Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012 Græjur og tækni MIKLU MEIRA EN MYNDAVÉL HUGSAÐU ÞÉR NETTENGDA MYNDAVÉL SEM NOTA MÁ TIL AÐ DEILA MYNDUM SAMSTUNDIS. NEI, ÉG ER EKKI AÐ TALA UM FARSÍMA, HELDUR NÝJA GALAXY-MYNDAVÉL FRÁ SAMSUNG SEM ER LÍKA ANDROID-LÓFATÖLVA. * Vinnsluminni í henni er 1GB (sérkennilegt að skrifa svo um myndavél) og geymsluminni, fyrir ljósmyndir og fleira, er 8 GB. Á henni er rauf fyrir microSD-minniskort, sem fáanleg eru allt að 64 GB. * Örgjörvinn er fjögurrakjarna 1,4 GHz Cortex-A9. GPS er innbyggt, hreyfiskynjari og áttaviti. Myndavélin sem ég prófaði var hvít, en hægt að fá hana líka svarta, bleika og app- elsínugula. Á vélinni er Micro- USB-tengi og einig HDMI-tengi. Hún spilar myndskeið á ýmsum sniðum og einnig tónlist, allt frá MP3 í FLAC. * Samsung Galaxy-mynda-vélin er ekki beinlínis nett, 12,8 x 7 x 1,9 cm, og þægilega þung, 300 g skjárinn á bakinu er mjög bjartur og góður snertiskjár með Multitouch, 4,8", 720 x 1280 dílar. Glerið styrkt Corning Gorilla Glass 2. Farsímar og spjaldtölvur eru brúkleg sem myndavélar, sum velbrúkleg en flest nógu góð ef svo má segja. Það sem gerir þógæfumuninn er annars vegar að maður er alltaf með farsímann á sér hvort eð er og svo hitt að úr farsíma er sáraeinfalt að deila myndum, senda, setja á facebook eða bloggsíðu svo dæmi séu tekin. Það skiptir ekki höfuðmáli þó myndin sé ekki frábær ef maður getur notað hana strax, augnablikið skiptir máli! Hvað segja menn þá um nettengda vasam- yndavél sem tekur frábærar myndir? Til að mynda vél eins og Samsung Galaxy-myndavél- ina sem er eins- konar bræðingur af lófatölvu og fyrirtaks myndavél? Það að Samsung noti Galaxy-nafnið á myndavélina kemur ekki á óvart í ljósi þess að Galaxy-línan er vinsælasta far- símalína heims, en það á líka við ef litið er aftan á myndavélina því þar er ekki bara að finna frábæran skjá til að stýra vélinni og skoða myndir, heldur breytir maður henni með einum smelli í Android-lófatölvu. Á vélinni er Android v4.1 (Jelly Bean) og notendaskilin TouchWiz sem margir þekkja af Sam- sung-símum. Hægt er að uppfæra stýrikerfið líkt og á farsímum al- mennt. Það segir kannski sitt um hvað fólki finnst eðlilegt að taka myndir á farsíma að fjölmargir spurðu mig: Af hverju er ekki hægt að hringja með henni? Og skeyttu lítið um það hve afkáralegt það er að vera með myndavél við eyrað aukinheldur sem ólík- legt er að nokkur myndi nota hana sem síma þó það væri hægt. Flest annað má þó gera, eins og til að mynda skoða og skrifa póst, vafra um vefinn, senda SMS, og spjalla á Skype. Vélin er með 16,3 Mdíla mynd- flögu, 4.608×3.456 díla. Hún er með sjálfvirkan fókus hvort sem verið er að taka ljósmyndir eða myndskeið og 21x aðdrátt í 23 mm linsunni. Flass smellur upp þegar þess er þörf. Hún tekur 1080p vídeó 30 ramma á sek., og 768x512 vídeó 120 ramma á sek. Hún er með innbyggt þráðlaust net og rauf fyrir 3G / 4G kort. ÁRNI MATTHÍASSON Græja vikunnar Árið sem leið á netinu FACEBOOK, TWITTER OG GOOGLE GERÐU UPP ÁRIÐ 2012 Í VIKUNNI OG SENDU FRÁ SÉR TÖLUR UM ÞAÐ SEM NOT- ENDUR TÖLUÐU MEST UM OG LEITUÐU MEST AÐ. FÁTT KEM- UR Á ÓVART Í ÞEIRRI UPPTALNINGU EN ÞAÐ ER GAMAN AÐ HORFA TIL BAKA YFIR ÁRIÐ MEÐ AÐSTOÐ TÆKNIRISANNA. Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com Í síðastliðinni viku gerðu fyrirtækin Facebook, Twitter og Google upp árið 2012, og sendu frá sér tölur um hvað notendur þeirra töluðu mest um, eða leituðu mest að, á þessu ári. Það er í sjálfu sér fátt sem kemur á óvart í þeirri umfjöllun, en það er gaman að horfa til baka yfir árið með aðstoð þessara tæknirisa. Árið 2012 hefur verið ákaflega viðburðarríkt ef horft er til heimsatburða sem settu mark sitt á leit og samfélagsmiðla. Á árinu voru bæði Ólympíuleikar, Evrópumót í knattspyrnu, kosningar í Banda- ríkjunum. Dauðsföll og náttúruhamfarir var líka vinsælt efni. Allt skapar þetta mikla umfjöllun á samfélagsmiðlum. Þessi atburðir settu líka mark sitt á leit, en það gerði tæknin líka. Google var oft spurt um nýjustu vörur Apple og tölvuleikinn Diablo 3, svo dæmi sé nefnt. Alls voru gerðar 1,2 trilljón (1.200.000.000.000.000.000) leitir á Google á árinu 2012. Hér eru nokkrar per- sónur, atburðir, og hlutir sem settu mark sitt á árið 2012. www.google.com/zeitgeist/2012 | www.facebookstories.com/stories | www.2012.twitter.com ÁRSLISTARNIR Leitað að látnum Fráfall söngkonunnar Whitney Houston síðastliðinn febrúar vakti heimsathygli. Nafn hennar var það sem oftast var slegið inn í leitarvélar Google á þessu ári. Hún er ein af fjórum per- sónum sem ná inn á topp 10 lista Google. Leikarinn Michael Clarke Duncan lést á árinu og náði fyrir vikið níunda sæti á lista Goolge. Sorglegt fráfall Amöndu Todd er í áttunda sæti. Todd var 15 ára stúlka frá Vancouver í Kanada sem féll fyrir eigin hendi eftir að hafa lýst einelti og misnotkun með aðstoð handskrifaðra spjalda í einhverju sorglegasta myndbandi sem fram hefur komið á YouTube. Eina manneskjan sem náði á topp tíu hjá Google og er á lífi til segja frá því er Kate Middleton hertogaynja. Hún er í sjötta sæti. Vinsælasta tíst ársins Barack Obama, forseti Banda- ríkjanna, átti vinsælasta tíst árs- ins 2012. Þegar niðurstöður úr forsetavali Bandaríkjamanna lágu fyrir hinn 7. nóvember tísti Obama „Four more years“ ásamt mynd af sér og Michelle Obama í faðmlögum. Þetta tíst var endurtíst meira en 810.000 sinnum og rúmlega 300.000 manns hafa merkt það sem eftirlætis-tíst. Þetta var ekki einungis vinsælasta tíst ársins, heldur vinsælasta tíst í sögu fyrirtækisins. Og það voru ekki bara Bandaríkjamenn sem sam- glöddust Obama, því notendur í meira en 200 lönd- um endurtístu það. Í öðru sæti var Justin Bieber. Hann kvaddi Avalönnu Routh, sex ára aðdáanda sem lést af völdum heilaæxlis, með orðunum: „Hvíl í friði Avalanna. Ég elska þig.“ Rúmlega 200.000 þúsund aðdáendur Biebers tóku undir kveðjuna. Tíst frá skrýtnum stöðum Það var víða tíst árið 2012. Leikstjórinn James Cameron sendi frá sér tíst af hafsbotni. Nánar tiltekið af 10,9 km dýpi úr Maríanadjúpdalnum í Kyrrahafi sem er dýpsti hluti hafsins. Fjall- göngumaðurinn Nobukazu Kuriki tísti um ferð sína á tind Everest-fjalls, en hann varð frá að hverfa vegna kulda áður en hann náði topp- num. Starfsfólk Alþjóðlegu geimstöðvarinnar tísti meðal annars með mikilfenglegum mynd- um af fellibylnum Sandy. Þá sendi rannsóknar- farartækið Rover tíst frá plánetunni Mars. Bækurnar á Facebook Í ljósi mikillar umræðu um skáldsöguna 50 gráir skuggar hefði verið freistandi að álykta að það væri sú bók sem mest hefði verið rædd á síðum Facebook. Hún nær hins vegar einungis 4. sæti. Á undan henni eru allar þrjár bækurnar í þríleiknum um Hungurleikana. Þessi skipting endurspeglar þó mögulega ald- urssamsetningu notenda Facebook öðru fremur. Vinsælustu lögin á Facebook Það var hljómsveitin Fun sem átti það lag sem oftast var deilt á Facebook árið 2012. Lagið We are Young skákaði þar með Somebody That I Used to Know með Gotye og Call me, Maybe með Carly Rae Jespen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.