Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2012, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2012
Stórlækkað verð
á iPhone 5 hjá
Vodafone
Þín ánægja er okkar markmið
iPhone 5
Veglegur jólapakki fylgir þessum
snjallsíma hjá Vodafone.
159.990 kr. 14.690 kr. á mán.*
*M
.v.
12
.m
án
uð
i.
Vi
ð
af
bo
rg
un
ar
ve
rð
bæ
tis
tg
re
ið
sl
ug
ja
ld
,3
40
kr
.á
m
án
uð
i.
Ein ástsælasta söngkona Dana, Tina Dickow, sagði frá íslenskum jólahefðum í
einum vinsælasta danska útvarpsþætti danska ríkisútvarpsins; Aftenshowet.
Tina býr hér á landi ásamt eiginmanni sínum, sem einnig er tónlistarmaður;
Helga Jónssyni en saman eiga þau einn son. Í Danmörku vekur það mikla athygli
að Tina búi hérlendis en Tina er slík súperstjarna í Danmörku að hún getur varla
gengið þar um götur óáreitt. Tina bjó lengi í Bretlandi. Um jólin kemur öll fjöl-
skylda söngkonunnar til Íslands í heimsókn.
Danir voru mjög forvitnir að vita hvernig jólahefðum Íslendinga væri háttað
og það sem Tina sagði um skötuhefðina, sem Danir hrylltu sig yfir, og laufa-
brauðið vakti mikla athygli. Danir reyndu að skilja hvers konar fyrirbæri laufa-
brauðið væri – og spurðu hvort þetta líktist pönnukökum.
Tina sagði einnig frá íslensku jólasveinunum þrettán sem koma með einhverja
gjöf síðustu 13 dagana áður en hátíðin gengur í garð og hvernig þeir hafa verið þjófóttir og uppátækjasamir í gegnum
tíðina. Rjúpan kom einnig til umræðu og aðfangadagsmáltíðin. Tina sagði að jólin væru einkar löng á Íslandi sem hún
kynni vel að meta og ræddi skammdegið. Frá heimalandi sínu sagðist hún þó sakna dönsku eplaskífanna.
EIN VINSÆLASTA POPPSTJARNA DANMERKUR SEGIR FRÁ ÍSLENSKUM JÓLUM
Danir spurðu Tinu hvort laufa-
brauð væri einhvers konar útgáfa
af pönnukökum.
Danir furða sig á
laufabrauði og skötu
Tina Dickow er súp-
erstjarna í Danmörku
en býr hérlendis.
Á eftir Ævintýri Merlíns á laugardags-
kvöldið verður sýnd bíómyndin The Sorce-
rer’s Apprentice eða Lærisveinn galdra-
karlsins. Þessi mynd er úr smiðju Jerrys
Bruckheimers og er Nicolas Cage í aðal-
hlutverkinu sem einhverskonar Merlíns-
týpa. Þessi bíómynd gerist í nútímanum í
New York og eru ill öfl að reyna að ná
yfirráðum í borginni. Um átök er að ræða
sem eiga rætur sínar að rekja til þeirra
átaka sem áttu sér stað á Englandi fyrir
meira en þúsund árum þegar galdramenn
fylktu sér á bakvið annaðhvort Merlín eða
Morgönu le Fay. Góðu öflin eru að sjálf-
sögðu Merlínsmegin.
GALDRAÐ Á LAUGARDAGSKVÖLD
Nicolas Cage þarf að beita göldrum til að bjarga borgarbúum New York.
Arftakar Merlíns
ÆVINTÝRAMYNDIR UM GOÐSAGNAKENNDAR HETJUR
EINS OG MERLÍN OG ARTÚR KONUNG ERU FEIKIVINSÆLAR
UM ÞESSAR MUNDIR UM ALLAN HEIM.
Hin fagra Teresa
Palmer leikur í
myndinni.
SkjárEinn
kl. 19.00 á
sunnudag
Í tilefni af 50
ára afmæli
sínu héldu
Rolling Stones dúndurtónleika sem
voru teknir upp og verða sýndir á
Skjánum um helgina. Þótt gamlir
séu eru þeir enn góðir á sviðinu.
ROLLING STONES 50 ÁRA
RÚV kl. 20.30 á laugardag
Hraðfréttirnar sem frumsýndar
eru á hverju fimmtudagskvöldi eru
endursýndar á laugardögum og
upplagt að sjá þær aftur þá. Pilt-
arnir sem byrjuðu á Mbl-sjónvarpi
eru algjörlega búnir að slá í gegn.
HRAÐAR HRAÐFRÉTTIR
Rás 1 kl. 22.15 á laugardag
Í þættinum Fyrr og nú, íslenskar
glæpasögur, verður fjallað um Gísla
sögu Súrssonar sem er hin ágæt-
asta glæpasaga. Einnig verður
fjallað um aðrar og nýrri íslenskar
glæpasögur.
GÍSLI SÚRSSON