Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2012
Föt og fylgihlutir
M
ikið hefur borið fögrum feldum þetta haustið, sem punt-
að hafa upp á ófá dressin á mannamótum og götum úti.
Ekki er úr vegi að benda þeim sem eiga eftir að kaupa
jólagjafirnar fyrir elskurnar sínar á að erfitt er að
klúðra málum með eins og einum loðkraga.
Feldir um axlir eða háls hafa átt miklum vinsældum að fagna
undanfarin misseri. Er margt vitlausara en að eiga einn slíkan til
að sveipa um hálsinn á köldum dögum, hvort sem haldið er í jóla-
glögg eða á Laugaveginn. Loðhúfur að hætti kósakka eru einnig
eilífðareign og fátt betra til að halda hita á annars köldum höfðum
í mesta skammdeginu. Pelsar og loðin vesti eru einnig ómetanleg
þegar frystir, hvort heldur um er að ræða dýrari týpurnar eða vin-
tage-flíkur sem fást oftar en ekki á góðu verði í verslunum á borð
við Rokk og rósir, Spútnik og Gyllta köttinn.
Hægt er að fá feldi í hinum ýmsu útgáfum, hvort heldur sem er
úr kanínuskinni, af ref, úlfi, mokkaskinni eða öðru. Þá hefur úrval-
ið af gerviskinnum sjaldan verið meira og fallegra, fyrir þá sem
ekki geta hugsað sér að ganga í alvöru skinnum samviskunnar eða
pyngjunnar vegna. Einnig skal bent á að í Hvítlist er hægt að
kaupa skinn í metratali auk silkiborða sem hægt er að festa á. Eitt
er víst, fátt er hlýrra að sveipa um sig í mestu vetrarhörkunum en
fallegur feldur, hvort sem hann er gamall og notaður, eða nýr.
Kolfinna Kristófers klæddist töff, hvítri slá
á Kjarvalsstöðum á dögunum.
Blaðamaðurinn Ellý með feld-trendið á
hreinu á snyrtivörukynningu fyrir skömmu.
MJÚKT OG HLÝTT Í MYRKRINU
VETRINUM FYLGIR AÐ BÚA SIG VEL, HVORT SEM
HALDIÐ ER Á MANNAMÓT EÐA Í JÓLAINNKAUPIN.
ENGIN ÁSTÆÐA ER TIL AÐ SLÁ AF STÍLNUM ÞÓTT
MAÐUR BÚI SIG VEL OG KOMA FELDIR Í HINUM
ÝMSU MYNDUM ÞAR STERKIR TIL LEIKS.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Dorrit
Moussaieff,
forsetafrú,
var glæsileg
í skinnvesti
við opnun
ATMO.
HLÝJAR JÓLAHUGMYNDIR
Vesti úr
kanínuskinni
Verð: 29.900 kr.
Myconceptstore.is
Húfa úr
kanínuskinni
Verð: 3.900 kr.
Myconceptstore.is
Stílhreinn loðkragi
Verð: 6.600 kr.
Oasis
Loðkragi úr
þvottabjarnarskinni
Verð: 22.900 kr.
Myconceptstore.is
Úlfafeldur
um háls
Verð: 18.900 kr.
Kastanía,
Höfðatorgi
Mokkavesti Siggu
Heimis frá Varma
Verð: 65.900 kr.
Geysir Shops
Helga Lind Björgvinsdóttir, líkamsræktar-
kennari, með fallegan feld um hálsinn.
Fallegir feldir hentugir
í fimbulkulda
mál að hafa systkini í stíl um hátíðirnar. Á
strákana fást til að mynda rauðköflóttar
skyrtur með kínakraga eða mjúkir bolir með
köflóttum skyrtukrögum. Á sama tíma eru
jólakjólarnir á stelpurnar köflóttir, sem
minnir erlaust marga á klassíska jólakjóla
fyrri tíma. Kjólarnir fara mjög vel við mjúkar
leggings eða sokkabuxur.
Mikil áhersla er sem fyrr lögð á að fötin frá
ÍGLÓ séu þægileg og mjúk, svo gott sé bæði
að hreyfa sig í þeim sem og leika sér.
Einungis er notast við gæðaefni við fram-
leiðsluna, sem eiga að endast vel og lengi eft-
ir hátíðirnar.
Hægt er að kynna sér vöruúrvalið, ýmist í
verslun Ígló í Kringlunni eða á öðrum sölu-
stöðum. Þá er einnig handhægt að kaupa
vörurnar á vefsíðunni iglo.is.
gunnhildur@mbl.is
JÓLAFÖTIN Á BÖRNIN - ÍSLENSK HÖNNUN
Doppur, slaufur og köflótt
hjá Ígló fyrir jólin
Íslenska barnafatamerkið Ígló hefur átt mikl-
um vinsældum að fagna á undanförnum ár-
um. Auk Íslands eru Ígló-vörurnar í dag seld-
ar í verslunum í Danmörku, Svíþjóð,
Þýskalandi og Noregi.
Klassískur en jafnframt léttur og skemmti-
legur andi svífur yfir vötnum í jólalínu Helgu
Ólafsdóttur yfirhönnuðar og félaga í ár. Línan
einkennist einkum af köflóttu efni, doppum
og slaufum, enda afar jólalegt.
Litirnir í jólalínunni taka mið af hátíðinni,
þ.e. rauður, blár, bleikur, grár og svartur með
hvítum doppum.
Stelpur og strákar í stíl
Hvort sem um er að ræða stelpu- eða
strákafatnað eru sömu efni notuð í köflóttu
jólafötin á bæði kynin að sögn Tinnu Ólafs-
dóttur framkvæmdastjóra. Þannig er auðsótt
Köflóttu jólaskyrturnar, sem eru
með stroffi og kínakraga, kosta
6.490 kr. og jólakjólarnir 8.490 kr.