SunnudagsMogginn - 01.07.2012, Side 11
1. júlí 2012 11
07:00 Vakna eldhress og fer upp í hesthús
í Víðidal því Landsmót hestamanna er gengið
í garð. Ég gef hestunum morgungjöfina sína
og eftir það fæ ég mér sjálf morgunmat.
08:00 Hirði hesthúsið, það er að segja
hreinsa úr stíum, set spæni inn í stíurnar og
geri fínt svo að hestunum líði vel og geti hvílt
sig yfir daginn.
Hleypi hestunum mínum Þóri og Þresti út í
gerði, ásamt fleirum til að viðra sig og kljást
við hina hestana.
09:00 Keppni og kynbótasýningar hefjast.
Aðstoða mína nánustu að leggja á og pússa.
Horfi einnig á aðra keppendur. Maður verður
líka að njóta þess að fylgjast með mótinu.
11:00 Fer á bak á einum hesti, sá hestur er
nú ekki keppnishestur á mótinu en þó minn
framtíðarhestur, hann heitir Héðinn Skúli og
er gott að venja hann við allt áreitið sem
fylgir á svona stóru móti svo hann verði betur
undirbúinn fyrir komandi mót framtíð-
arinnar.
12:00 Gef hádegisgjöf sem er mun minni
en morgungjöf, sirka 1 kg og sumir hestarnir
fá líka fóðurbæti. Sópa ganginn og leyfi hest-
unum að fá sinn frið svo þeir geti hvílst því
átökin verða mikil. Ég fæ mér einnig að borða
og fer yfir í huganum hvernig ég ætla að sýna
hestana mína sem best.
13:00 Legg á hestana mína, pússa þá og
bursta og geri þá fína fyrir keppnina. Ég skipti
um föt og fer í hvítar reiðbuxur, reiðstígvél og
reiðjakka, maður verður að vera fínn á lands-
móti.
14:00-16:30 Sýni hestana mína,
frændurna Þóri og Þröst frá Hólum í kynbóta-
sýningu. Þeir eru báðir alhliða hestar í flokki
sjö vetra og eldri stóðhesta.
Það gekk mjög vel að sýna þá þó svo að þeir
hafi ekki haldið öllum sínum tölum. En við
höfum yfirlitssýninguna á morgun til að sækja
hærri tölur.
18:30 Aðstoða pabba við skeiðkappreiðarnar
þar sem hann er með þrjá hesta sem allir hafa
verið í minni þjálfun í vetur. Hann er með tvo
hesta í 250 m skeiði, þá Flosa og Andra og þarf
ég að vera tilbúin með næsta hest þegar hann er
kominn úr sprettinum.
Ég held í þá á hliðarlínunni. Einnig næ ég í
Óðin sem keppir í 150 m skeiði þegar einn
sprettur er eftir í 250 m skeiði. Árangurinn er
frábær, hann nær besta tímanum í 150 m skeiði
og 250 m skeiði. Á morgun er aftur keppt og
verður gaman að sjá hvernig fer, hvort einhver
nær að skáka þeim gamla.
19:30 Geng frá í hesthúsinu, næ í hestana út
í gerði, gef kvöldgjöf, sópa ganginn. Fæ mér
smá nasl í hesthúsinu, þó ekki kvöldmat.
Allt er komið í ró og næði og hestarnir éta
heyið sitt.
20:00 – 22:30 Hjálpa öðrum knöpum
við að fínstilla fyrir keppni. Þetta eru börn og
unglingar á ýmsum aldri og gengur þeim býsna
vel og allt lítur mjög vel út. Ég aðstoða einnig
pabba og unnusta minn, hann Árna, sem er að
fara að keppa í tölti.
23:30 Komin heim, fæ mér eitthvað aðeins
að borða, skelli mér í sturtu og rétt kveiki á
sjónvarpinu en slekk fljótlega á því aftur þegar
ég sé hvað tímanum líður.
24:00 Farin að sofa og stilli klukkuna 7:00
og er eflaust sofnuð áður en ég legg höfuðið á
koddann.
Dagur í lífi Sylvíu Sigurbjörnsdóttur
Sylvíu Sigurbjörnsdóttur líður best í frelsinu í sveitinni umkringd hestum og náttúrufegurð.
Morgunblaðið/Eggert
Hestamennska
frá morgni til kvölds
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300
Opnunartími: 08:00 - 17:00 alla virka daga
www.ispan.is - ispan@ispan.is
CE-VOTTUN ER
OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðingar í gleri
… og okkur er nánast ekkert ómögulegt
HERT GLER:
Í handrið • Í skjólveggi
Jón Baldvin Hannibalssonhélt því eitt sinn fram, að„fjölskyldurnar fjórtán“ættu Ísland. Hann skýrði
ekki nánar, hverjar þær væru,
enda tók hann orðið traustataki
frá El Salvador, þar sem iðulega
var talað um „Las catorce fa-
milias“.
Greining Jóns Baldvins er ekki
eins einföld og danska þjónsins
á einni Kaupmannahafn-
arkránni á nítjándu öld. Hann
skipti íslenskum stúdentum í
tvo hópa, Briemere og Blønda-
lere, og sagði hin fleygu orð:
„Briemerne, de er gode beta-
lere, men dårlige sangere. —
Bløndalerne, de er gode san-
gere, men dårlige betalere.“
Sjálfur var Jón Baldvin raunar
af einni af valdaættum Íslands á
tuttugustu öld. Faðir hans,
Hannibal Valdimarsson, var for-
maður þriggja stjórnmálaflokka,
forseti Alþýðusambands Íslands
og ráðherra. Föðurbróðir Jóns
Baldvins var bankastjóri og
þingmaður. Bróðir Jóns Bald-
vins er faðir forsetaframbjóð-
andans Þóru Arnórsdóttur.
Líklega var ein ættin, sem Jón
Baldvin hefði getað nefnt,
Thorsararnir, afkomendur stór-
útgerðarmannsins Thors Jen-
sens. Meinlegt var svar Steins
Steinarrs, þegar hann var
spurður, hvað honum fyndist
um skáldskap Thors Vilhjálms-
sonar, sonarsonar Thors Jen-
sens: „Það veit ég ekki, en það
er gaman, að Thors-ættin skuli
vera farin að yrkja.“
Ekki var það síður meinlegt,
sem ónefndur maður sagði í
samkvæmi í Reykjavík, þegar
maður af Gautlandaætt raupaði
af ætterni sínu, en tveir menn af
þeirri ætt voru ráðherrar á önd-
verðri tuttugustu öld: „Gaut-
landaættin er eins og kart-
öflugras. Hið besta af henni er
neðanjarðar.“ Er þessi fyndni
líklega komin frá enska skáldinu
Sir Thomas Overby, sem skrif-
aði í Characters (Manngerðum)
árið 1614: „Maður, sem getur
ekki hrósað sér af öðru en
merkum forfeðrum, er eins og
kartöflugras, — hið besta úr
honum er neðanjarðar.“
Athugasemdir og leiðréttingar vel
þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Ættir á Íslandi