Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Page 42
Þegar keypt er inn fyrir jóla-veisluna er brýnt að hafaaldurssamsetningu gestannaofarlega í huga, segir Eygló
Guðjónsdóttir, forstöðumaður
Leiðbeiningastöðvar heimilanna.
Börn borða yfirleitt minna en full-
orðnir, eins aldraðir. Og karlar oft-
ast nær meira en konur. Eygló segir
einnig skynsamlegt að gera ráð fyr-
ir miklum matmönnum inn á milli,
sumir gestir geti hæglega borðað á
við tvo, ekki síst ungir karlmenn.
Láttu okkur þekkja það!
Eygló segir einnig mikilvægt að
reyna að hafa eitthvað við allra
hæfi, þá er hún ekki síst að hugsa
um meðlætið, en sumir (lesist:
börn) geta verið býsna miklir gikkir.
„Það borgar sig alltaf að hafa meira
en minna af meðlæti.“
Undirbúningur skiptir líka miklu
máli. Eygló ráðleggur fólki að bjóða
með góðum fyrirvara til veislunnar,
skreyta veisluborðið vel og hafa
huggulegt í kringum sig. „Það er
líka ágæt regla að reyna að vinna
sem mest fyrirfram, deginum áður,
jafnvel tveimur dögum áður, sé
þess nokkur kostur. Það kemur í
veg fyrir að húsráðendur verði á
stöðugum þönum í veislunni og
gerir þeim kleift að njóta þess að
blanda geði við gesti sína í róleg-
heitum,“ segir hún.
Eygló segir líka gott að ákveða í
tíma hvernig veislan eigi að vera,
heitur matur þar sem setið er til
borðs eða hlaðborð. Algengara er
að dögurður, ellegar bröns, sé
hlaðborð með smærri réttum en
veisla að kvöldlagi sitjandi með
stærri réttum. „Annars fer þetta
allt eftir smekk.“
Sé um tertuboð að ræða segir
Eygló það ágætt viðmið að reikna
með að fjórir gestir séu um hvern
tertudisk, fyrir utan smákökur og
bita.
Hún ráðleggur veisluhöldurum
að kaupa frekar meira en minna til
veislunnar enda megi lengi nota af-
gangana. „Það er alltaf betra að
vera með of mikið en of lítið,“ seg-
ir Eygló sem hvetur fólk til að nýta
afgangana vel. „Rannsóknir benda
til þess að fólk hendi alltof miklu af
mat, 33%, ef marka má danska
rannsókn. Þetta er algör óþarfi
enda hægur vandi að gera góðgæti
úr veisluafgöngum. Munið bara að
ganga sem fyrst frá viðkvæmasta
matnum í kæli til að blessaðar ör-
verurnar fjölgi sér ekki í hitanum!“
VERSLAÐ Á VEISLUBORÐIÐ
Hvað þarf
ég mikið?
AÐ MÖRGU ER AÐ HYGGJA ER GÓÐA VEISLU GJÖRA SKAL.
MIKILVÆGT ER AÐ HUGA AÐ UNDIRBÚNINGI Í TÍMA OG
TAKA ÁVALLT MIÐ AF ALDURSSAMSETNINGU GESTANNA.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Viðmið fyrir veisluna
-magn á mann
Heimild: Leiðbeiningarstöð heimilanna (leidbeiningarstod.is).
Forréttir
Súpa 2-2 ½ dl
Fiskur/kjöt 50-75 gr
Aðalréttir
Kjöt án beina 200-250 gr
Kjöt með beinum 250-400 gr
(fer eftir kjöttegund)
Meðlæti
Kartöflur 150-175 gr
Soðið grænmeti 100-150 gr
Hrátt grænmeti 150-180 gr
Sósa 1/2 - 1 dl
Eftirréttir
Ís/búðingar 2 dl
Terta 1 sneið
Ostur 75-100 gr
Ávextir/ferskir 50 gr
Konfekt 2-3 molar
Drykkir
Kaffi 2-3 bollar á mann
Te 1-2 bollar á mann
Jólaöl og gosdrykkir 2-3 glös á mann
Borðvín 375 ml á mann (samtals
með forrétti og aðalrétti)
Kampavín 1-2 glös á mann til að skála í
*Fjármál heimilannaÞað er gott að vita hversu mikið af mat þarf á veisluborðið fyrir jólin, þótt alltaf megi nýta afganga
Í fjölmiðlum var nokkuð fjallað um góða afkomu bankanna þegar þeir skiluðu skýrslum í lok þriðja ársfjórðungs.Fjölmiðlar gerðu hagnaðinum skil og fjölluðu um gott eiginfjárhlutfall og aukinn launakostnað sem mætti rekja tilaukinna skatta. Lítið sem ekkert var fjallað um atriði sem er afar mikilvægt heimilunum, bæði þeim sem skulda og
þeim sem eiga inneignir í bönkum og sparisjóðum, en það er vaxtamunur.
Vaxtamunur er mælikvarði sem segir til um framlegð af vaxtaberandi eignum banka og fjármálafyrirtækja. Það er
að segja, mismun á vaxtatekjum sem þau innheimta af útlánum sínum að frádregnum vöxt-
um sem þau greiða viðskptavinum fyrir innlán. Oftast er munurinn sýndur sem hundraðs-
hlutfall af meðalstöðu innlána yfir tímabil. Vaxtamunur er svipaður framlegð hjá öðrum
fyrirtækjum og sýnir svart á hvítu muninn á innláns- og útlánsvöxtum. Því hærri sem
vaxtamunurinn er, þeim mun meiri „framlegð“ er af inn- og útlánum fjármálafyrirtækis-
ins. Vaxtamunurinn lækkar þegar bankar þurfa að afskrifa lán og hækkar þegar þeir færa
upp lán sem áður voru talin glötuð.
Einföld leið til að reikna vaxtamun er að taka dæmi af ímynduðum banka. Segjum að
meðalútlán bankans nemi 100.000 kr. á tilteknu tímabili. Segjum að hann láni féð út á 5%
vöxtum og vaxtatekjur hans nemi því 5.000 kr. Á sama tímabili greiðir hann 3% vexti eða
3.000 kr. til innstæðueigenda og annarra lánveitenda bankans. Vaxtamunur bankans væri
því 2% (5.000 –3.000) / 100.000 = 2%.
En af hverju er vaxtamunur mikilvægur fyrir heimilin? Af þeirrri ástæðu að hagsýnn neytandi leitar eftir við-
skiptum við banka þar sem vaxtamunur er hæfilega lítill, þar sem hann fengi sem hæsta vexti fyrir innstæður sínar,
en greiddi sem lægsta vexti fyrir lán sem hann þyrfti að taka.
Í nýlegri skýrslu Seðlabanka Íslands kemur fram að vaxtamunur íslenskra banka er töluvert hærri en vaxtamunur
norrænna banka. Þar kemur kemur fram að vaxtamunur hér á landi er frá rúmum 3 prósentustigum og upp í tæp 4
prósentustig, en vaxtamunur á Norðurlöndum er frá tæpu prósenti og upp í tæp 2 prósent.
Aurar og
krónur
VAXTAMUNUR
Vaxtatekjur -Vaxtagjöld
Meðalstaða lána
Vaxtamunur
5.000 - 3.000
100.000
2%
Dæmi
HVERNIG REIKNA Á
VAXTAMUN
BREKI KARLSSON