Morgunblaðið - 27.10.2012, Page 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2012
Er rangt að gera eitthvaðbara af því að reglurnarsegja það? Er allt sem erbannað endilega rangt
eða er í lagi að gera það ef eitthvað
gott kemur út úr því? Þetta er meðal
þeirra álitaefna sem krakkarnir í
bókinni Salamöndrugátan takast á
við, um leið og þau hendast um
Skútuflóa og reyna að komast til
botns í því hvað gerðist þegar nafn-
lausu líki með dularfullt húðflúr
skolaði á land.
Salamöndrugátan er fyrsta bókin
í norska sakamálabókaflokknum
Clue. Sagan minnir óneitanlega á
barnabækur Enid Blyton, sögusvið-
ið er gamalt gistiheimili úti á landi
þar sem snjallir krakkar koma harð-
svíruðum glæpamönnum á kné. Í
Salamöndrugát-
unni er meira að
segja að finna
talandi páfa-
gauk og hund
sem skynjar
þegar brögð eru
í tafli. Með
fylgja svo til-
heyrandi kort af
svæðinu sem
hægt er að rýna
í til að rekja slóðir atburðanna.
Höfundur, sem sjálfur er lög-
reglumaður, dvelur þó ekki við ít-
arlegar matarlýsingar eða aðra út-
úrdúra heldur keyrir söguna áfram,
svo framvindan er bæði hröð og
spennandi. Inn í hana fléttast svo
siðferðisleg álitamál sem krakkarnir
ræða sín á milli án þess að komast
endilega að niðurstöðu, svo lesand-
inn verður sjálfur að taka afstöðu til
þeirra. Salamöndrugátan er því vel
heppnuð og skemmtileg spennusaga
sem endar á brúninni og skilur les-
andann eftir með margar spurn-
ingar og spennuhnút í maganum
sem ekki verður leyst úr fyrr en
framhaldið kemur út.
Vel heppnuð
spennusaga
Salamöndrugátan bbbmn
Eftir Jørn Lier Horst. Sigurður Helgason
þýddi. Draumsýn bókaforlag. 159 bls.
UNA
SIGHVATSDÓTTIR
BÆKUR
Hinir sívinsælu alþýðutónlist-
armenn KK og Magnús Eiríksson
munu halda tónleika á Café Rosen-
berg í kvöld og hefjast þeir kl. 22.
Þar munu félagarnir leika lög af
fingrum fram eins og þeim einum
er lagið, gömul lög og ný í bland.
KK og Magnús á
Café Rosenberg
Tónleikar Magnús Eiríksson og KK.
Tvíeykið Magnús og Jó-
hann, þ.e. Magnús Þór
Sigmundsson og Jó-
hann Helgason, hafa
sent frá sér hljómplötu
með nýjum lögum, plöt-
una Í tíma. Ekki er nóg
með að nær 20 ár séu
liðin frá því félagarnir
sendu síðast frá sér
plötu með nýjum lögum
heldur er hún sú fyrsta
sem sungin er á ís-
lensku eingöngu. Plat-
an var tekin upp sl. vor
af Guðmundi Kristni
Jónssyni og á plötunni
leika þeir Jón Ólafsson,
Eiður Arnarsson, Stef-
án Már Magnússon og Kristinn Snær Agnarsson með Magnúsi og Jóhanni.
Lög og texta sömdu Magnús og Jóhann og stýrðu upptökum með Jóni
Ólafssyni. Sena gefur plötuna út og kom hún í verslanir í gær.
Nær 20 ára bið eftir nýjum lögum lokið
Í tíma Plata Magnúsar og Jóhanns.
Ólafur Ingi Jónsson, forvörður við Listasafn Íslands, mun á morgun kl. 14
flytja erindi um málverk eftir óþekktan höfund sem skráð eru í að-
fangabók safnsins sem gjöf erfingja Tage Reedtz-Thott (1839-1923), léns-
baróns af Gavnø í Danmörku og forsætisráðherra Danmerkur 1894-1897.
Alls voru þetta 24 verk sem gefin voru safninu og uppruni þeirra óljós en
öll bera þau áletrun sem tengir myndefnið við Ísland, eins og segir í til-
kynningu. Hluti verkanna er sýndur í tengslum við sýningu sem nú stendur
yfir í safninu, Ölvuð af Íslandi. Ólafur mun rekja hugmyndir sínar um til-
urð og uppruna þessara dularfullu verka út frá rannsóknum á myndefni og
tækni þeirri sem notuð var við gerð þeirra. Fyrirlesturinn verður haldinn í
fyrirlestrasal safnsins og er öllum opinn.
Ólafur Ingi fjallar um dularfull málverk
NÝTT Í BÍÓ
Entertainment Weekly New York Observer
Empire Boxoffice.com
16
Ein besta mynd ársins!
- Boxoffice Magazine
JOSEPH
GORDON-LEVITT
BRUCE
WILLIS
EMILY
BLUNT
HAUNAST
16
16
Nýjasta mynd leikstjórans Tim Burton
San Francisco chronicle
Boston.com
Entertainment Weekly
BoxOffice.com
Frábær mynd sem enginn
aðdáendi Tim Burtons ætti
að láta fram hjá sér fara
7
L
12
UPPLIFÐU NÝJA SAMBÍÓIÐ Í KRINGLUNNI
-MBL
-FBL
-FRÉTTATÍMINN
ÁLFABAKKA
16
7
L
L
L
L
L
12
12
VIP
16
16
16
7
EGILSHÖLL
12
12
L
L
16
16
16
SKYFALL KL. 2 - 5 - 8 - 10:20 - 11
END OF WATCH KL. 5:40 - 8 - 10:20
LOOPER KL. 8
LAWLESS KL. 10:30
HOPE SPRINGS KL. 5:40 - 8
FRANKENWEENIE SÝNDÍ3DMEÐÍSLTEXTA
KL. 1:40 - 3:40 - 6
MADAGASCAR 3 KL. 1:40 - 3:40
BRAVE KL. 1:40 - 3:50
L
L
L
L
12
16
KEFLAVÍK
SKYFALL KL. 5 - 8 - 11
HOPE SPRINGS KL. 8
END OF WATCH KL. 10:10
FUGLABORGIN M/ÍSL. TALI KL. 2
BRAVE M/ÍSL. TALI KL. 2 - 4
BRAVE ENSKU TALI KL. 6
AKUREYRI
7
L
L
L
16
16
16
FRANKENWEENIE ÍSLTEXTI3D KL. 4 - 6
LEITIN AF NEMO ÍSLTAL3D KL. 2
LAWLESS KL. 8
LOOPER KL. 10:20
BRAVE ÍSLTAL KL. 2 - 4
HOPE SPRINGS KL. 8
END OF WATCH KL. 10:20
KRINGLUNNI
UPPLIFÐU NÝJA SAMBÍÓIÐ KRINGLUNNI
2 FYRIR 1 Á VALDAR MYNDIR
L
L
L
L
12
12
OTELLO (ÓÞELLÓ) ÓPERA Í BEINI ÚTSENDINGU
-SÝND LAUGARDAG KL. 16:55
SKYFALL SÝND LAUGARDAG KL. 1 - 4 - 6 -
7 - 8:30 - 9 - 10 - 11:30 NÚMERUÐ SÆTI
SKYFALL SÝND SUN. KL. 2 - 4 - 5 - 6 - 7 -
8 - 9 - 10 - 11 NÚMERUÐ SÆTI
BRAVE ÍSL.TALI KL. 1:40
HOPE SPRINGS KL. 3:50
FINDING NEMO ÍSL.TALI SUN. KL. 1:50
HOPE SPRINGS KL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10
HOUSE AT THE END OF THE STREET FORSÝNING KL. 10
FRANKENWEENIE KL. 2 - 4 - 6 - 8
END OF WATCH KL. 5:50 - 8 - 10:20
END OF WATCH VIP KL. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20
LOOPER KL. 10
SAVAGES KL. 8
FINDING NEMO ÍSL.TALI KL. 1:30 - 3:40
FINDING NEMO ÍSL.TALI KL. 1:30
THE CAMPAIGN KL. 6:10 - 8
LAWLESS KL. 10:40
BRAVE ÍSL.TALI KL. 1:50 - 4 - 5:50
MADAGASCAR 3 ÍSL.TALI KL. 1:30 - 3:40
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
FORSÝND Í ÁLFABAKKA
KL. 22 UM HELGINA!
JENNIFER LAWRENCE ÚR HUNGER
GAMES, HÖRKU SPENNUTRYLLIR