Morgunblaðið - 08.06.2012, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
„Við höfum árangurslaust reynt að
ná eyrum stjórnvalda. Að stöðva
fiskiskipaflotann í þessari viku er
neyðarkall okkar til þeirra,“ sagði
Adolf Guðmundsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, á samstöðufundi á Austur-
velli gegn kvótafrumvörpum ríkis-
stjórnarinnar. Útvegsmannafélög og
starfsfólk í sjávarútvegi stóðu fyrir
fundinum.
Margir ræðumenn andmæltu
kröftuglega fullyrðingum um að
vinnuveitendur hefðu skikkað starfs-
menn sína til að mæta. Á fundinum
var samþykkt með almennu lófataki
ályktun þar sem því er beint til al-
þingismanna að taka tillit til alvar-
legra athugasemda fjölmargra aðila
við frumvörpin tvö til laga um stjórn
fiskveiða og veiðigjöld.
Fundurinn skoraði á Alþingi að
vanda til verka við endurskoðun fisk-
veiðilöggjafarinnar og hafa um það
víðtækt samráð. Var ályktunin af-
hent forseta Alþingis og formönnum
þingflokkanna eftir fundinn.
Vald ráðherra allt of mikið
Ávörp fluttu auk Adolfs þau Árni
Bjarnason, forseti Farmanna- og
fiskimannasambands Íslands, Guðný
Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtu-
bakkahrepps við Eyjafjörð, Ólöf Ýr
Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Vél-
fags á Ólafsfirði, Þorvaldur Garðars-
son, útgerðarmaður og skipstjóri á
smábáti í Þorlákshöfn, og Arnar
Hjaltalín, formaður stéttarfélagsins
Drífanda í Vestmannaeyjum.
Árni Bjarnason sagði að vald ráð-
herra yrði með frumvörpunum miklu
meira en eðlilegt gæti talist í lýðræð-
isríki. „Stóraukin bein ríkisafskipti
af útgerð hafa hvergi í veröldinni
leitt til annars en spillingar og
hnignunar og engin ástæða er til
annars en að sama verði hér upp á
teningnum verði þessi lög að veru-
leika,“ sagði hann. Hætta væri á því
að afar erfitt yrði að ná samningum
um kaup og kjör við útvegsmenn ef
frumvörpin færu í gegn. Gjá myndi
skapast milli aðila vegna þeirra bú-
sifja sem frumvörpin merktu fyrir
sjávarútveginn.
Árni gagnrýndi óbeint ummæli
Sævars Gunnarssonar, formanns
Sjómannasambands Íslands, en
Sævar sagði í vikunni að útvegs-
menn beittu sjómenn og aðra starfs-
menn sína þvingunum til að fá þá til
að taka þátt í aðgerðum gegn nýju
kvótalögunum. „Ég vísa því alfarið
til föðurhúsanna að stjórn sam-
bandsins sé hér að mótmæla vegna
þrælsótta við útgerðarmenn,“ sagði
Árni.
Ekki sótt fram „með öngulinn
einan að vopni“
Guðný Sverrisdóttir lagði áherslu
á að með mikilli hækkun veiðileyfa-
gjalds væri verið að leggja á lands-
byggðarskatt. Byggð hefði verið upp
sterk atvinnugrein sem byggðist á
öflugum fyrirtækjum, Grenivík væri
lítið þorp, þar væri mikil náttúrufeg-
urð en fólkið þyrfti líka að hafa sitt
lífsviðurværi. „Eru Íslendingar ekki
búnir að fá nóg af gjaldþrotum?“
spurði Guðný. Vissulega yrði áfram
veiddur fiskur við landið en menn
gætu ekki sótt fram í sjávarútveg-
inum „með öngulinn einan að vopni“.
Þorvaldur Garðarsson sagðist
koma á fundinn sem fulltrúi Lands-
sambands smábátasjómanna en
stjórn þess hefði samþykkt að styðja
aðgerðirnar gegn allt of mikilli
hækkun veiðileyfagjalda. Hann
sagði að sáttanefndin svonefnda
hefði loks fundið málamiðlun sem
hefði mátt nota til að leysa áratuga
deilur um kvótakerfið en þeim tillög-
um hefði núverandi ríkisstjórn hafn-
að. Hún vildi frekar skattleggja
greinina úr hófi, blóðmjólka kúna.
En þá yrði kýrin geld, það vissu
bændur.
Geta kollvarpað atvinnuöryggi
Arnar Hjaltalín sagði bæði sjó-
menn og landverkafólk vera að verja
störf sín.
„Frumvörpin geta á örfáum árum
lagt góð störf verkafólks og sjó-
manna í rúst til þess eins að skapa
verri og illa launuð störf annars stað-
ar. Við sem gjörþekkjum aðstæður í
sjávarútvegi á þessum stöðum vitum
að ef þessi frumvörp verða samþykkt
verður til veikari sjávarútvegur með
afar slæmum afleiðingum fyrir alla
þjóðina, því enn og aftur er öflugur
sjávarútvegur drifkraftur endur-
reisnar úr kreppunni,“ sagði Arnar.
Neyðarkall til stjórnvalda
Sjómenn og landverkafólk óttast um atvinnuöryggi sitt
verði kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar samþykkt óbreytt
Þétt setinn bekkurinn Straumur fiskiskipa lá til Reykjavíkur
í gær og voru þau bundin hvert utan á annað til að öll kæmust
fyrir í gömlu höfninni. Gísli Gíslason hafnarstjóri segir daginn
sögulegan því um 70 stærri skip hafi verið í höfninni, sem sé
með því mesta sem menn hafi séð í áratugi.
Samstöðufundur á Austurvelli
Ólöf Ýr Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri Vélfags ehf. á
Ólafsfirði, sagði fyrirtækið eitt
af mörgum sem dafnað hefðu vel
í sjávarútvegsklasanum með
þjónustu við öflug og vel rekin
fyrirtæki. Hún sagði erfiðara
fyrir landsbyggðarfólk sem ætti
allt sitt undir sjávarútveginum
en Reykvíkinga að koma sjón-
armiðum sínum á framfæri; fjöl-
miðlar þytu ekki á staðinn.
„Ég kem hingað á eigin veg-
um, kem hingað af því að ég vildi
það sjálf,“ sagði Ólöf. „Það sem
ég segi hér er hvorki ritskoðað
né samið af Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna. Ég er ekki
í neinum stjórnmálaflokki, ég
skilaði auðu síðast og líklegast
að ég geri það næst.“
Hún sagðist hafa lesið skýrslu
sem óháðir sérfræðingar gerðu
að ósk stjórnvalda um frum-
vörpin en þeir gagnrýndu þau
harkalega. Kveðið hefði við sama
tón í athugasemdum allra hags-
munaaðila, hvar sem borið var
niður, sagði Ólöf. Hún skoraði á
fólk að lesa umrædd gögn, þau
væru upplýsandi.
Beitt væri harkalegum áróðri.
„Útgerðarmenn sem keyptu
sér kvóta eða héldu áfram að
reka sín fyrirtæki eru orðnir eins
konar ígildi Hells Angels og aðr-
ir hagsmunaaðilar, sem voga sér
að efast um heilbrigði þessara
frumvarpa, eiga vafalaust líka
mótorhjól.“ kjon@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Skelegg Ólöf Ýr Lárusdóttir.
Ávarpi hennar var vel fagnað.
„Orðnir eins
konar ígildi
Hells Angels“