Morgunblaðið - 27.10.2012, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2012
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Myndlistaruppboð
á netinu
Hliðarsalur
Skiftandi ljós úr eystrið
Finleif Mortensen
Baksalur
Móttökustöð
fyrir mannsandann
Guðmundur
Viborg Erum að takaá móti verkum
á næstu uppboð
Síðasta sýningarhelgi
20. – 30. október
G
eo
rg
G
uð
ni
Forritun þarf að fá hærri sess
Rúnar Pálmason runarp@mbl.is
Stjórnvöld hafa lengi haft það á stefnuskrá sinni að fjölga nemendum sem útskrifast úr tölvunarfræði enda er sífelldur skortur á fólki með
þá þekkingu. Miðað við drög að nýrri greinanámskrá í upplýsingatækni, þar sem afar lítið fer fyrir umfjöllun um forritun, virðist þó ekki
sem stjórnvöld telji að börn sem kynnist forritun í grunnskóla séu líklegri en aðrir til að hefja nám í tölvunarfræði eða tengdum greinum.
Rætt var við tvo tölvukennnara sem telja að gera eigi forritun hærra undir höfði en nú er gert.
Linda Björg Pétursdóttir var umsjónarkennari
í 13 ár en fór þá í Rafiðnaðarskólann og lauk
tölvukennaranámi og hefur síðan sótt námskeið
og bætt við sig þekkingu. Frá árinu 2000 hefur
hún verið tölvukennari í Hlíðaskóla í Reykjavík.
„Ég hafði bara áhuga á tölvum og mér finnst
þær spennandi,“ segir Linda.
Í vetur ætlar hún að kenna nemendum í 4.-7.
bekk (8-11 ára) á Scratch en það er ókeypis
kennsluforrit í forritun og á íslensku í þokka-
bót. Linda Björg kynntist Scratch-forritinu og
möguleikum þess á námskeiði hjá Salvöru Giss-
urardóttur, lektor við menntasvið Háskóla Ís-
lands. Einn liður í námskeiðinu var að fara inn í
bekk og kenna á forritið og Linda segir ótrúlegt
hversu fljótir nemendurnir hafi verið að tileinka
sér forritið. „Þetta er mjög sniðugt og reynir
mikið á rökhugsun nemenda,“ segir hún. Í vetur
hyggst hún kenna á forritið í a.m.k. átta
kennslutímum.
Hún vonast eftir því að kennsla í Scratch
muni efla áhuga nemenda á tölvum. Líklega
veitir ekki af. Í vetur hugðist Linda Björg bjóða
upp á valáfanga í 9.-10. bekk en áfanginn féll
niður vegna þátttökuleysis.
Linda Björg bendir á að tölvukennsla í
grunnskólum sé misjöfn og í mörgum skólum sé
það á könnu umsjónarkennara að sjá um tölvu-
kennsluna. „Það fer svolítið eftir því hversu
tölvufærir umsjónarkennararnir eru, hvað
krakkarnir fá að gera,“ segir hún. Til að kenn-
arar eigi auðvelt með að setja sig inn í Scratch
þurfi þeir að hafa þokkalegan grunn í tölvu-
vinnslu og rökhugsunin og stærðfræðikunn-
áttan þurfi að vera allgóð. „Ef þú nærð þessu
ekki og hefur ekki áhuga á þessu getur þú ekki
smitað börnin.“
Hún telur að tölvukennslu sé best borgið í
höndum tölvukennara. „Það er ósköp eðlilegt,
maður getur ekki verið snillingur í öllu. Ég
myndi til dæmis aldrei taka að mér að kenna
smíði vegna þess að ég hef ekki þekkingu í það.“
Scratch og fleiri áþekk forrit byggjast á sýni-
legri forritun, þ.e. skipanir sjást á tölvuskjánum
og síðan smella nemendur á þær til að forrita
teiknimyndasögur, tónlist og fleira.
Linda Björg segir að sér lítist þokkalega á
drög að nýrri greinanámskrá, nema hvað að svo
virðist sem forritunarkennsla muni detta alveg
út. Það sé að vissu leyti skiljanlegt, verið sé að
sníða námskrána að því sem henti almennum
kennurum.
Morgunblaðið/Ómar
Áhugi Linda Björg Pétursdóttir tölvukennari ætlar að kenna 8-11 ára krökkum að forrita.
Nemendur ná ótrúlega
fljótt tökum á forritun
Þjálfar rökhugsun Sérhæfðir tölvukennarar
Unnur Jónsdóttir, upplýsingatæknikennari í
Vættaskóla í Reykjavík, kennir á forritið First
Lego í valáföngum í 8.-10. bekk. First Lego
byggist á sýnilegri forritun, líkt og Scratch
sem fjallað er um hér til hliðar, og snýst um að
forrita lítið vélmenni og láta það leysa ýmsar
þrautir. Stofnkostnaður er töluverður, a.m.k. á
mælikvarða grunnskóla, eða í kringum 60-
70.000 krónur og síðan er um 30.000 króna
gjald fyrir þátttöku í árlegri alþjóðlegri forrit-
unarkeppni First Lego.
Útgjöldin eru þó vel þess virði, að mati Unn-
ar; námsefnið sé gott og spennandi og hún
bendir á að erlend rannsókn hafi sýnt að um
níu af hverjum tíu nemendum sem læri á First
Lego skili sér í tæknigreinar í framhaldsnámi.
Unnur telur að forritun geti vel verið
skyldufag í grunnskólum. Núna er forritun
valkvæð og af um 380 nemendum í Vættaskóla
velja um 12-14 í elstu þremur árgöngunum
forritun á ári – yfirleitt allt saman strákar.
„En ég fékk eina stelpu núna og var mjög feg-
in,“ segir Unnur.
Á næsta ári ætlar Unnur að bjóða upp á
valáfanga í html-forritun, sem t.d. er vefsíðu-
gerð, og hún er að safna í sig kjarki til að
kenna First Lego í yngri
árgöngum einnig. Hún er
viss um að ef stelpur kynn-
ist forritun snemma aukist
áhuginn á tölvugreinum.
Í Vættaskóla er upplýs-
ingatækni kennd frá 1.
bekk og upp úr og er námið
tengt við aðrar greinar.
Margir haldi að „vegna
þess að krakkar eru alltaf í
tölvunni, kunni þau á tölvur. En þau kunna
kannski bara á músina og drepa mann og ann-
an á skjánum. En þau kunna ekki að nota tölv-
una markvisst til að sækja sér upplýsingar, í
stærðfræði, náttúrufræði eða til að læra um
stjörnurnar“.
Unnur hefur sitthvað að athuga við drög að
nýrri greinanámskrá í upplýsingatækni sem
menntamálaráðuneytið hefur kynnt. Nánast
ekkert sé fjallað um forritun og skólar muni
nánast geta ráðið sjálfir hvað þeir kenna á
þessu sviði. Í mörgum skólum eigi umsjón-
arkennarar að sjá um tölvukennslu. Þeir hafi
ekki nægilegan grunn enda sé ekkert kennt
um forritun í kennaranáminu.
Ljósmynd/Vættaskóli
Keppni Á hverju ári þarf að leysa nýjar þrautir fyrir keppni í First Lego. Áhuginn leynir sér ekki.
Vélmennið eflir áhuga
á tæknigreinum
Drög að námskrá ekki nógu góð Skyldufag
Unnur Jónsdóttir
Í Eistlandi er verið að undirbúa
kennslu í forritun frá og með 1. bekk
í grunnskóla, eftir því er bandaríska
tímaritið Wired greinir frá. Mikil
eftirspurn er eftir forriturum í Eist-
landi en ekki nægilegt framboð.
Byrjað er að þjálfa eistneska grunn-
skólakennara í að kenna forritun og
síðan verður boðið upp á tilrauna-
kennslu áður en námsefnið verður
kennt í öllum skólum. Ekkert hefur
þó komið fram um að forritun verði
skyldufag.
Í Wired segir að ýmsir þeir sem
hafa látið sig kennslu varða hafi
lengi haldið á lofti kostum þess að
hefja forritunarkennslu snemma.
Einn þeirra er Mark Surman,
framkvæmdastjóri Mozilla, en Mo-
zilla hefur stutt við ýmiskonar við-
burði og námsefni um forritun fyrir
börn. Surman segir að þegar börn
séu á aldrinum 8-10 ára séu þau
byrjuð að móta sér skoðun á því
hvort þau vilji taka þátt í að búa til
tölvuforrit eða bara nota þau. „Ef
við viljum að börn séu gerendur
(markmið Mozilla) en ekki bara not-
endur, þá getur þetta aldursskeið
ráðið úrslitum,“ segir hann.
Skoðanabræðrum Surman hefur
fjölgað mjög en ekki eru allir sam-
mála þeim. „Ég elska að forrita og
forritun er mikilvæg ... en í rétta
samhenginu og fyrir suma. En það á
við um fleira,“ sagði Jeff Atwood,
stofnandi StackOverflow, hjálp-
arvefs forritara. Ekki þurfi allir að
læra forritun, alveg eins og ekki
þurfi allir að læra pípulagningar.
Forritun kennd í
Eistlandi frá 1. bekk