Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012 HEIMURINN VENESÚELA CARACAS Hugo Chavez, forsetiVenesúela, tilkynnti að hann væri kominn með krabbamein á ný og sagði að Nicolas Maduro varaforseti yrði eftirmaður sinn. Síðan fór hann til Kúbu í sex kluk- kustunda aðgerð, sem gekk ekki snurðulaust, en var sagður á batavegi að henna lokinni. ÍTALÍA RÓM Mario Monti, forsætisráðherra utanþingsstjórnar Ítalíu, kvaðst mundu segja af sér í lok árs þegar atkvæði hefðu verið greidd um fjárlög næsta árs eftir að flokkur Silvios Berlusconis, fyrrverandi forsætisráðherra, ákvað að hætta stuðningi við stjórnina. Ber- lusconi, sem á dögunum áfrýjaði dómi fyrir skattsvik, lýsti yfir því að hann ætlaði að hella sér út í pólitík að nýju á komandi ári.Aðeins sjö vikur eru síðan hann kvaðst hættur í pólitík. MALÍ BAMAKO Herinn steypti forsætis- ráðherra Malí, Cheick Modibo Diarra, af stóli og sagði hann af sér í sjónvarpi um miðja nótt.Valdaránið var fordæmt víða um heim. Forsetinn situr áfram og íslamskir bókstaftrúarmenn ráða enn yfir norðurhluta landsins. NORÐUR-KÓREA PYONGYANG Norður- Kóreumenn skutu gervihnetti á braut um jörðu. Fyrri tilraunir þeirra til þess höfðu misheppnast. Geimskotið er hluti af eldflaugaáæt- lun landsins, sem gengur út á að þróa langdrægar sprengjuflaugar. Kim Jong Un, einræðisherra landsins, var gagnrýndur harkalega erlendis fyrir að skjóta gervihnettinum á loft, en hlaðinn lofi heima fyrir. Verslunarkeðjan Ikea breiðistút sem aldrei fyrr. Á tímumsamdráttar víða um heim hefur fyrirtækið tvöfaldað umsvif sín í fjárfestingum. „Þetta er hægt vegna sterkrar fjárhagslegrar stöðu og framsýns eiganda,“ sagði Anders Bylund, talsmaður Inter Ikea, sem á réttinn á vörumerki fyrirtækisins við sænska viðskipta- dagblaðið Dagens Industri fyrr í mánuðinum. Hann sagði að fyrirtækið ætlaði að fjárfesta fyrir rúmlega fjóra milljarða sænskra króna (76 millj- arða íslenskra króna) á ári. Slá út McDonald’s Umsvif Ikea eru með ólíkindum. Daglega kaupa viðskiptavinir fyrir- tækisins 7,5 milljónir flata pakka með ósamsettum húsmunum. Það er einni milljón meira en hamborg- ararnir, sem skyndibitakeðjan McDonald’s selur á hverjum degi. 338 verslanir eru reknar undir nafni Ikea í 41 landi. Allir þekkja vörumerkið í sænsku fánalitunum, bláa stafina á gulum grunni. Í bæklingi, sem fyrirtækið dreifir til starfsmanna og birgja segir að Ikea líti svo á að starf þess hafi „fyrst og fremst félagslegt“ gildi og ætlunin sé inna af hendi „mikil- vægt framlag til eflingar lýðræðis“. Ingvar Kamprad, stofnandi Ikea, sagði einhverju sinni að fyrirtækið ætti að skapa fólki „betri kjör í daglegu lífi“. Ímynd fyrirtækisins passar þó ekki alltaf við raunveruleikann. Í fyrsta lagi er lítið sænskt við Ikea, þótt nöfnin á vörunum og kjötboll- urnar í veitingasölunni gefi annað til kynna. Að baki Ikea er flókinn vefur margra fyrirtækja, sem flest hafa aðsetur í Hollandi, en einnig í Lúxemborg, Liechtenstein, Dan- mörku og hollensku Antilla-eyjum. Kamprad keikur Kamprad, sem orðinn er 86 ára gamall, er til heimilis í Sviss og var greint frá því í lok nóvember að hann væri ríkasti íbúi landsins og jafnframt fimmti ríkasti maður- inn á plánetunni jörð. Sagði í sviss- neska viðskiptatímaritinu Bilan að hann væri metinn á 39 milljarða svissneska franka (5,3 billjónir króna). Kamprad á þrjá syni, sem í ár- anna rás hafa látið æ meira að sér kveða innan fyrirtækisins, en faðir- inn kveðst hins vegar engan veginn sestur í helgan stein. Kamprad stofnaði Ikea 1943 í heimabæ sín- um, Älmhult í Svíþjóð. Ikea framleiðir vörur sem falla að smekk flestra, auk þess að vera hagstæðar í verði. Þess utan hefur Ikea á sér ímynd félagslegrar með- vitundar og rétthugsunar. Ekki er þó alltaf allt sem sýnist í þeim efnum. Í nóvember viðurkenndi fyrir- tækið að birgjar þess hefðu notað pólitíska fanga og afbrotamenn í nauðungarvinnu í Austur- Þýskalandi til að framleiða fyrir sig fyrir 25 til 30 árum. Jafnframt væri ljóst að yfirmenn Ikea vissu að líklegt var að pólitískir fangar hefðu unnið að smíði húsmunanna. Sögðust forsvarsmenn fyrirtækis- ins harma þetta og bættu við að staðlar fyrirtækisins hefðu ekki verið jafn strangir í þá daga. Erfitt að lúta eigin kröfum Ikea setur sér strangar kröfur um aðbúnað verkamanna og umhverf- isvernd, en leggur um leið áherslu á að framleiða ódýra vöru. Ekki er hægt að útiloka að þar fari eitt- hvað úrskeiðis þótt yfirmaður fyr- irtækisins í Þýskalandi hafi sagst að nánast 100% öruggt sé að það, sem gerðist í Austur-Þýskalandi, gæti ekki gerst aftur. Hollensk stofnun, sem rannsakar fjölþjóða- fyrirtæki, gerði úttekt á vinnuskil- yrðum birgja Ikea í Bangladess og Taílandi og komst að þeirri niður- stöðu að laun og vinnutími stæðust ekki alltaf þær kröfur, sem fyrir- tækið setti sér sjálft. Slík tilfelli hafa komið upp víðar, þótt þau séu kannski ekki mörg miðað við umfang starfseminnar. Hjá Ikea horfa menn hins vegar í fleiri áttir. Nú reisir Ikea ný íbúðahverfi bæði í Hamborg og London. Hermt er að þær verði í háum verðflokki þannig að ólíklegt sé að væntanlegir kaupendur kaupi sér innanstokksmuni í Ikea. Þá ætlar fyrirtækið að opna hundrað hótel í það minnsta í Norður- Evrópu. Herbergin eiga að vera á hagstæðu verði og praktísk. Þar á Ikea-andinn að ráða ríkjum. Húsgagna- smiður heimsins ALLIR ÞEKKJA VÖRUMERKIÐ IKEA OG ÓFÁ HEIMILI ERU MEÐ INNANSTOKKSMUNI ÞAÐAN. ÓLÍKLEGT ER AÐ NOKKUR EINN AÐILI ANNAR SETJI JAFN MIKINN SVIP Á JAFN MÖRG HEIMILI Í HEIMINUM OG IKEA. Ingvar Kamprad, stofnandi Ikea, ásamt tveimur starfsmanna sinna við opnun nýrrar verslunar fyrirtækisins í Haparanda í Svíþjóð 15. nóvember. Kamprad er 86 ára, kveðst hvergi nærri hættur og útilokar að fyrirtækið fari á hlutabréfamarkað. AFP * „Ég á mikið starf óunnið og hef engan tíma til að deyja.“Ingvar Kamprad, stofnandi Ikea. Hann er 86 ára að aldri.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL kbl@mbl.is Þótt Ikea leggi áherslu á að fyrir- tækið sé ekki bara í viðskiptum heldur leggi áherslu á gildi á borð við jafnrétti, verða viðskiptasjón- armiðin stundum ofan á. Uppnám varð þegar í ljós kom að myndir af konum höfðu verið þurrkaðar út úr vörulista Ikea í Sádi-Arabíu. KONURNAR BURT TIL AÐ ÞÓKNAST SAUDUM

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.