Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012 Ferðalög og flakk OPNUNARTÍMI: Laug. 15. des . 10-18 • Sunn. 16. des . 13-18 • Mán. 17. t i l sunn 23. des . 10-22. Aðfangadag 10-13 • Sími : 558 1100 WRITEX vegghillur Litur: Svartlakkaður viður einnig til hvítar. B: 63 H: 183 cm. Verð KR. 19.990 SÖDAHL AKRÍL-DÚKAR Br. 140 cm. Metravara. Má þvo í þvottavél. Mikið úrval. Verð KR. 5.990 Metraverð NÝIR JÓLADÚKAR KERTASTJAKI 5 arma Verð KR. 5.990 SÖDAHL DÚN- FYLLTIR PÚÐAR Margar stærðir og mikill fjöldi munstra og mynda. Verið má þvo í þvottavél. Verð frá KR. 4.990 „JÁ NÚ ER KÁTT Í HÖLLINNI, HÖLLINNI, HÖLLINNI ...“ G eimnálin og Pikes-fiskimark- aðurinn eru líklega kunnustu kennileitin í stórborginni Seattle. Ef til vill mætti einnig nefna húsbátinn úr hugljúfu gamanmyndinni Svefnlaus í Seattle eða „Sleepless in Seattle“ með Meg Ryan og Tom Hanks. En margir ferðamanna sem leggja leið sína til borgarinnar fara beint í Ell- iott Bay-bókabúðina, sem er hálfgerð goðsögn meðal þeirra sem elska pappír í kápum og státar af 150 þúsund bóka- titlum í hillum. Ástæða vinsældanna er margþætt, ekkert síður en flókin morðgáta Agöthu Christie eða harmleikur Shakespeares. Fyrir það fyrsta er notalegt að ráfa um búðina eða setjast og drekka í sig for- vitnilega bók, innan um hina nautn- þyrstu lesendurna, og gleyma bæði stund og stað. Sumir óttuðust reyndar að flutning- urinn úr gamalli og fallegri byggingu í fáförnu hverfi við Pioneer Square yfir í hálfgert verksmiðjuhúsnæði í manngrú- anum á Capitol Hill myndi spilla and- rúminu í búðinni, en svo virðist sem andinn hafi haldist á nýja staðnum. Annað sem heillar við búðina eru miðarnir sem standa út úr bókunum með umsögnum starfsfólks, sem hefur sökkt sér í bækurnar og skrifað eitt- hvað um þær frá eigin brjósti. Starfs- fólkinu er gert hátt undir höfði og það er engin tilviljun, því það á það sam- merkt að hafa lesið bækur og maður kemur yfirleitt ekki að tómum kofunum hjá því. „Þessi ljóð eru þung eins og fjaðrir og mjúkar eins og koss sprautunálar,“ skrifar Dave um ljóðabókina „Chronic: Poems“ eftir D.A. Powell. En í uppá- haldi hjá honum er bókin „Cloister Walk“ eftir Kathleen Norris og um hana skrifar hann: „Þessi bók hefur allt til að bera! Sögu, ljóð, minningar, bæn- ir, femínisma, játningar, dýrlinga, bók- menntir & gagnrýni, dreka – ójá! Dreka.“ Svo er margt fleira í búðinni sem maður á að venjast heiman frá, kaffihús sem reyndar er ekkert sérlega vistlegt og mun ónotalegra en hið upprunalega Elliott Bay Café, auk upplestrarrýmis þar sem höfundar lesa úr verkum sín- um. Mér virtist fjöldinn svipaður og á Fróni á þeim upplestrum sem ég fylgd- ist með en víst eru þeir tíðari vestra. Þá er sérhilla með árituðum bókum, eins og farið er að tíðkast hér á landi. Allt miðar það að því að gera pappírinn sem eigulegastan til að keppa við raf- bækurnar, en ekki síður annan stáss- varning. Miðborg Seattle eins og hún blasir við úr Geimnálinni. Hlýtur að vera hressandi að vinna við gluggaþvott í borginni! Elliott Bay-bókabúðin er dálæti allra bókaunnenda. Bókabúð nautnþyrstra lesenda ÓRJÚFANLEGUR HLUTI AF ÞVÍ AÐ LESA BÓK ER AÐ FINNA EIRÐ Í SÁLINNI TIL AÐ SETJAST NIÐUR MEÐ RITHÖFUNDUM OG SKÁLDUM – SJÚGA BLEKIÐ ÚR FINGRUM ÞEIRRA. VANDFUNDIÐ ER VÆNNA UMHVERFI FYRIR NAUTNÞYRSTA LESENDUR EN ELLIOTT BAY-BÓKABÚÐIN Í SEATTLE. Texti og myndir: Pétur Blöndal pebl@mbl.is Geimnálin er eitt helsta kennileiti stórborgarinnar Seattle. AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.