Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 46
H ljómsveitin Retro Stefson var á dögunum tilnefnd til Nor- rænu tónlistarverðlaunanna fyrir samnefnda plötu sína. En mikill uppgangur hefur verið hjá hljómsveitinni síðan hún gerði samn- ing við Universal í fyrra. Í framhaldinu varð hún vinsæl á tónleikahátíðum í Þýskalandi, Sviss, Austurríki og nokkrum löndum Mið- og Austur-Evrópu. Aðeins eru sjö ár síðan hljómsveitin var stofnuð og með tilliti til ofangreinds árangurs er skemmtilegt að horfa til þess hvernig hún varð til. Retro Stefson hóf göngu sína í Austurbæj- arskóla. Þá langaði Unnstein Manuel Stefáns- son á Samfésballið og það var hægt að kom- ast frítt inn á það með því að vinna söngvakeppni Samfés. Hann valdi þá vini sína sem hann langaði til að skemmta sér með á ballinu í hljómsveitina og var ekki horft til þess hvort þeir kynnu mikið á hljóðfæri eða ekki. Sjö árum síðar er hljómsveitin orðin þekkt á erlendri grundu. hljómsveitarmeðlim- irnir hafa bætt verulega leik sinn á hljóð- færin. Það sást strax á fyrstu plötunni þeirra, Montana, sem kom út fyrir fjórum árum. Árið 2010 kom síðan út önnur plata þeirra, Kim- babwe og vakti mikla athygli. Það var „tjilluð“ tilfinning í lögunum á Kimbabwe en sveitin lagði ekki mesta metnaðinn í textasmíðina heldur góðan fíling. Hljómsveitin fullorðnast Margir sem mættu á tónleika hljómsveitar- innar á Airwaves-hátíðinni í Hörpunni sáu allt í einu fágaða hljómsveit sem spilaði ekki jafn mikið á stráksgleðina og áður. Lög hljóm- sveitarinnar voru þéttari og vandaðri og sam- dóma álit að hún væri að taka stórstígum framförum. Eins og einn áhorfandinn orðaði það; „Það er eins og hljómsveitin hafi full- orðnast. Allt í einu er þetta orðið rosa gott band.“ Unnsteinn Manúel Stefánsson, söngvari og aðaltextahöfundur sveitarinnar, segir að slíkar umsagnir komi honum ekki á óvart. Þeir hafi gefist upp í sköpuninni með báðar hinar plöt- urnar og bara gefið þær út. En í þetta skiptið var hann búinn að gefast upp þrisvar sinnum áður en hann var orðinn sáttur við útkomuna. Þegar Retro Stefson gerði samning við Vertigo, eitt undirfyrirtækja Universal, fór boltinn að rúlla. Útsendari Vertigo heyrði fyrst í Retro Stefson á Airwaves-tónleika- hátíðinni fyrir nokkrum árum og fylgdist með henni í nokkurn tíma áður en gerður var samningur við hana. Hljómsveitin fluttist öll út til Berlínar og hefur gengið vel að fóta sig á þeim stóra markaði. Þjóðverjar borga möglunarlaust Aðspurður hvers vegna þeir hafi frekar valið Þýskaland en Bretland til dæmis, segir Unn- steinn að það séu margar ástæður fyrir því. „Það er margt sem gerir þetta þægilegra fyr- ir okkur þar heldur en í Bretlandi, eins og til dæmis að stéttarfélagavitundin er svo sterk þar. Maður fær borgað fyrir allt, það er alltaf matur baksviðs og þess háttar en þessir hlutir eru oft ekki í lagi í Bretlandi.“ Unnsteinn segir að þeir hafi spilað í fjögur eða fimm skipti í Bretlandi og það hafi ekki allt verið slæmt. „Þegar við spiluðum í Koko í London á tónleikum sem tónlistartímaritið NME skipulagði var staðið við allt og mikil fagmennska í gangi í kringum tónleikana. En það besta sem við kynntumst í Bretlandi var bara eins og hverjir aðrir tónleikar í Þýska- landi, því þetta er alltaf þannig hjá þeim. Það er algengt í Bretlandi að starfsfólkið sé dóna- legt við þig, þú fáir ekki borgað og það sé enginn standard á hljóðkerfunum og ekki búið að undirbúa neitt af því sem beðið var um. Mér finnst reyndar áhorfendurnir svipaðir á báðum stöðum, þeir eru mjög áhugasamir um íslenska tónlist. Svo er mikill munur á Íslandi og Þýska- landi með skipulagninguna. Á Íslandi er alltaf verið að redda öllu en þannig er það ekki í Þýskalandi. Ef þú ert ekki búinn að biðja um það tveimur vikum fyrir tónleikana þá færð þú það ekkert á sviðið þegar þeir eru að byrja. Ein af minningunum frá Þýskalandi er þeg- ar við vorum með bókaða tónleika í ein- hverjum smábæ í Þýskalandi en á Íslandi færðu þeir Airwaves-tónleikana með það sem myndi kallast mikill fyrirvari á Íslandi, hálfu ári áður en tónleikarnir áttu að fara fram. En þá vorum við bókaðir í þessum smábæ og af- bókuðum okkur vegna Airwaves-tónleikana. En þeir urðu brjálaðir vegna þessa. Þeir voru með planað Íslendingakvöld og hátíð í gangi og það er enn talað um þetta þar. Það er erf- itt að skýra þetta út fyrir þeim, en Airwaves er þannig hátíð að það er eins og 17. júní okk- ar tónlistarmanna á Íslandi og því miður lenti þetta á sama tíma. Þetta hefur verið mjög lærdómsríkt. Við er- um farnir að skipuleggja okkur meira á þýsk- an hátt núna.“ Hálfberir á tónleikunum Spurður um menningarmuninn og menningar- árekstra sem hljóta að vera tíðir þegar Ís- lendingurinn fer af hólnum sínum og út í heim að sjá aðra siði og kynnast undar- legheitum annarra og sjá undarlegheitin í sjálfum sér, segir hann að auðvitað séu menn- ingarárekstrar tíðir en sjaldan alvarlegir. Aðallega upplýsandi og gleðilegir. „Mér fannst til dæmis mjög gleðilegt þegar ég fór til Tyrklands og maður kynntist því hvers konar menningarþjóð þetta var, því hér í Þýskalandi eru Tyrkirnir næstum því annars flokks þegnar. Viðhorf gagnvart Pólverjum á Íslandi er líka enn meira pirrandi eftir að hafa túrað þar og fundið hvað þetta er falleg þjóð og hvað saga þeirra og menning er mikil. Það skal enginn fá að tala illa um Pólverja í mín eyru. Þetta er allt upplifun sem er gott og gaman að ganga í gegnum. Tónleikarnir á þessum stöðum gengu mjög vel. Það er reyndar minnisstætt hvað það var mikill hiti á tónleikunum í Póllandi, rétt eins og í Króatíu þegar við héldum tónleika þar. Manni leið miklu betur í slíkum aðstæðum heldur en heima á Íslandi þar sem er alltaf svo kalt. Ég er frekar viðkvæmur fyrir kulda. Gaman að fá að vera í hlýrabol á sviðinu og Haraldur næstum því allsber alla tónleikana.“ Í kjól og strigaskóm Retro Stefson fór í febrúar í fyrra út til Þýskalands á túr og var að hita upp fyrir breska hljómsveit sem heitir The Go! Team. Svo fóru þau aftur í apríl á túr og voru þá marga mánuði. Þann tíma voru þau með tón- leika tvisvar til þrisvar í viku víða um Þýska- land en höfðu alltaf búsetu í Berlín. Spurður um menningarmuninn sem þau upplifðu segir hann að hann hafi vissulega verið nokkur. „Það er ótrúlegt pappírsstúss að redda sér íbúð og þess háttar í Berlín,“ segir Unnsteinn. „En Berlín er ótrúlega opin borg fyrir útlend- ingum og ýmiskonar afbrigðum manneskj- unnar. Við bjuggum í Tyrkjahverfi og ég var mestmegnis bara í íslamskri skyrtu, hálf- gerðum kjól og strigaskóm alla daga. Berlín er svo flott borg, þar er engin Gróa á Leiti. Svo framarlega sem þú ert ekki að bögga neinn, þá böggar enginn þig.“ Spurður um söluna á plötunum segir hann hana vera þónokkra ofan á launin. „Við fáum alltaf borguð laun fyrir tónleikana og í ofan- álag lágmark nokkra tugi sem við seljum af plötum á hverjum tónleikum. Í Berlín koma kannski 500 manns á Retro Stefson-tónleika. Þegar við erum að fara til Berlínar að spila förum við ekkert að spá í þetta fyrr en viku fyrir tónleikana en það er búið að vinna hell- ings kynningarvinnu fyrir okkur. Það er mjög Deilur eru skapandi RETRO STEFSON ER EIN VINSÆLASTA HLJÓMSVEIT LANDSINS OG VAR NÝLEGA TILNEFND TIL NORRÆNU TÓNLISTARVERÐLAUNANNA. UNNSTEINN MANÚEL STOFNAÐI SVEITINA Í AUSTURBÆJARSKÓLA EN BÝR NÚ Í BERLÍN. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Retro Stefson: Ingvi Seljeseth, Logi Pedro Stefánsson, Þórður Jörundsson, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Sveinbjörn Thorarensen. 46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012 SAMSTARF TIL GÓÐRA VERKA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.