Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Page 47
28.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
Landsliðið í hópfimleikum kvenna á góðri stund að loknum fræknum sigri á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Danmörku.
Morgunblaðið/Eggert
Hávinkill Ein erfiðasta
gólfæfing íslenska liðsins
sem Harpa Snædís Hauks-
dóttir klárar með stæl.
Hópfimleikar eru tiltölulega ung
íþrótt en upp úr 1980 var byrjað
að keppa í íþróttinni í Dan-
mörku. Í kjölfarið breiddist hún
út og nýtur nú mikilla vinsælda á
Norðurlöndunum. Bæði kvenna-
liðið og unglingalið stúlkna báru
sigur úr býtum á Evrópumeist-
aramótinu í hópfimleikum í Dan-
mörku um liðna helgi og verður
árangurinn að teljast einstakur
fyrir svo fámenna þjóð.
Sunnudagsblað Morgunblaðs-
ins fékk að líta inn á æfingu hjá
kvennaliðinu í vikunni og þar var
glatt á hjalla.
Þjálfarar kvennaliðsins eru
fjórir, tveir einbeita sér að gólf-
æfingum og tveir eru í stökkum
og dýnu. Liðið er skipað 14
stúlkum en tveir varamenn til
viðbótar fara með á mót. Með-
alaldur liðsins er rúmt 21 ár, sú
elsta í liðinu er 27 ára en sú
yngsta 16 ára. Kvennaliðið kem-
ur allt úr Gerplu í Kópavogi.
Unglingaliðið er svo skipað
stúlkum á aldrinum 13-17 ára en
þær koma úr mörgum félögum,
þó eru átta stúlkur í því liði úr
Stjörnunni í Garðabæ.
Fimleikar álíka vinsælir
og fótbolti
Víðast hvar í Evrópu er knatt-
spyrna sú íþrótt sem flestir iðka
og Ísland er engin undantekn-
ing. Ef aðeins er horft til kvenna
lætur hins vegar nærri að jafn-
margar æfi fimleika og fótbolta
hér á landi, en alls er talið að iðk-
endur fimleika hér á landi séu
um 12 þúsund og meirihluti
þeirra eru konur eða stelpur.
Fimleikar eru fjórða stærsta
íþróttagreinin innan ÍSÍ ef tekið
er tillit til fjölda iðkenda.
Að sögn þjálfara kvennalands-
liðsins hafa vinsældir hópfim-
leika aukist undanfarið í
tengslum við velgengni liðsins.
Flestar stúlkurnar komi þó upp-
haflega úr áhaldafimleikum en
færi sig svo yfir í hópfimleika
þar sem þær þurfa ekki að keppa
hvor við aðra heldur sé enn meiri
áhersla lögð á liðsheild og hóp-
efli.
ÓTRÚLEGUR ÁRANGUR FIMLEIKAKVENNA
Á SKÖMMUM TÍMA
Ísland fremst í Evrópu
í hópfimleikum
Jafnvægi Að gera hinn
fullkomna „pirouette“
snúning reynir á jafnvægi.
Það veit landsliðskonan
Ingunn Jónasdóttir Hlíð-
berg mætavel.