Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Qupperneq 47
góð tilfinning að fullt af fólki er að vinna í
þessu með okkur og sér um þessa hluti fyrir
okkur. En þetta er alltaf svolítið stress hvort
fólk mæti. Maður er alltaf himinlifandi þegar
íslenskar hljómsveitir slá í gegn en eina öf-
undin sem maður finnur fyrir þegar maður
sér hvernig svona grúppum eins og Of Mon-
sters and Men gengur er að þær losna alveg
við óttann um hvort það verður mætt á tón-
leikana hjá þeim. Því maður er alltaf smá
óttasleginn með mætinguna. Á Íslandi þarf
maður oft að bíða eftir áhorfendum áður en
við troðum upp.“
Úr stressinu í friðinn
Aðspurður hvort það sé ekki gott að losna úr
stressinu á Íslandi segir hann að það sé svo
sannarlega svo. „Það er mjög gott að losna
við stússið hérna á Íslandi. Það er heilmikil
menningarpólitík á Íslandi, sem er gott að
losna við. Það er oft metingur og þrýstingur
um hver er að spila hvar, það er verið að
velja á festivöl og veita styrki og það er svo-
lítið truflandi. Mig langar bara að semja og
spila tónlist. Þegar maður kemst út þá getur
maður einbeitt sér miklu betur að því.
Varðandi pólitík þá veltir maður því stund-
um fyrir sér hvað það gæti gert fyrir Ísland
ef svona fólk eins og Björk yrði menningar-
málaráðherra, hvað það myndi þýða fyrir Ís-
land. Ég held að þvílíkir kontaktar myndu
myndast við landið, en auðvitað nennir fólk
því ekki, þegar það hefur tækifæri til að
semja tónlist alla daga. En maður sér þetta
stundum í öðrum fögum eins og þegar fólk úr
atvinnulífinu fer í stöður í háskólunum, þá
hefur það oft heilmikil jákvæð áhrif. En það
er önnur saga.“
Að deila er gott
Aðspurður hvort allir þessir túrar og þessi
samvera við hina hljómsveitarmeðlimina sé
ekki erfið til langs tíma litið. Því eins mikið
hjarðdýr og mannskepnan er að þá er alltaf
erfitt að vera of nálægt öðrum manndýrum of
lengi. „Jú, það er alveg rétt að allir þessir
túrar þar sem við erum saman allan sólar-
hringinn reyna stundum á en á móti kemur
að þótt þetta sé oft erfitt er þetta alltaf meira
skemmtilegt en erfitt. Við búum líka að
reynslu annarra hljómsveita á Íslandi. Menn
vita hvenær á að taka hlé og það er komin
reynsla á þetta. Þetta álag er alþekkt í brans-
anum og til margar sögur af því. Þannig að
allir eru viðbúnir þegar það koma vandræði
upp á hjá okkur. Álagið í stúdíóinu hins vegar
fellur ekki svo mikið á alla meðlimina því við
höfum komið okkur upp mjög ákveðinni
verkaskiptingu á milli okkar. Við Logi bróðir
minn, Styrmir Hauksson og Sveinbjörn Thor-
arensen erum mest í eftirvinnslunni. Þessi
plata sem við vorum að gefa út er mikil eftir-
vinnsluplata. Ekki bara í hljóðinu heldur fór
einnig heilmikil hugmyndavinna í önnur mikil-
væg atriði eins og plötuumslagið.
En auðvitað eigum við það til að deila í
þessu ferli en það er skapandi.“
Valsararnir á heimavelli
Næstu tónleikar hljómsveitarinnar á Íslandi
verða haldnir í Vodafone-höllinni, Valsheim-
ilinu, 30. desember. „Það er dálítið steikt
ástand á Íslandi í dag hvað varðar tónleika-
staði. Borgin virðist ekki vita hvort það eigi
að leyfa NASA að lifa eða ekki. Það eru
margar borgir á meginlandinu með svona
tónleikastaði sem bæjarfélögin reka. Við er-
um reyndar allir Valsarar og þess vegna
mjög ánægðir með að spila í Vodafone-
höllinni. Nema Haraldur sem er KR-ingur en
hann er líka að hverfa á brott úr hljómsveit-
inni um tíma á meðan hann fer í leiklistarnám
til London. Þá verður Retro Stefson hrein
Valsarahljómsveit. En maður saknar hans
samt.“
Varðandi vangaveltur um hvert hljóm-
sveitin muni þróast segir Unnsteinn að það
verði líklegast í áttina að sönglögum. „Logi
bróðir minn er reyndar alltaf að þróast meira
sem dj. En það er mikið að gerast í tónlist-
inni í dag. Orkudrykkjakynslóðin er ráðandi í
Bandaríkjunum í augnablikinu, svokallað
orkudrykkjarave. Svo er Asía að koma til.
Það varð til popptónlist í Evrópu og Banda-
ríkjunum af því að millistéttirnar urðu til. Nú
er millistétt að verða til í Asíu og það finnst í
tónlistinni. Kóreska lagið Gangnam Style er
vinsælasta lagið í heiminum í dag. Það er
spennandi að fylgjast með þessu,“ segir Unn-
steinn.
Morgunblaðið/Kristinn
* „Ég er frekar viðkvæmur fyrirkulda. Gaman að fá
að vera í hlýrabol
á sviðinu og Haraldur
næstum því allsber
alla tónleikana,“
segir Unnsteinn.
16.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
OLÍS er einn af aðalstyrktaraðilum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og styður við samtökin bæði með fjár-
framlögum og verulegum afslætti af eldsneyti og
öðrum vörum. Þá er einnig samstarf á öðrum sviðum
samkvæmt samkomulagi hverju sinni, svo sem um
nýtingu Slysavarnafélagsins Landsbjargar á þjónustu-
stöðvum Olís á útkallstímum.
Starfsfólk Olís er stolt af þessu góða samstarfi og
stuðningnum við frábært starf björgunarsveitanna,
sem unnið er af fórnfýsi, landsmönnum til heilla.
PI
PA
R\
TB
W
A
·
SÍ
A
·
12
12
37
53