Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Blaðsíða 34
*Græjur og tækniTónlistarveitan Spotify nýtur mikilla vinsælda en aðferðafræðin að baki henni er umdeild »36 málum; það gefur augaleið að einfalt er að stela svo léttum og meðfærilegum tækjum og þá eru öll gögn á þeim í uppnámi. Á Stylistic M702 er fingrafaralesari og dulritunarhugbúnaður til að tryggja gagnaöryggi og eins ýmislegur hugbúnaður til að auð- velda tengingu við viðskiptahugbúnað. Ekki er þó allt talið því vélin er ryk- og rakavarin og meira en það reyndar, því hún er vatns- held. Vatnsvörn vélarinnar er í hæsta IP-flokki, IPX5, 7 og 8, en 6 segir að hún standist það að sprautað sé á hana vatni á allar hlið- ar, 7 að hún þoli að fara á eins metra vatnsdýpi og 8 að hún þoli að vera langtímum í meira en metradjúpu vatni. Hvað rykið varðar þá er hún með stuðulinn IP5X sem er sá næsthæsti. Ekki lagði ég í að prófa vél- ina með því að fara með hana í sund eða ámóta, en það mátti sjá Stylistic-vél á fullu í kafi á UT- sýningunni í Hörpu fyrir stuttu. Á vélinni er Android 4.0.4 Ice Cream Sandwich og ekki uppfærsla í boði sem stendur í það minnsta. Ör- gjörvinn er Nvidia Tegra 3 AP37, 1,7 GHz fjögurra kjarna ARM Cortex. Vinnsluminni í vélinni er 2 GB en gagnaminni 32 GB og rauf fyrir MicroSD kort sem get- ur verið 2 GB SD, 32 GB SDHC eða 64 GB SDXC. Sölutölur síðustu mánaða undirstrika það að borðtölvan fer hall-oka og ekki bara borðtölvan heldur eiga fartölvur líka á bratt-ann að sækja. Æ algengara er að fólk sem vill fá sér auka- tölvu á heimilið grípi spjaldtölvu og það er spá mín að slík apparöt eigi enn eftir að sækja í sig veðrið. Mikill áhrifavaldur í þeirri þróun er iPadinn, en fleiri hafa sótt inn á markaðinn, til að mynda Microsoft, Google/Asus, Samsung og Amazon, sem ýmist bjóða tölvur með Wind- ows eða Android. Fujitsu sendi á dögunum frá sér forvitnilega Android-vél, Stylistic M702, sem er frekar ætluð fyrirtækjum en almenningi. Eins og gefur að skilja skiptir miklu að spjaldtölvur séu ekki bara hraðvirkar og liprar held- ur verða þær að vera sterk- byggðar, því notandi er sífellt að handfjatla þær, leggja frá sér og lyfta upp, stinga í skjóðu og taka úr. Því til viðbótar er rétt að hafa áhyggjur af raka og ryki og fyrirtæki hafa svo áhyggjur af öryggis- SPJALDTÖLVA Í SUNDFERÐINA SPJALDTÖLVUR ERU TIL MARGS BRÚKLEGAR EN ÞÆR HAFA LÍKA SÍNAR TAKMARKANIR, ÞOLA ILLA RAKA OG RYK TIL AÐ MYNDA. NEMA NÁTTÚRLEGA FUJITSU STYLISTIC M702 SEM ER RYK- OG VATNSHELD. Græja vikunnar * Rafhlaðan er framúrskarandi,eða það fannst mér í það minnsta eftir að hafa prófað vélina. Ég tímamældi ekki endinguna, en framleiðandi gefur upp að hún endist í fimmtán tíma notkun. Myndavélin að framan er 1,2 milljón dílar, en 8,1 milljón á bakinu og með sjálfvirkum fókus. * Með tölvunni fylgir hleðslu-vagga og straumbreytir sem teng- ist þá vöggunni, en annars hleður maður græjuna í gegnum USB- tengið með því að tengja hana við tölvu. Ekki er nema eitt Micro- USB tengi á henni, en það er rauf fyrir SIM-kort og það má vera 4G. ÁRNI MATTHÍASSON * Skjárinn er 10,1" TFT-skjár,WUXGA, í hlutföllunum 16:10 og með upplausnina 1920 x 1200 díl- ar. Mjög bjartur og skemmtilegur. Hann er með sérstakri lýsingu til að auðveldara sé að nota hann utan dyra og glerið styrkt. Grafíkörgjörvinn styður fulla háskerpu að 1080p. H já Matís er gagnabanki um efnainnihald matvæla sem nefnist ÍS- GEM. Til þessa hafa sérfræðingar að mestu nýtt sér hann en notk- unin hefur verið lítil meðal almennings. Nú styttist hins vegar í það að gagna-grunnurinn verði aðgengilegur almenningi í gegnum snjallsímaforrit. Mikilvægar upplýsingar til almennings Matís á í samstarfi við fyrirtæki sem vinnur að þróun snjallsímaforrits þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um efnisinnihald matvæla með einföldum hætti. „Við spurðum okkur hvernig við gætum komið þessum gagnagrunni og mikilvægu upplýsingum til almennings. Neyt- endur vita oft ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga þegar kemur að sinni heilsu og mataræði. Fólk er ólíkt til heils- unnar og oft eiga ólíkar áherslur í mataræði við því hvað hentar hverjum,“ segir Steinar og bendir á að það geti m.a. gagnast þeim sem eru með mjólkuróþol eða hnetuofnæmi. Finna má strikamerki á öllum matvælum. ,,Við erum í sam- starfi við fyrirtækið GS1 sem vinnur að því að gerlegt verði að kanna innihald matvæla í gegnum strikamerki, alveg eins og hægt er að gera þegar vöruverð er kannað,“ segir Steinar. Að sögn Steinars er Matís auk þess í samstarfi við annað íslenskt fyrirtæki sem heitir Foodoit sem hannar notendaviðmót gagnagrunnsins. „Við komum þessu mikilvægu upplýsingum um matvæli til almennings með hjálp strika- merkja og QR kóðanna,“ segir Steinar. Tilraun í mötuneytinu Matís mun í samstarfi við Foodoit byrja á tilraun í mötuneytinu þar sem upp- lýsingar um þau matvæli sem eru á boðstólum í fyrirtækinu eru settar á skjá. Á honum geta starfsmenn svo séð hvert innihaldið er. „Það er t.a.m. hversu mikið prótín og kolvetni er í matnum og hvort skammtastærðir eru í samræmi við manneldismarkmið. Á skjánum verður svo QR kóði sem starfsfólk getur skannað með símum sínum til að sjá nánar hvort innihaldið henti þeim og bor- ið saman við sínar upplýsingar sem geymdar eru í snjallsímaforritinu,“ segir Steinar Hvað er í ískápnum? Með hjálp snjallsímaforrits geta neytendur brátt tengst gagna- grunni Matís um efnainnihald matvæla. UNNIÐ AÐ SNJALLSÍMAFORRITI MATÍS Innihald matarins beint í símann FLJÓTLEGA GETA ALMENNIR NEYTENDUR NÝTT SÉR GAGNAGRUNN MATÍS UM EFNAINNIHALD MATVÆLA Í GEGNUM SNJALLSÍMAFORRIT. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Steinar B. Aðalbjörnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.