Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012
Skrifaðu um jólin,“ sagði dóttir mín þegar égsat fyrir framan tölvuna í vikunni og veltifyrir mér efni þessa pistils. Meira með hug-
ann við of háa skatta, of miklar deilur í pólitíkinni
og nauðsynlega hagræðingu í opinberri stjórn-
sýslu – ákvað ég samt að líta upp og spyrja hvern-
ig henni þætti jólin eiginlega tengjast stjórn-
málum. Eitt augnablik hugsaði ég hvort ástandið
á mínu heimili væri hugsanlega orðið þannig að
unglingurinn minn gæti ekki einu sinni ímyndað
sér blessuð jólin ópólitísk.
En líkt og svo oft áður er yngri kynslóðin frjórri
og frumlegri en við álítum hana vera, því dóttir
mín svaraði um hæl: „Jólin tengjast öllu.“ Og þar
hafði ég það. Unglingurinn hugsaði þetta einfald-
lega á allt öðrum forsendum en ég. Hún var að
hugsa um gleðina, andrúmsloftið, spennuna og
þær góðu stundir sem fylgja aðventunni og
jólahátíðinni. Og þannig minnti hún mig á að þær
stundir eru nákvæmlega núna og að sjálfsögðu
eðlilegra að þær tengist öllu og meira að segja
sjálfum stjórnmálunum en öfugt.
Ég hef notið þeirrar gæfu að hitta óvenjumargt
kraftmikið, framsýnt og jákvætt fólk. Unga fólkið
hefur þó vakið sérstaka athygli mína. Ég held að
ég hafi verið sæmilega framsýn þegar ég var
yngri en ég var örugglega ekki með tærnar þar
sem þetta unga fólk okkar í dag er með hælana.
„Ég hef fyrir löngu ákveðið að ég vil verða
læknir og þess vegna legg ég mikið á mig í náminu
svo ég geti valið um framhaldsskóla,“ sagði ein 14
ára við mig. „Ég sótti um vinnu á leikskóla Hjalla-
stefnunnar vegna þess að mig langar að vinna
með börnum í framtíðinni og svo er hugmynda-
fræðin þeirra svo hvetjandi,“ sagði önnur, nýbúin
að ljúka stúdentsprófi, og bætti við að sig langaði
að kenna börnum íþróttir og fara til útlanda í nám.
Vinkona hennar brást þá fljótt við og sagði að hún
mætti nú ekki vera þar of lengi, þær þyrftu jú að
vera sem flestar heima á Íslandi og gera góða
hluti.
Það er vegna þessa unga fólks, vegna vonar-
innar sem í þeim býr og alls þess góða sem þau
geta gert fyrir land og þjóð, sem skyldan hvílir á
okkur að skapa þeim fjölbreytt tækifæri. Þau
tækifæri verða aðeins veitt með auknu frelsi, vali
og svigrúmi þeirra sjálfra. Með góðri og fjöl-
breyttri menntun; með hvatningu til frumkvæðis
og nýsköpunar í atvinnulífi og með ráðdeild en um
leið forgangsröðun í samfélagsþjónustu mun okk-
ur takast að viðhalda bjartsýni þeirra og fá þau til
að vinna með okkur að meiri velmegun allra.
Rannsóknir staðfesta að ungt fólk er að jafnaði
umtalsvert bjartsýnna en við sem eldri erum. Þau
sjá tækifæri þar sem við hin sjáum hindranir og
þau leyfa sér að horfa á verkefnin, skilgreina þau
og vinna að lausnum með öðrum hætti. Íslenskt
samfélag þarf á slíkum eiginleikum að halda. Við
þekkjum sannleikann í gamla máltækinu „hvað
ungur nemur, gamall temur“ en megum ekki
gleyma því að við getum líka lært af þeim sem
yngri eru. Lítum því alltaf upp frá verkefnunum
þegar þau kveðja sér hljóðs, hlustum á hvað þau
hafa að segja og gleymum því ekki núna á aðvent-
unni að „jólin tengjast öllu“.
Eldri nemur, yngri temur
* „Við getum líka lært afþeim sem yngri eru“
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is
Jólalögin og
undirbúningur
Börn stunda það
að breyta texta
á jólaögum til að
gera hann fyndn-
ari eða jafnvel
réttari. Anna
Hera Björns-
dóttir skrifaði á Facebook í vik-
unni: „Gústek 4 ára ofurleik-
skólastrákur: „Upp á stól dansar
mín amma, níu nóttum fyrir jól
með henni ég djamma“.
Bergþóra
Njála Guð-
mundsdóttir
skrifaði líka um
þetta: „„Hann
fékk bók og hún
fékk ekkert
minna...“ sönglaði sú níu ára í dag.
Ströng á svip.“
Jólagjafakaupin valda líka róleg-
asta fólki hugarangri, eins og Ebba
Guðný Guð-
mundsdóttir
skrifar: „Ok mér
hefur tekist að
stressa mig ekki
á rykinu, þrifum
almennt, tiltekt
og bakstrinum fyrir jólin... en ég er
að komast í smááá panikk ástand
yfir öllum jólagjöfunum sem ég á
eftir að finna og kaupa!! Hjálp!“
Hjálpin barst fljótt því ein vin-
kona hennar stakk upp á lausn.
„Latarbæjarbók á línuna og málið
er dautt:-),“ og fékk þetta góðar
viðtökur annarra fésbókarvina en
Ebba er einmitt höfundur upp-
skriftanna.
Tölur á tölvuöld
Óttar M.
Norðfjörð rit-
höfundur beið
eins og svo
margir aðrir eft-
ir því að klukkan
yrði 12 mínútur
yfir 12 þann 12. desember árið
2012. „Get í alvöru ekki beðið eftir
því að klukkan verði 12:12:12.
Klukkutími og 14 mínútur til
stefnu,“ skrifaði hann en stundum
fer ekki allt eins og planað var:
„Nei! Ég gleymdi að líta á klukkuna!
Klúður aldarinnar.“ Á Facebook
gekk líka mynd sem lýsti því yfir að
dagurinn væri alþjóðlegur dagur
hljóðmanna, einn tveir, einn tveir,
einn tveir...
AF NETINU
Marsibil Sæmundardóttir, kvik-
myndagerðarkona og fyrrum vara-
borgarfulltrúi Framsóknarflokks,
fagnaði því í fyrradag að hún væri
að leggja lokahönd á stuttmynd
sína sem hún hefur unnið dag og
nótt að síðustu vikur.
Erlingur Gíslason fer með aðal-
hlutverkið í myndinni en myndin
fjallar um Jón Jónsson, aldraðan
einstæðing, sem missti konuna
sína unga þegar hjónin voru enn
barnlaus. Í myndinni hefur Jón
búið einn í húsinu sínu alla tíð síð-
an og lifað lífi í föstum skorðum
daglegra venja þar til undarlegir
atburðir fara óviðbúið að sækja
hann heim.
Marsibil Sæmundardóttir vann Stuttmyndahátíðina í
Reykjavík í fyrra og er nú að ljúka nýrri mynd.
Marsibil með
nýja mynd
Hefð er orðin fyrir því að karlkyns nemendur í
nokkrum háskólum á Filippseyjum, félagar í
bræðralaginu Alpha Phi Omega, hlaupi naktir
um skólalóðina dag einn í desember.
Samkoman var fyrst skipulögð 1977 og hefur í
orði verið tengd fórnarathöfn en þar er þó engu
fórnað nema klæðunum. Og ekki koma menn
naktir fram fyrir frægðina, heldur er sprett úr
spori vegna góðs málefnis að mati stúdenta
hverju sinni; einhvers þess sem þeir telja að bet-
ur mætti fara í samfélaginu. Að þessu sinni er
hlaupið tileinkað þeirri von að þingkosningar á
næsta ári verði frjálsar og heiðarlegar. Ekki eru
allir sáttir við uppátækið; einn þingmanna lands-
ins krafðist þess fyrir nokkrum árum að ráðist
yrði í rannsókn á því hvort hlaupið stæðist lög.
„Óviðkunnanleg sýning á kynfærum karla,“
sagði þingmaðurinn, Aquilino Pimentel.
Ekki fyrir
frægðina
Hópur stúdenta í Ríkisháskólanum í Manilla
býr sig undir hið árlega hlaup á föstudaginn.
AFP
Vettvangur