Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 4
Steingrímur J. Sigfússon fjár-málaráðherra fór mikinn íFréttablaðinu á miðvikudag og vitnaði í vísu sem kveðin er í gangnakofum á haustin: Nóttin vart mun verða löng vex mér hjartastyrkur. Inni er bjart við yl og söng úti svartamyrkur. Þar brá Steingrímur fyrir sig kaldhæðninni. Myndin væri tákn- ræn fyrir það að stjórnarandstaðan drægi upp mynd af svartnættinu úti á meðan birta og ylur ríkti inn- andyra hjá fjölskyldum landsins „í fábreyttum húsakynnum og glöðum hópi“. Fjárlagahallinn Máli sínu til stuðnings vísaði Stein- grímur í fyrsta lagi til þess að í fjárlagafrumvarpinu væri einungis gert ráð fyrir 2-4 milljarða halla. Hallinn hefði hinsvegar verið 216 milljarðar árið 2008 og 140 millj- arðar ári síðar. En er dæmið svona einfalt? Tryggvi Þór Herbertsson hefur bent á að ef útgjöld séu reiknuð á greiðslugrunni, eins og Steingrímur geri er hann talar um fjárlög næsta árs, þá hafi einungis verið 24 millj- arða halli á fjárlögum ársins 2008. Ástæðan er sú að einskiptis- kostnaður eða óreglulegir liðir vegna bankahrunsins námu tæpum 200 milljörðum. Á greiðslugrunni bókast útgjöld inn á fjárlögin þegar greiðslan fer fram, en á rekstrar- grunni þegar stofnað er til skuld- bindinganna. Vilji Steingrímur tala um fjárlögin 2013 á rekstrargrunni, eins og hann geri er hann ræði um fjárlögin 2008, þá geti hann ekki sleppt því að taka með í reikning- inn 13 milljarða framlag ríkissjóðs til Íbúðalánasjóðs sem þegar hafi verið ákveðið. Við það bætist 54 milljarða gat á sjóði á næsta ári, auk þess sem forsendur kjarasamn- inga séu brostnar. Allt sé spennt til hins ýtrasta og gáttin muni bresta. Þegar þessi harði veruleiki blasi við verði myndin mun svart- ari en sú sem Steingrímur bregður upp með gangna- mannavísunni. Á móti heldur Steingrímur því fram að ekki þurfi að bókfæra framlagið til Íbúðalánasjóðs á fjár- lögum af því að með því sé verið að auka eigið fé sjóðsins. „En bók- haldslega séð verður auðvitað að bóka tapið einhvers staðar,“ segir Tryggvi. „Þar sem er debet, þar er kredit. Steingrímur er því að villa um fyrir fólki og þetta er algjör- lega glórulaus greining hjá hon- um.“ Fjárfestingar Það vakti athygli þegar haldinn var blaðamannafundur til að kynna fjárfestingaáætlun ríkisstjórnar- innar, en slíkt hefur almennt ekki tíðkast er ríkisstjórnir leggja fjár- lögin fram. Steingrímur segir þær fjárfestingar til marks um að svig- rúm hafi skapast hjá ríkissjóði. En það er ekki hafið yfir gagn- rýni. Samkvæmt úttekt Hagstof- unnar á fjármálum hins op- inbera frá því í september á þessu ári drógust fjár- festingarútgjöld hins opin- bera allnokkuð saman á árinu 2011, eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Þau „námu 29,5 milljörðum króna og lækkuðu um ríf- lega 15 milljarða króna milli ára og urðu 1,8% af lands- framleiðslu, sem er lægsta hlutfall á lýðveldistímanum. Fjárfesting ríkissjóðs lækkaði um rúmlega 10,3 milljarða króna og fjárfesting sveit- arfélaga um 5 milljarða.“ Þegar til þess er litið að fjárfest- ingar voru minnstar á lýðveldistíma virðast horfurnar ekki bjartar fyrir árin 2012 til 2014. Samkvæmt þjóð- hagsspá Hagstofunnar frá því í nóvember er gert „ráð fyrir að fjárfesting hins opinbera dragist saman á yfirstandandi ári … og er samdrátturinn um 11% í ár að raungildi …“ Og ekki virðist rofa mikið til á næstu árum eins og ráða má af þjóðhagsspá Hagstofunnar frá því í nóvember, sem birtist með grein- inni. Það er svo lesenda að gera það upp við sig hvort framundan er birta eða myrkur í íslensku efna- hagslífi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Birta eða myrkur? STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON SEGIR YL OG SÖNG Í FJÁRLAGAFRUMVARPINU OG AÐ STJÓRNARANDSTAÐAN DRAGI UPP OF SVARTA MYND AF ÁSTANDINU. STJÓRNARANDSTAÐAN SAKAR STEINGRÍM UM VÍSVITANDI BLEKKINGAR. Steingrímur J. Sigfússon Fjárfesting hins opinbera 2004-2014 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 20 14 5 4 3 2 1 0 Hlutfall af vergri landsframleiðslu % A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins upp á 54 milljarða, sem eðlilegt sé að bóka strax. Þá sé vit- að að meira tap verði á Íbúðalána- 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012 Töluverð óvissa er framundan, að því er fram kemur í Hagsjá hag- fræðideildar Landsbankans, en þar segir: „Þó að staða fjárlagafrum- varpsins líti formlega vel út eftir aðra umræðu [á Alþingi] er engu að síður um að ræða verulega óvissu um mögulega útgjaldaaukningu rík- isins. Þar má nefna vanda Íbúða- lánasjóðs og Lánasjóðs íslenskra námsmanna, mögulegan kostnað vegna reksturs Hörpu tónlistarhúss, niðurstöðu Icesave-málsins, og hækkun fjármagnskostnaðar.“ Lakara en lagt var upp með Einnig er á það bent að niðurstaða ríkisreiknings varð um 40 millj- örðum lakari en niðurstaða eftir fjáraukalög bæði árin 2010 og 2011, og 25 milljörðum lakari en endanleg fjárlög kváðu á um á árinu 2010 og 53 milljörðum lakari en á árinu 2011. „Með samþykkt fjáraukalaga eru þegar komnar fram upplýsingar um lakari niðurstöðu fyrir 2012 en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Sé einnig vísað til þess að kosningavetur sé framundan er full ástæða til þess að vera á verði varðandi útgjöld ríkisins á næsta ári.“ Hvað hangir á spýtunni? Í skýrslu IFS-greiningar segir að Íbúðalánasjóður þurfi samtals 48 milljarða framlag frá ríkissjóði á næstu 3-5 árum. Þar af 33 milljarða stofnfjárframlag sem greitt yrði út í áföngum eftir þörf, 20 milljarða þeg- ar á þessu ári. Um það segir í Hagsjá: „Rætt hefur verið um að fjármagna útgjöld til ÍLS með út- gáfu skuldabréfs þannig að bein út- gjöld sjást ekki vel. Yrði framlagið fjármagnað með útgáfu skulda- bréfs … yrði vaxtakostnaður á árinu 2013 tæpar 900 milljónir og endur- greiðsla miðað við 20 ára endur- greiðsluferli 650 milljónir. Þessi að- gerð felur því í sér beinan útgjalda- auka upp á rúman einn og hálfan milljarð króna strax á næsta ári. Væri álíka aðferð beitt við lífeyris- skuldbindingar ríkisins, sem munu nema u.þ.b. 400 milljörðum um næstu áramót, yrði árlegur kostn- aður um 47 milljarðar. Þetta eru tvö dæmi um dulinn kostnað sem skatt- greiðendur standa frammi fyrir og stjórnmálamenn virðast forðast að ræða um af fullri alvöru.“ Búist er við að ríkið leggi 48 milljarða í Íbúðalánasjóð á næstu árum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Óvissa um útgjöldin „Við þurfum að standa skil á 370 milljörðum í vaxtagjöld á næstu fjór- um árum og mér sýnist ríkisstjórnin ætla að fresta því að greiða niður skuldir til að létta á vaxtabyrðinni,“ segir Bjarni Benediktsson um útlitið í fjár- lagafrumvarpinu. „Maður hlýtur að spyrja: Hvernig lítur Ísland út ef ekki verður hagvöxtur? Það gerist ekkert af sjálfu sér, þetta reddast ekki, vaxtagreiðsl- urnar hverfa ekki. Og getan til að mæta launakröfum eða skuldavanda heimilanna fer hverfandi með hverjum mán- uði sem líður. Um leið drög- umst við aftur úr í samkeppni við Norðurlönd. Horfur eru ekki góðar í sjávarútveginum og útlit er fyrir samdrátt í ferðaþjónustu. Þetta er stóra samhengið. Og við blasir að við þurfum að búa í haginn fyrir nýjar fjárfestingar og stuðla að vexti í atvinnulíf- inu.“ HVAÐ ER FRAMUNDAN? Bjarni Benediktsson * „Þetta eru glórulaus fjárlög. Ég hefaldrei áður séð slíkar blekkingar.“ Tryggvi Þór Herbertsson ÞjóðmálPÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.