Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 39
16.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Stacy
Keibler
í hvítum
kjól
á Miami.
Í allt of litlum
Gangnam
Style-jakka
Í
svartasta skammdeginu er ekki nóg að
skreyta heimili okkar hátt og lágt með fal-
legum ljósum. Við þurfum að skreyta okk-
ur sjálf og það gerum við með því að klæða
okkur fallega. Einn af þeim litum er hvítur.
Það birtir yfir okkur þegar við klæðumst hvítu
og liturinn lyftir okkur upp. Hvíti liturinn er
tákn hreinleikans og alls þess sem æðra er.
Þess vegna eigum við að klæðast hvítu í des-
ember. Það er ekki verra að blanda hvítu við
svart því það minnir óneitanlega á hina guð-
dómlegu Coco Chanel, móður allra lekker-
heita.
Í janúar 1968 klæddist hún hvítri Chanel-
peysu með svörtum bryddingum og skreytti
sig með hálsmenum. Peysan var frekar bein í
sniðinu og til þess að verða ekki eins og bolti í
laginu hafði hún vit á því að draga mittið inn
með belti, þótt hún væri í peysu yfir. Þetta er
einmitt eitt af þeim trixum sem íslenskar kon-
ur ættu að tileinka sér. Þegar myndin var tek-
in var frú Chanel 85 ára en hún hætti alls ekki
að klæða sig fallega þótt aldurinn færðist yfir.
Ef þið hnjótið um peysu í þessum stíl ættuð
þið að máta hana. Það er nefnilega svo gott að eiga fínar sparipeysur, sér-
staklega í desember, sem hægt er að klæðast yfir svarta einfalda kjóla og
önnur spariföt. Mörgum finnst hvítur litur fita en ef grunnurinn er svart-
ur og farið er í hvíta flík yfir gengur dæmið alveg upp.
Sjálfri finnst mér nánast allt sem minnir á Coco Chanel vera fallegt,
ekki bara föt. Þegar ég keypti mér bíl síðast féll ég einmitt fyrir honum
því hann er svo ansi Chanel-legur að innan. Svona getur maður verið
snar.
En aftur að hvíta litnum því rapparinn Psy er ansi töff í Gangnam
Style-myndbandinu. Þar skartar hann ýmsum fínum föt, meðal annars
hvítum smókingjakka. Ég gat ekki annað en brosað þegar ég sá mynd-
bandið því sjálf á ég nákvæmlega eins jakka. Jakkinn er ógur-
lega fínn, gott að nota hann við svartar buxur eða kjóla og
þannig verður maður ósjálfrátt ógurlega fínn. Það versta er
að síðast þegar ég mátaði jakkann komst ég varla í hann.
Ermarnar virðast hafa hlaupið vandræðalega mikið í
síðasta þvotti … eða eitthvað. Þangað til ermarnar
víkka eða eigin handleggir rýrna verð ég bara að
dást að honum inni í skáp.
Það er þó ekki bara Psy sem hefur hampað hvíta
litnum því stjörnurnar úti í hinni stórmerkilegu Holly-
wood eru duglegar að klæðast hvítu. Stacy Keibler,
kærasta George Clooneys, sem oft gengur undir
nafninu „gertælingarvopnið“, skartaði dásamlegum
hvítum kjól á dögunum þegar hún mætti í teiti á
Miami á Flórída. Hún nýtur þess að klæðast hvítu
á rauða dreglinum því það er hæpið að hún eigi
eftir að ganga upp að altarinu í hvítum kjól –
allavega ekki með honum. Svo mikið er víst.
Jólalínan
frá
Lancome.
Hvítur Gangnam Style
jakki við pallíettubuxur.
martamaria@mbl.is
Psy
í hvíta
jakkanum.
Coco Chanel í hvítum
jakka með bryddingum.
tö frandi gjafir
Frá Provence
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com
L’Occitane en Provence - Ísland
tö frandi gjafir
NCEFRá PROVE
3.100kr.
STURTUSÁPUSETT - 4 x 75 ML
Sturtusápa 75 ml - 850 kr.
Sturtukrem 75 ml - 950 kr.
Sturtuolía 75 ml - 1.050 kr.
2.250kr.
RÓSAÞRENNA
ROSE
Sturtusápa 75 ml - 850 kr.
Sápa 50 g - 500 kr.
Handkrem 30 ml - 1.150 kr.
3.100kr.
HANDKREMSÞRENNA
Handkrem 30 ml
1.150 kr.