Morgunblaðið - 15.01.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Ökuskírteini sem gefin verða út eftir 19. janúar
næstkomandi gilda til 15 ára í senn. Hingað til
hafa ökuskírteini að jafnaði gilt til sjötugs.
Breyting á umferðarlögum þess efnis hefur ver-
ið samþykkt að því er segir á heimasíðu innan-
ríkisráðuneytisins.
Þessa breytingu má rekja til ákvæða í til-
skipunum Evrópuþingsins og Evrópuráðsins
frá 2006 um ökuskírteini. Tilskipunin var tekin
upp í EES-samninginn með ákvörðun sameig-
inlegu EES-nefndarinnar frá 2008. Í tilskip-
uninni segir að reglur um ökuskírteini séu mik-
ilvægar þegar kemur að sameiginlegri stefnu í
flutningamálum, feli í sér aukið umferðaröryggi
og auðveldi frjálsa för fólks sem býr, starfar eða
á leið um í öðru aðildarríki en ökuskírteini er
gefið út í.
Þeir sem þegar eru með ökuskírteini sem
gildir til 70 ára aldurs þurfa ekki að hafa
áhyggjur næsta árin. Nú liggur fyrir frumvarp í
umferðarlögum en í bráðabirgðaákvæði þar
segir að ökuskírteini í tilteknum flokkum sem
gildi til 70 ára aldurs skuli endurnýja í síðasta
lagi 31. desember 2032. Þeir sem nú þegar eru
með ökuskírteini til 70 ára aldurs hafa því 20 ár
til að endurnýja þau samkvæmt þeim breyt-
ingum sem nú eru yfirvofandi. Ofangreint
bráðabirgðaákvæði er hluti af innleiðingu Evr-
óputilskipunar.
Ný ökuskírteini gilda til 15 ára
Innleiða nýja Evróputilskipun um ökuskírteini Sögð auðvelda frjálsa för í öðrum ríkjum og
auka umferðaröryggi Núverandi skírteinishafar þurfa væntanlega að endurnýja fyrir 2032
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Réttindi Breytingar á gildistíma útgefinna ökuskírteina eiga að stuðla að auknu öryggi í umferð.
Nýjar reglur um
ökuskírteini
» Fullnaðarökuskírteini gefin
út frá og með 19. janúar gilda í 15
ár.
» Áður var skírteinið gefið út
til 70 ára aldurs.
» Þeir sem þegar eru með
ökuskírteini sem gildir til sjötugs
þurfa að endurnýja skírteinið fyr-
ir 31. desember 2032 samkvæmt
frumvarpi til umferðarlaga sem
nú er til umfjöllunar á Alþingi.
» Ný gerð ökuskírteina sem
uppfylla auknar öryggiskröfur er
væntanleg og útgáfa þeirra mun
væntanlega hefjast í apríl.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Örnefnanefnd hafnaði óskum um
breytingar á þremur bæjarnöfnum á
síðasta ári. Ástæðan var í öllum til-
vikum örnefnavernd, enda löng hefð
fyrir umræddum bæjarnöfnum,
samkvæmt upplýsingum Þórunnar
Sigurðardóttur, formanns örnefna-
nefndar.
Breytingu á nafninu Efri-Brunna-
staðir á Vatnsleysuströnd í Brunna-
staði var hafnað af því að hefð er fyr-
ir nöfnunum Efri-Brunnastaðir og
Neðri-Brunnastaðir frá því á 19. öld.
Breytingu á bæjarnafninu Stapasel í
Borgarbyggð í Selskógar var hafnað
þar sem um fornt nafn er að ræða en
jörðin byggðist um 1670. Stapasel
hefur verið í eyði um árabil. Þá var
breytingu á bæjarnafninu Hesjuvell-
ir í Eyjafirði í Hlíðar hafnað. Hesju-
vellir er mjög gamalt heiti á býlinu,
kemur fyrst fyrir árið 1394.
Hins vegar var samþykkt að
breyta Reykjahlíð - garðyrkju í Mos-
fellsbæ í Suðurá. Næsti bær ber
upprunalega nafnið Reykjahlíð svo
ekki er um að ræða að fornt örnefni
glatist í því tilviki.
Örnefnanefnd samþykkti á síðasta
ári sautján heiti á nýbýlum en hafn-
aði tveimur. Nafninu Hólahólar var
hafnað af því að það passaði ekki við
staðhætti og örnefni á svæðinu. Til-
gangurinn var að vernda nafngifta-
hefð. Þá var bæjarnafninu Mörk
hafnað vegna þess að sumarhúsa-
byggð með sama nafni er í næsta ná-
grenni. Öryggissjónarmið réðu því
ákvörðuninni.
Örnefni eru huglægar menningar-
minjar sem um allan heim er talið
mikilvægt að varðveita fyrir kom-
andi kynslóðir, samkvæmt upplýs-
ingum Þórunnar. Að hennar sögn
tekur fólk því afskaplega vel þegar
því er bent á annmarka bæjarnafns
sem það hefur stungið upp á og velur
sér þá nýtt nafn.
Breytingu hafnað vegna örnefnaverndar
Ljósmynd/Leifur Runólfsson
Eyðibýli Stapasel hefur verið í eyði um árabil en býlið á sér merka sögu.
Örnefnanefnd hafnar nýjum heitum býlanna Stapasels, Hesjuvalla og Efri-Brunnastaða
Heiti á nýbýlinu Hólahólum hafnað vegna þess að hólana vantaði og Mörk vegna öryggissjónarmiða
Sífellt fleiri eru farnir að hjóla allan ársins
hring. Í stað þess að leggja hjólunum þegar
snjórinn lætur á sér kræla, setja margir nagla-
dekk undir reiðhjólin. Íbúar á suðvesturhorninu
þurfa þó ekki að hafa áhyggjur af snjó og kulda í
bili því von er á leysingum á næstu dögum, væt-
anlega með tilheyrandi slabbi. Vetur konungur
heldur því áfram að fara mildum höndum um
íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Morgunblaðið/Kristinn
Barist í gegnum snjóinn á hjóli
Vetrarlegt var um að litast í höfuðborginni í gær
Ekki hefur náðst
nógu góður ár-
angur af borun
RARIK eftir
heitu vatni í
landi Hoffells í
Hornafirði.
Ákveðið hefur
verið að dýpka
holuna um 200
metra til að
reyna til þrautar
að afla nægjanlegs vatns.
Borunin er gerð í þeim tilgangi
að afla orku fyrir hitaveitu fyrir
Höfn og dreifbýlið meðfram að-
veituæðinni frá Hoffelli. Haukur
Ásgeirsson, deildarstjóri heitaveitu
hjá RARIK, segir að helst þurfi 80
sekúndulítra af 70 stiga heitu vatni.
Vatnið í holunni sem er 1.200 metra
djúp er á bilinu 65 til 80 stiga heitt
og vatnsmagn ekki fullnægjandi.
„Það eru alltaf vonbrigði að finna
ekki vatn við borun en við erum
bjartsýnir. Endanleg niðurstaða er
ekki fengin,“ segir Haukur. Borað
verður niður á 1.400 metra og ár-
angurinn metinn að því búnu.
helgi@mbl.is
Borholan
dýpkuð um
200 metra
Ekki árangur af
borun í Hornafirði
Borun Ekki hefur
fundist vatn.