Morgunblaðið - 02.11.2012, Síða 44
AF AIRWAVES
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Það er ekkert grín að veljasér tónleika að sækja á Ice-land Airwaves. Framboðið
er allsvakalegt og óumflýjanlegt
að maður missi af einhverju safa-
ríku. Ég tók að mér að skrifa pist-
il um fyrsta kvöld hátíðarinnar í
ár, miðvikudagskvöldið sl. og
ákvað að flakka ekki of mikið
milli staða, halda mig við tvo eða
þrjá staði. Veðrið bauð heldur
ekki upp á notalega göngutúra,
það var ískalt og ég fór sem betur
fer á milli staða á reiðhjóli. Það er
allra veðra von á Airwaves.
Fyrsti viðkomustaður var Silf-
urberg í Hörpu. Þar var sú ágæta
hljómsveit Tilbury á sviði. Eitt-
hvað var hljóðið einkennilegt, sum
hljóðfæranna of hátt stillt sem
skemmdi verulega fyrir. Ég fór út
eftir tvö lög. Seinna frétti ég að
hljóðið hefði verið alltof lágt (!?).
Tæknin var eitthvað að stríða
strákunum. Á Gamla Gauknum
var öllu meira stuð. Þar tróð upp
RetroBot, sigurhljómsveit síðustu
Músíktilrauna. Í fyrstu virtust
strákarnir feimnir en síðan fór allt
í gang, aðalsöngvarinn (hvað sem
hann nú heitir) steig kostulegan
dans og skvetti hári fram og aftur.
„Nýrómantík dauðans“ tísti popp-
spekingur á besta aldri um tón-
leikana. Sami spekingur stóð einn
á gólfinu þegar aðrir gestir krupu
niður, að beiðni söngvarans, djúpt
sokkinn í snjallsímann sinn. Eftir
ítrekuð tilmæli söngvarans lét
hann loks til leiðast og kraup með
hjörðinni. RetroBot er hljómsveit
sem vert er að fylgjast með, tón-
listin dansvæn, drengirnir líflegir
á sviði og njóta þess að spila.
Á Þýska barnum tróð huldu-
maðurinn Gabríel upp með fé-
lögum sínum, m.a. Unnsteini úr
Retro Stefson og Valdimari úr
Valdimari. Þýski barinn er ómögu-
legur tónleikastaður, illa sést á
sviðið og aðeins hluti gesta sem
sér hvað er að gerast þar. Fullt
var út úr dyrum og bjór þambaður
af gestum líkt og bjórbanni hefði
verið aflétt fyrr um daginn. Flutn-
ingur Gabríels og félaga var ágæt-
ur, sérstaklega undir lokin þegar
þeir fluttu hið fantagóða „Stjörnu-
hröp“. Mikið hefði verið gaman að
sjá þá á betri tónleikastað.
Aftur var haldið í Hörpu, í
þetta sinn á Mammút. Katrína Mo-
gensen var að vanda fantagóð,
gríðarlega góð söngkona þar á
ferð en einhverra hluta vegna
náði hljómsveitin ekki að hrífa
mig. Kannski var um að kenna
skorti á þekktum lögum, ég skal
ekki segja. Gestir gerðu þó góðan
róm að flutningnum og í þetta
sinn var hljóðið í fínu lagi, ólíkt
því sem gerðist hjá Tilbury.
Kvöldinu lauk ég svo á allt öðrum
nótum, lét mig hafa það að fara
aftur inn á Þýska barinn að sjá
diskódrottninguna Þórunni Anton-
íu. Berndsen var henni til halds og
trausts og hópur ungra kvenna í
nágrenni við mig skríkti hvað eftir
annað þegar Þórunn kynnti lög til
sögunnar. Karlar stóðu stjarfir og
góndu á Þórunni en konur voru
öllu líflegri á gólfinu. Eini ljóð-
urinn á þessum tónleikum var að
Þórunn ávarpaði ekki gesti, að
undanskildu því að nefna hvaða
lag væri næst á dagskrá. Hvort
hún steig dans veit ég ekki, ég
rétt sá í höfuðið á henni.
Ég hafði ekki úthald í að bíða
eftir Ásgeiri Trausta en sá hann
hins vegar meðal tónleikagesta og
lét mér það nægja. Fínt fyrsta
Airwaves-kvöld þrátt fyrir kulda
og tæknilega örðugleika.
Sjóðandi RetroBot í skítakulda
» Fullt var út úr dyr-um og bjór þamb-
aður af gestum líkt og
bjórbanni hefði verið af-
létt fyrr um daginn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Huldumaður Gabríel með grímuna sína ásamt Valdimari og Opee.
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2012
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ég held að ég hafi aldrei verið
svona spenntur fyrir tónleikum á
Íslandi,“ segir Georg Holm, bassa-
leikari Sigur Rósar, en hljómsveitin
heldur lokatónleika Iceland Airwa-
ves á sunnudaginn í Laugardalshöll.
„Þetta verða öðruvísi Sigur Rósar-
tónleikar en við höfum nokkurn
tíma spilað hérna eða nokkurs stað-
ar annars staðar, í raun og veru.
Þetta verða flottustu tónleikar sem
við höfum spilað hingað til,“ segir
hann. Hljómsveitin sé að ná
ákveðnum hápunkti með þeim tón-
leikum.
Sigur Rós lauk fyrir skömmu níu
vikna tónleikaferðalagi um Banda-
ríkin, Evrópu og Japan og verður
meira eða minna á flakki um heim-
inn á næsta ári, að sögn Georgs.
Hann segir hugmyndavinnuna fyrir
tónleikaferðina hafa hafist u.þ.b. ári
áður en lagt var í hann og í apríl
hafi hljómsveitin hafið æfingar fyrir
hana, dustað af sér rykið eins og
hann orðar það. Spurður að því
hvort Sigur Rósar-menn hafi verið
ryðgaðir segir Georg að svo hafi
ekki verið og það hafi komið honum
á óvart. „Þetta er kannski svolítið
eins og að hjóla,“ segir hann. Vöðva-
minnið hafi tekið við.
– Hvernig hafa nýju lögin komið
út á þessum tónleikum?
„Þau hafa bara virkað mjög vel.
Við byrjuðum á að æfa fleiri lög
heldur en við spilum núna af nýju
plötunni en það var eiginlega af því
að við komumst að því að þau virka
ekki öll á tónleikum. Þetta er rosa-
lega mikil hljóðversplata og það er
ekki hægt að endurskapa öll lögin.
Sum þeirra hljómuðu bara ekkert
vel þegar við fórum að reyna að
spila þau,“ svarar Georg. Spurður
að því hvort erfitt hafi verið að fara
í svo langa tónleikaferð segir hann
að þvert á móti hafi hún verið „tóm
gleði“.
Erfiðara að spila heima
– Nú tala hljómsveitir stundum
um að erfiðara sé að spila heima en
erlendis. Finnst þér það?
„Alveg hiklaust. Það er alltaf
mesta pressan að spila heima, fyrir
framan vini og fjölskyldu. Þetta er
heimalandið og maður vill gera
þetta extra flott fyrir Íslendinga.“
Georg segir tónleikana í Höllinni
verða með nýju sniði og ólíka þeim
sem hljómsveitin hefur haldið á síð-
ustu mánuðum. „Útlitið á tónleik-
unum var í raun endurhannað al-
gjörlega frá grunni. Við fengum
eitthvert svaka „hot shot“ með okk-
ur áður en við lögðum af stað og svo
þegar við vorum komnir hálfa leið í
gegnum þessar níu vikur komumst
við eiginlega að því að þetta var
ekki það sem við vildum. Okkur
fannst þetta skref afturábak og ekki
nógu flott þannig að segja má að við
séum að fara alla leið með þetta
núna. Þetta verður rosa flott og al-
veg endurhannað frá grunni.
Svo erum við líka búnir að vera
duglegir að spila saman strákarnir
og byrjaðir að semja nýtt efni og að-
eins að taka upp. Það er eiginlega
útlit fyrir að við höldum því áfram
og rumpum einni plötu af.“
– Sem kemur þá út á næsta ári?
„Sem kemur á næsta ári. Hún
verður öðruvísi en allt sem við höf-
um gert áður, alveg „anti“-Valtari,“
segir Georg og hlær. Hljómsveitin
muni að öllum líkindum flytja nýtt
lag í Höllinni. Beðinn um nánari
skýringu á því hvað sé „anti“-
Valtari segir Georg að erfitt sé að
gefa hana. „Ég get alla vega sagt að
þetta er alveg ný stefna, alveg hik-
laust.“
Georg segir ákveðinn Sigur Rós-
ar-hljóm þó halda sér, hljóm sem
fólk kannist við en þeir félagar
reyni að þróa tónlistina í nýjar áttir.
„Þetta er ekki í líkingu við neitt sem
við höfum verið að gera áður.“
Tónleikahald næsta árið
Um tónleikana í Höllinni segir
Georg að mörg lögin verði þau sömu
og hljómsveitin hafi leikið í tón-
leikaferðinni, flutt verði góð blanda
af eldri lögum auk nýrra. „En
„show“-ið sem slíkt hefur verið end-
urhannað frá grunni. Það er voða
fátt eftir af því sem við höfum verið
með áður í kringum hvert lag. Við
erum að fara alla leið með þetta.“
– Munið þið svo halda áfram með
þessa tónleikaumgjörð?
„Já, þetta er í rauninni það sem
við ætlum að fara með áfram. Við
förum til Ástralíu í næstu viku og
Malasíu og nokkra aðra staði í Asíu.
Svo komum við heim fyrir jól, tök-
um okkur smá jólafrí og förum aftur
til Evrópu strax á næsta ári og
höldum áfram þangað til í nóv-
ember á næsta ári, eins og planið
er.“ Georg segir framtíðina bjarta
hjá Sigur Rós, hljómsveitin njóti
þess að spila saman og eigi nóg eft-
ir.
– Nú eru tónleikarnir ykkar orðn-
ir svo umfangsmiklir. Ætlið þið ekk-
ert að spila á Gauknum aftur?
Georg hlær. „Það er aldrei að
vita. Það gæti alveg gerst en það
gerist alla vega ekki á þessu ári.“
Tónleikar Sigur Rósar í Laug-
ardalshöll hefjast kl. 19.
Endurnýjuð Sigur Rós
Tónleikar í Höllinni með nýju útliti „Öðruvísi en allt
sem við höfum gert áður,“ segir Georg um næstu plötu
Bjartir Framtíðin er björt hjá Sigur Rós. Yfir 6.000 miðar hafa selst á tón-
leika hljómsveitarinnar í Laugardalshöll sem verða lokatónleikar Airwaves.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Bandaríska hljómsveitin Blouse, eða
Blússa, er önnur tveggja sem fóru
með sigur af hólmi í keppni kenndri
við styrktaraðila hennar, Reyka
vodka, og fólust verðlaunin í því að
koma fram á Iceland Airwaves.
Keppnin fór fram netinu og mark-
miðið að vekja athygli á lítt þekktum
og vönduðum, bandarískum hljóm-
sveitum en hin hljómsveitin sem boð-
ið var á hátíðina er Vacationer.
Hljómsveitina Blouse skipa söng-
konan Charlie Hilton, bassaleikarinn
Patrick Adams, gítarleikarinn Jacob
Portrait og trommarinn Paul Roper.
„Ég á vin sem býr hérna og hann
sagði mér frá hátíðinni fyrir um tíu
árum. Mig hefur alltaf langað á hana
og ég hef heyrt að þessi hátíð skipti
ykkur Íslendinga sífellt meira máli og
fari sívaxandi,“ segir Hilton.
– Hljómsveitin heitir Blússa.
Hvers vegna?
„Einn af strákunum í hljómsveit-
inni átti leið fram hjá fatahreinsun
þegar við vorum í upptökum fyrir
nokkrum árum og sá í glugganum
skilti sem á stóð „blússa“, af því
blússur eru, jú, hreinsaðar í fata-
hreinsunum. Við vorum þá að velta
fyrir okkur hvað hljómsveitin ætti að
heita og hann stakk upp á þessu,“
svarar Hilton. Þeim hafi þótt nafnið
gott, orðið vísi í eitthvað sem er
mjúkt, kvenlegt, sígilt, viðkvæmt og
jafnvel gegnsætt og hljómi vel.
– Á sú lýsing við um tónlist ykkar?
„Ég vona það,“ segir Hilton og
hlær. Hún kunni vel við að ákveðin
dulúð sé yfir nafninu.
– Hvers konar tónlist flytjið þið?
„Fólk kallar þetta draumapopp.
Ég er hryllilega léleg í að skilgreina
tónlist. Á fyrstu plötunni okkar not-
uðum við gamaldags hljóðfæri og hún
bar keim af tónlist níunda áratug-
arins, nýbylgjunni og við vorum undir
áhrifum af síðpönki. Við erum að
vinna að plötu núna og ég held að við
sækjumst ekki eftir því að verða ein-
hver ákveðin gerð af hljómsveit. Til-
raunamennskan fer vaxandi.“
Hófst í listaskóla
– Blouse var stofnuð í listaskóla?
„Jú, ég var að læra grafíska hönn-
un í Portland og hitti þar bassaleik-
arann, Patrick. Ég lék mikið tónlist á
æskuárum mínum með pabba mínum
sem var tónlistarmaður og því var
hún mér eðlislæg. Við fórum að
spjalla um tónlist en ég var þá nýflutt
frá Los Angeles. Þú veist hvernig
þetta er með tónlist, líkt og með ást-
ina þá getur maður ekki leitað að
réttu manneskjunni, þetta gerist fyr-
ir töfra. Þú verður ástfanginn, tónlist-
arlega séð.“
Hilton segist hlakka mikið til tón-
leikanna á Airwaves en þeir verða
haldnir á Þýska barnum í kvöld kl.
23.20. Um helgina mun Blússa svo
virða fyrir sér náttúruperlur lands-
ins, m.a. Gullfoss og Geysi. Frekari
upplýsingar og valin lög með Blouse
má finna á heimasíðu hljómsveit-
arinnar: blouseblouse.com.
Tónlistin og ástin
Blouse vann keppni Reyka vodka
og leikur á Iceland Airwaves í kvöld
Draumapopp Hljómsveitin Blouse, eða Blússa. Á myndina vantar trommu-
leikarann Paul Roper sem nýverið gekk til liðs við hljómsveitina.