Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Blaðsíða 38
E
ftir tíu ára þögn hefur David Bowie látið
rækilega að sér kveða á þessu ári. Í byrjun
mars sendi Bowie frá sér nýja plötu og síð-
ar í mánuðinum var opnuð sýning í safn-
inu Victoria & Albert í London á ýmsum munum
og búningum, sem söngvarinn lét safninu í té
frá ferli sínum, og hefur aldrei áður verið jafn
mikil aðsókn á sýningu á vegum þess. Á plöt-
unni Ziggy Stardust söng Bowie um að
sleppa sér í dagdrauma á tunglöld,
„freak out in a moonage daydream“. Á
sýningunni sést hvernig hann sleppti
sér í sínum dagdraumum.
Bowie hefur alltaf leitað inn á
nýjar brautir í tónlist sinni,
drukkið í sig áhrif og veitt þeim
farveg, oft með framúrskar-
andi árangri, og sennilega
hefur engin tónlistarmaður
haft jafn mikil áhrif og hann.
Um leið er hann maður
margra gerva og hefur haft
áhrif á strauma og stefnur í tísku
ekkert síður en tónlist og mætti nefna Lady
Gaga sem dæmi. Hann hefur tekið á sig
ýmsar myndir á ferlinum, persónan Ziggy
Stardust er ein af mörgum, og dansað á jaðri karl-
mennskunnar og hins kvenlega. Persónunum hafa
fylgt skrautlegir búningar, sem hann hefur notað á
sviði og eru til sýnis á sýningunni.
Í umfjöllun um sýninguna kemur fram að Bowie
hefur ekki aðeins einbeitt sér að tónlistinni, held-
ur hannað og mótað ímynd sína frá öllum hlið-
um.
„David Bowie er sönn helgimynd og skipt-
ir alþýðumenningu meira máli nú en
nokkru sinni,“ segir Martin Roth,
stjórnandi Victoria & Albert safnsins.
„Róttæk nýsköpun hans í tónlist,
leikhúsi, tísku og stíl endurómar
enn í dag í hönnun og sjónmenn-
ingu og hann veitir enn listamönn-
um og hönnuðum um allan heim
innblástur.“
Á sýningunni er byrjað á upphaf-
inu, hljómsveitunum The Kon-rads og
The King Bees þar sem hann var þegar
farinn að hanna hljómsveitarbúninga og
sviðsmyndir og ferlinum fylgt allt til okkar
daga. Sýningin nefnist David Bowie er og fær
sýningargesturinn að botna setninguna. Hún
stendur til 11. ágúst.
AFP
Skikkja með japönsku letri. Um 300 munir eru á sýningunni um Bowie, þar á meðal handskrifaðir
textar, upprunalegir búningar, ljósmyndir, myndskeið, sviðsmyndir og hljóðfæri úr eigu hans.
Starman-búningurinn, sem Bowie
klæddist þegar hann söng samnefnt lag
í Top of the Pops á BBC 1972. Þátt-
urinn markaði tímamót á ferli hans.
Búningur frá tónleikaferð Bowies eftir að platan Diamond Dogs kom út árið 1974. Hann var gríð-
arlega eljusamur á þessum árum, gaf út hverja plötuna á eftir annarri og hélt marga tónleika.
Bowie í stuttmynd sem gerð var
við lagið The Stars (Are out
Tonight) af nýrri plötu hans, sem
kom út í mars og fór beint í fyrsta
sæti vinsældalista.
ÁHRIF BOWIES Á SAMTÍMA SINN
Dagdraumur
á tunglöld
LITRÍKUM FERLI DAVIDS BOWIES ERU GERÐ RÆKI-
LEG SKIL Í SÝNINGU Í VICTORIA & ALBERT SAFNINU
Í LONDON. SÝNINGIN ER UNNIN UPP ÚR GÖGN-
UM SEM LISTAMAÐURINN AFHENTI SAFNINU
OG MUN ÞAR KENNA ÝMISSA GRASA.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Ósamstæður
búningur, sem
Kansai Yama-
moto hannaði
fyrir persónuna
Ziggy Stardust.
Alexander McQueen hann-
aði jakka úr breska fánanum,
sem Bowie var í á albúmi
plötunnar Earthling frá 1997.
Tókýó-popp-
búningur frá tón-
leikum eftir útkomu
Aladdin Sane 1973.
*Föt og fylgihlutir Nemendur í fatahönnun við Listaháskóla Íslands sýndu eigin hönnun á útskriftarsýningu »40