Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.4. 2013 Kynjaskipting þingmanna *M.v. könnun Félagsvísindastofnunar HÍ 14.-17. apríl Meðalaldur þingflokka* *M.v. niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar HÍ 14.-17. apríl Sjál fstæ ðisfl . Fra msó kna rfl. Sam fylk ingi n Píra tar Bjö rt f ram tíð Vin stri græ nir 41,9 ár 50 ár 51,2 ár 51,5 ár 39,6 ár 35,7 ár Aldur kjörinna þingmanna 2003 Heimild: Datamarket 2007 2009 18-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 6, 3% 19 % 19 % 39 ,7 % 15 ,9 % 1 9% 1, 6% 23 ,8 % 39 ,7 % 15 ,9 % 3, 2% 20 ,6 % 39 ,7 % 23 ,8 % 12 ,7 % 7, 9% 19 ,0 % 38 ,1 % 27 ,0 % 7, 9% M.v. könnun nú P íratar verða yngsti þingflokkurinn á Alþingi verði úrslit alþingiskosn- inganna í samræmi við könnunina sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Morgunblaðið í vikunni. Meðalaldur fjögurra tilvonandi þing- manna hins nýja stjórnmálaflokks yrði aðeins 35,7 ár en meðalaldur þingheims alls yrði 43,9 ár. Fimm þingmenn Bjartrar framtíðar ná ekki heldur fjörutíu ára aldri að meðaltali. Sé litið á gamla fjórflokkinn vekur athygli að meðalaldur þingmanna Framsóknarflokksins, samkvæmt könnuninni, er um tíu árum lægri en hinna þriggja. Það er til marks um þá miklu endurnýjun sem orðið hefur í þeim flokki á um- liðnum árum. Jóhanna yrði yngsti þingmaðurinn Samkvæmt könnuninni kæmi yngsti þingmað- urinn úr röðum framsóknarmanna, Jóhanna M. Sigmundsdóttir, búfræðingur og nemi frá Látr- um í Mjóafirði, en hún er aðeins 21 árs. Jóhanna skipar 4. sæti á lista flokksins í Norðvest- urkjördæmi. Elsti þingmaðurinn yrði Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki. Hann er 68 ára. Fimm þingmenn heyra til aldursflokknum 18 til 29 ára sem er töluvert hærra hlutfall en í kosningunum 2009 og sérstaklega 2007. Fram- sókn á fjóra þeirra, Harald Einarsson, verk- fræðinema, Fjólu Hrund Björnsdóttur, starfs- mann á Hótel Rangá og nema við HÍ, sem bæði bjóða sig fram í Suðurkjördæmi, og Sigurjón Norberg Kjærnested, verkfræðing, sem kemur úr Suðvesturkjördæmi, auk téðrar Jóhönnu. Fimmti þingmaðurinn úr yngsta aldurs- flokknum yrði Píratakapteinninn Smári McCarthy sem fer fram í Suðurkjördæmi. Þingmönnum á sjötugsaldri fækkar Að sama skapi fækkar þingmönnum sem náð hafa sextíu ára aldri, þeir yrðu einungis fimm, eða 7,9% en voru 12,7% í kosningunum 2009. Flestir þingmenn koma úr aldursflokknum 40 til 49 ára, þó sjónarmun færri en í síðustu kosningum, þegar þeim fjölgaði til muna. Þing- mönnum á sextugsaldri fjölgar lítillega nú en þeim fækkaði verulega 2009. Heldur færri þing- menn myndu setjast á þing nú en síðast úr ald- ursflokknum 30 til 39 ára en mikill stöðugleiki hefur verið í þeim flokki í síðustu þrennum kosningum. Athygli vekur að Katrín Jakobsdóttir, for- maður Vinstrihreyfingarinnar - græns fram- boðs, yrði langyngsti þingmaður síns flokks. Hún er 37 ára en næstyngstar yrðu Svandís Svavarsdóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, báðar 48 ára. Samkvæmt könnuninni falla fjórtán þing- menn, sem sækjast eftir endurkjöri, út af þingi nú, en aðrir fjórtán hafa dregið sig í hlé eða lutu í lægra haldi í prófkjörum sinna flokka. Það þýðir að 28 nýir þingmenn myndu koma inn í vor, þar af helmingurinn framsóknarmenn. Þess má geta að einungis níu menn sátu á Alþingi fyrir Fram- sóknarflokkinn á síðasta kjörtímabili. Meðal þingmanna sem ekki ná kjöri eru fjórir fyrrverandi ráðherrar, Kristján L. Möller og Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingu, Álfheiður Ingadóttir, VG, og Jón Bjarnason sem nú býður sig fram fyrir hönd Regnbogans. Möguleikar Framsókn yngir ræki Morgunblaðið/Eggert
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.