Morgunblaðið - 08.06.2012, Síða 25

Morgunblaðið - 08.06.2012, Síða 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is „Upp úr 2025 er viðbúið að menn muni vera að vinna á þremur olíu- svæðum norðan Íslands, við Austur- Grænland, á Drekasvæðinu og við Jan Mayen,“ sagði Össur Skarphéð- insson, utanríkisráðherra Íslands, á morgunverðarráðstefnu sem haldin var um olíu á Drekasvæðinu í Arion banka í gær. Að mati Össurar gæti þjónusta við olíusvæðin þrjú skapað umtalsverðan auð fyrir Íslendinga. Össur sagðist hafa rætt við kollega sína á Grænlandi og í Noregi og það væri mikill vilji til samstarfs um þróun þjónustusvæða. Össur sagð- ist líka vilja setja upp sérstakan Auðlindasjóð sem og auðlindagjald fyrir helstu orkulindirnar, eins og olíu, jarðhita, fallvötn í eigu ríkisins og fiskinn. Hefja undirbúning strax Í máli Thinu Margrethe Saltvedt, greinanda hjá Nordea bankanum, og Per Mathis Kongsrud, frá norska fjármálaráðuneytinu, komu fram skýrar ábendingar um að þótt það væri kannski ekki kominn tími til mikillar uppbyggingar vegna mögulegs olíufundar að þá þyrfti samfélagið, pólitíkusar og embætt- ismenn að hefja viðræður sem fyrst um hvernig skyldi bregðast við. Eða einsog Saltvedt orðaði það í samtali við Morgunblaðið eftir ráðstefnuna: „Ef íslenskir pólitíkusar eru jafn hægir í hreyfingum og þeir norsku, er eins gott að hefja þessar umræð- ur strax til að samkomulag sé í höfn áður en allt fer af stað,“ sagði hún. Fyrst hafði Þórarinn Sveinn Arnarsson, verkefnastjóri olíuleitar hjá Orkustofnun, haldið erindi um líkindi þess að olía finnist á svæðinu og verða þau að teljast þónokkur. Kongsrud deildi með fundar- mönnum reynslu Norðmanna og hversu mikilvægt það hafi verið að ná sátt um norska olíusjóðinn sem fylgir 4% ávöxtunarkröfu og tryggir Norðmönnum góðan lífeyri. Kongs- rud sagði það mikilvægt að halda þjóðinni upplýstri um hættur þess að fara að beina olíupeningunum inn í norskt samfélag. En sjóðurinn fjárfestir allstaðar annarstaðar en í Noregi til að forðast þenslu í samfélaginu. Samfélög á landsbyggðinni gætu blómstrað Saltvedt lagði áherslu á að pen- ingarnir af olíuvinnslunni væru ekki endilega mikilvægastir heldur gæti þjónustan við hana gefið mikið af sér. Hún benti á að Stavanger og fleiri byggðarlög í Noregi, sem hefðu verið lítil og ekkert að gerast þar, væru orðnar myndugar borgir í dag þar sem allt blómstraði. En Stavanger er gjarnan köllluð höf- uðborg olíunnar. Þannig gætu svæði á Norð-Austurlandi orðið hentug til að þjónusta olíusvæðin og hafa yrði það í huga við framtíð- aráætlanir á svæðinu. Allt sam- félagið græddi á svona fundum, allt frá bakara, hárgreiðslumönnum og sjoppueigendum til sveitarfélag- anna og ríkisins. Líkur á olíu á Drekasvæði miklar Morgunblaðið/Ómar Húsfyllir Troðið var á morgunfundi Arion banka í gær og sáust mörg þekkt andlit úr atvinnulífinu og pólitíkinni.  Mikilvægt að stjórnmálamenn komist sem fyrst að samkomulagi um hvað skuli gera ef olía finnst  Um 2025 munum við hugsanlega þjónusta þrjú olíusvæði  Svæði úti á landi gætu blómstrað Drekasvæðið » Norðurhluti svæðisins er 42.700 ferkílómetrar að flat- armáli og staðsett norðaustur af Íslandi. » Á svæðinu hafa fundist móð- urberg sem er forsenda tilvistar olíu og geymsluberg þar sem olía eða gas gæti hafa safnast saman. » Um hluta svæðisins gildir milliríkjasamningur milli Íslands og Noregs frá 1981 um land- grunnið milli Íslands og Jan Ma- yen og þekur sá hluti 12.720 ferkílómetra innan þess. NÁÐU EM OG ÓLYMPÍULEIKUNUM Í HÁSKERPU MEÐ GERVIHNATTABÚNAÐI FRÁ OKKUR VERÐ Á BÚNAÐI FRÁ 44.300,- • CONAX AFRUGLARI • USB FYRIR UPPTÖKU • 3D READY • YOUTUBE SPILARI • PICASA SPILARI • RSS LESARI • VEÐURSPÁ • MARGMIÐLUNARSPILARI Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.