Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Síða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Síða 13
Þannig lentu Machine Head og Anthrax á shit-listanum. Þetta segir okkur tvennt: Annars vegar að liðsmenn Machine Head og Anthrax séu merkikerti og hins vegar að Sólstafir, bandið hans Adda, séu að koma fram á býsna stórum tónlistarhátíðum. Þrátt fyrir allt eru þetta stór nöfn í málmheimum. Mjög stór. Það eru svo sem ekki ný tíðindi. Sólstafir hafa gert víð- reist á umliðnum árum. Þeir eru einmitt nýkomnir heim úr mánaðarlangri Evrópureisu sem spannaði ellefu lönd og ennþá fleiri borgir. „Við spiluðum meira að segja í Lúxemborg, þangað sem ég hef ekki komið síðan ég var krakki,“ segir Addi. Við erum sestir við eldhúsborðið. Addi búinn að hella upp á biksvart kaffi og sambýliskona hans, hin pólska Sara Eleonora, að færa okkur súkkulaðikex. Þau kynntust í London fyrir tveimur árum. Annar kettlingurinn stekkur upp á borð. „Nei, Djangó,“ segir Addi ákveðinn. Af hverju kemur ekki á óvart að hann heiti Djangó? Þekkti ekki hin túrböndin Með Sólstöfum á túr að þessu sinni voru þýska sveitin Long Distence Calling, sem var aðalnúmerið, og síðan norsku sveitirnar Audrey Horne og Sahg, sem tóku hvor sinn helminginn af ferðinni. Spurður um þessi bönd viðurkennir Addi að hann hafi ekki þekkt til þeirra áður. „Við fengum tilboð frá bók- unarfyrirtæki um að fara í þennan túr og þurftum satt best að segja aðeins að hugsa málið. Útgáfufyrirtækinu okkar fannst þetta til dæmis ekki góð hugmynd, í þeirra huga erum við stærra nafn en Long Distence Calling. Að Sólstafir í æfingahúsnæði sínu á Gróttu. Þar er sveit- in farin að leggja drög að næstu plötu sem komið gæti út á næsta ári. 21.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 SVEFNSÓFAR KR 12 0 KR 12 0 . 11 900 BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARD. 11 - 16 BREYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI ÞYKK OG GÓÐ SPRINGDÝNA SVEFNBREIDD 140X200 CM RECAST TILBOÐ KR. 129.900 EYTIST Í RÚM Á AUGABRAGÐI, ÞYKK OG GÓÐRINGDÝNA, SVEFNBREIDD 120X200 CM UNFURL KR. 119.900 Árin segja sitt Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is 1979-2013 BISTROLauga-ás special Lambalæri bearnaise Gratíneraður fiskur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.