki beitt sér í málinu með skrifum og undirskriftasöfnunum, gegn sameinuðu afli stjórnmála- stéttar, atvinnurekenda, verkalýðs- rekenda og sameinaðra álitsgjafa í ríkisstjórnarþægum fjölmiðlum? Hver voru þessi sjálfvöktu sam- tök? Jú, InDefence-hópurinn, Þjóð- arheiður – samtök gegn Icesave (thjodarheidur.blog.is), AdvIce- hópurinn og Samstaða þjóðar gegn Icesave (Kjósum.is). Bók Sigurðar Más er ýtarleg úttekt á Icesave- málinu. Þó hefur hann að mestu gengið framhjá hlut þessara sam- taka, og vekur það nokkra furðu. En þetta var útúrdúr. 17. nóv. sl. upplýsti skilanefnd Landsbankans, að endurheimtur bankans væru orðnar um 1340 millj- arðar, um 25 milljarða umfram for- gangskröfur, en þar eru bæði Ice- save-kröfur og heildsölulán. Höfum hugfast, að ofgreiddir vext- ir vegna Icesave-krafna Breta og Hollendinga myndu ekki teljast til forgangskrafna og væru að öllu eða langmestu leyti óafturkræfir, ef þeir hefðu verið reiddir fram úr illa stödd- um ríkissjóði Íslands, sem bar raunar engin skylda til slíkra greiðslna! Svo átti að greiða þetta allt í er- lendum gjaldeyri, sem er torfenginn í svo miklum mæli, og hefði það haft áhrif til lækkunar á gengi krón- unnar og aukið á verð- bólgu. Þórði Gunnarssyni blaðamanni reiknaðist svo til í grein í við- skiptablaði Mbl. 15. sept. sl., að þær vaxta- greiðslur, sem verið hefðu, ef Icesave-III hefði verið samþykkt, næmu á hverjum 36 dögum jafngildi heils ríkisfangelsis fullbúins á Hólms- heiði, og þannig héldi það áfram, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár! Þar fyrir utan námu greiðslur til Icesave-samninganefndanna og sér- fræðinga a.m.k. hátt á 5. hundrað milljóna króna. Þetta – og 75 milljónir til eins listaverkasafnara í hópi hálauna- diplómata – þykir „verkalýðssinn- anum“ Steingrími J. bersýnilega hið bezta mál, á sama tíma og hann neit- ar Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd um aðstoð til að koma í veg fyrir hungur fátækra á Íslandi! Hér er lokað spítölum, einkum St Jósefsspítala í Hafnarfirði, og að- hlynningardeildum, allt dregið sam- an nema helzt í sukk og óhóf, t.d. í aðstoðarmenn ráðherra, sem fá hækkun nú, en ríkisstjórnin vildi ný- lega fjölga þeim upp í 31 manns! Meðan lokað er meirihluta Landa- kotsspítala til að spara 100 milljónir, taldi og telur fjármálaráðherrann, að rétt hefði verið að fleygja 1100 sinnum hærri fjárhæð í óafturkræfa gjöf til Breta og Hollendinga! Hvenær í lýðveldissögunni höfum við átt vanhæfari stjórnvöld? Ætli ríkistjórninni veiti nokkuð af 31 að- stoðarmanni? Henni verður þó engin hjálp í þeim, ef ráðvilltir ráðherrar fá að vera einráðir um, hvaða gæð- ingar þeirra hreppa þær stöður. Svo er alveg ljóst, eins og bæði Árni Þór Sigurðsson og Atli Gísla- son hafa upplýst, að Evrópusam- bandið tók í þessu máli afstöðu með Bretum og Hollendingum og að ýtt var þaðan á Samfylkinguna og Jó- hönnustjórnina (jafnvel fyrir form- legan upphafs-starfsdag hennar að sögn Atla) um að leggjast hundflöt fyrir kröfum brezkra og hollenzkra stjórnvalda. Ríkisstjórnin stendur uppi af- hjúpuð í Icesave-málinu. En ekki minnkar óskammfeilni helztu ráða- manna. Nú er helzt á döfinni að ryðja ekki einungis Jóni Bjarnasyni úr ráðherrastóli, heldur og efna- hags- og viðskiptaráðherra, Árna Páli Árnasyni, og leggja ráðuneyti hans undir Steingrím J.! Þó hefur Árni Páll gert vel í sumar með því að benda erlendum ráðamönnum og eftirlitsstofnunum á, að neyðarlög Geirs Haarde og félaga hafi einmitt hjálpað Bretum og Hollendingum að fá fullan aðgang með Icesave-kröfur að þrotabúi Landsbankans, þannig að ekkert skorti á, að tryggingar- járhæðir fáist greiddar. Ólafur Elíasson í InDefence varar við þessari ráðuneyta-uppstokkun, því að Steingrímur hafi ekki tekið undir varnir Árna Páls, fylgi ekki stefnunni af heilum hug og „siðferð- isvandi Steingríms sé slíkur að hann sé algjörlega vanhæfur til að hafa þetta mál á sinni könnu“. Illt er hér í efni. En þjóðin á enn eftir að gera upp þessi stóralvarlegu mál í kosningum. Ríkisstjórnin stendur uppi afhjúpuð í Icesave-málinu Eftir Jón Val Jensson »Hvaðan ætlaði fjár- málaráðherrann að taka 110 milljarða (fram til þessa) í erlendum gjaldeyri til að gefa Bretum og Hollend- ingum í vexti af gervi- skuld? Jón Valur Jensson Höfundur er guðfræðingur, prófarkalesari og formaður Þjóðarheiðurs. Pakki á pakka Fallegt pakkaskraut hannað af Arca Design Island. Aðrir sem standa að þessu eru Lógóflex og Markó- Merki. Jólatréð verður selt á 500 kr. hjá Arca design, Grímsbæ við Bústaðaveg og fer öll upphæðin óskipt til stuðnings Fjölskylduhjálpar Íslands. www.bluelagoon.is www. hreyfing.is www.bluelagoonspa.is Gefðu ávísun á vellíðan og betri heilsu hjá Bláa Lóninu, Hreyfingu og Blue Lagoon Spa A N TO N &B ER G U R Landfestar ehf. eru fasteignafélag í eigu Arion banka. Markmið félagsins er að þróa öflugt fyrirtæki á fasteignamarkaði. Félagið hefur til umráða um hundrað og tíu þúsund fermetra af góðu húsnæði. Stærsti hluti þess er skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meðal helstu leigutaka félagsins eru bæði ríkisstofnanir og nokkur af stærri fyrirtækjum landsins. Landfestar ehf. Sími 422 1400, www.landfestar.is Fjölnisgötu 3b á Akureyri Til sölu er gott atvinnuhúsnæði við Fjölnisgötu 3b, Akureyri, samtals 928,6 m2. Eignin er skráð á tvö fastanúmer. Annars vegar er um að ræða 451,5 m2. Þar er stærsti hluti hússins með tvöfaldri lofhæð og góðri innkeyrsluhurð. Hins vegar er um að ræða 477,1 m2 húsnæði sem áður var dreifistöð Símans, að auki eru skrifstofur og starfsmannaaðstaða í húsnæðinu. Allar nánari upplýsingar veita: Fasteignasalan Byggð, s. 464 9955 ı Hvammur Fasteignasala, s. 466 1600 Landfestar auglýsa til sölu - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Morgunblaðið birtir alla út- gáfudaga aðsendar umræðu- greinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráð- stefnur. Innsendikerfið Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein“, valinn úr felliglugganum. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti og greinar sem sendar eru á aðra miðla eru ekki birtar. Móttaka að- sendra greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.