Morgunblaðið - 10.12.2011, Side 60
Reuters
Hitchcock Helen Mirren mun leika
eiginkonu leikstjórans, Ölmu Reville.
Anthony Hopkins mun leika leik-
stjórann Alfred Hitchcock og Helen
Mirren eiginkonu hans, í vænt-
anlegri kvikmynd um leikstjórann
og gerð hinnar sígildu hryllings-
myndar Psycho. Myndin verður
byggð á bók Stephens Rebello, Alf-
red Hitchcock and the Making of
Psycho. Leikstjóri verður Sacha
Gervasi sem á m.a. að baki gervi-
heimildarmyndina Anvil! The
Story of Anvil. John McLaughlin
skrifar handritið en hann hefur
m.a. skrifað handrit kvikmyndar-
innar Black Swan.
Hopkins og Mirren
Hitchcock og frú
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2011
Írska tónlistarkonan Sinéad O’Con-
nor gekk að eiga unnusta sinn
Barry Herridge í fyrradag í Las
Vegas í Bandaríkjunum. Hún fagn-
aði einnig 45 ára afmæli sínu þann
dag. Hjónavígslan mun hafa farið
fram í bleikum Cadillac, ef marka
má umfjöllun tímaritsins People.
Mun það hafa verið ósk O’Connor
að gifta sig í slíkri bifreið. Áður
þurfti að fylla út nokkur eyðublöð
og undirrita en hjónavígslan fór
fram í A Little White Wedding Cha-
pel. O’Connor felldi tár þegar farið
var með hjúskaparheitin en athöfn-
in stóð yfir í um tíu mínútur. Að
henni lokinni sungu viðstaddir af-
mælissönginn fyrir O’Connor.
Reuters
Gift Írska tónlistarkonan og Íslandsvinurinn Sinéad O’Connor.
O’Connor gifti sig í Las Vegas
Geturðu lýst þér í fimm orðum?
Glaðlyndur, einrænn, kjöftugur, sérsinna sælkeri.
Ef þú hefðir fæðst á öðrum tíma, hvaða ár/tímabil yrði fyr-
ir valinu og af hverju? (spyr síðasti aðalsmaður, Sigríður
Soffía Níelsdóttir dansari.)
Ef ég hefði viljað vera uppi á tímum þegar meðalaldur
var 30 ár, hámarkshæð 165 cm, enginn möguleiki var að
lifa af ef sýking komst í sár og ekki var til kaffi latte þá
hefði þjóðveldisöld kannski verið góður tími til að vera
uppi.
Hver er uppáhaldsrithöfundurinn þinn?
Það skáld sem ég les oftast er Stefán Ólafsson frá Valla-
nesi. Ætli ég lesi kvæði hans ekki í hverri
viku.
En hvaða rithöfundur finnst þér helst of-
metinn?
Ég hef því miður skorast undan setu í
jöfnunarnefnd vanmetinna og ofmet-
inna.
Hver er tilgangur lífsins?
Að skapa og hugsa.
Af hverju ertu að gefa út ljósmyndabækur, geta ekki allir
tekið ljósmyndir?
Jú, en ekki góðar myndir.
Ef þú værir ekki í bókabransanum, hvað værir þú þá að
gera?
Ég hefði kannski getað fetað í fótspor föður míns og orðið
tamningamaður.
Ertu með pappírsblæti?
Já, á háu stigi.
Getur þú lýst dansstíl þínum á djamminu?
Ég er barn seinni hluta áttunda áratugarins og upphafs
þess níunda. Diskó og fönk með nýrómantísku ívafi situr
djúpt í vöðvunum.
Ertu fyrirmyndin að forsetanum í Ballinu á Bessastöð-
um?
Þú meinar að ég sé barnalegur, hégómlegur, utan
við mig og hvatvís? Kannski.
Fara matur og bækur illa saman?
Ekki nema maður sé subbukolla. Subbur eiga ekki
að lesa og borða í einu.
Hefur þú einhvern tíma keypt bók í stórmarkaði?
Satt best að segja held ég að ég hafi bara einu sinni
keypt bók í stórmarkaði, Krónunni raunar, og þá
vantaði mig hana akút.
Hvað færðu ekki staðist?
Kaffi latte og búttudeigshorn að morgni dags.
Áttu þér leyndan hæfileika og ef svo er þá hvern?
Ég veit að maður borðar ekki egg með silfurskeið.
Múm eða Sigur Rós?
Ég segi eins og börnin: „Ég elska Sigur Rós.“
Er rafbókin bóla?
Rafbækur hafa verið til í meira en ald-
arfjórðung þannig að ég held að þær
hljóti að verða til eitthvað lengur.
Hvað fær þig til að skella upp úr?
Sögur af einkennilegum mönnum og
góðar eftirhermur.
Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann?
Hvort eru móálótt eða bleikálótt
hross fallegri?
Með pappírsblæti á háu stigi
Aðalsmaður vikunnar, Kristján B. Jónasson,
er á kafi í jólabókaflóðinu enda útgefandi Crymogeu
og formaður Félags íslenskra bókaútgefenda
Útgefandinn Diskó og
fönk með nýrómantísku
ívafi situr djúpt í vöðvum
Kristjáns B. Jónassonar.
Morgunblaðið/RAX
100/100
„MERRILY OUTRAGEOUS,
OVER-THE-TOP FUN“
-ENTERTAINMENT WEEKLY
NÚMERUÐ SÆMIÐASALA Á S
á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. SPARBÍÓ
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í EGILS
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK
OG SELFOSSI
- OK
HHHHH
- THE SUN
HHHH
MÖGNUÐ GAMANMYND
„MÖGNUÐ
GERÐ MY
-H.V.A.
HHH
„BESTA
KVIKMYND
ÁRSINS“
- CBS TV
HHHH
„FYNDIN,
TILKOMUMIKIL“
- BACKSTAGE
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
„HAPPY FEET 2 ER JAFNVEL
BETRI EN FYRRI MYNDIN!“
„HIN FULLKOMNA
HELGIDAGASKEMMTUN“
- MARA REINSTEIN / US
WEEKLY
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SHREK
OG KUNG FU PANDA FRÁBÆR TEIKNIMYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
„NIÐURSTAÐAN ER SVO FYNDIN
OG AÐLAÐANDI AÐ ÁHORFENDUR
HLJÓTA AÐ FALLA FYRIR ÞESSUM
KATTAHEIMI“
-BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
-THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHH
MÖGNUÐ
ÞRÍVÍDDARMYND
KLIKKAÐASTA GRÍN
MYND Á
RSINS