Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.4. 2013 Föt og fylgihlutir Arnar Már Jónsson er 23 ára og hefur haft áhuga á fatahönnun frá unglingsaldri. Hann er annar tveggja karlkyns nemenda sem útskrifast í ár en á fyrsta ári stunda fimm strákar nám og áhugi þeirra því augljóslega fyrir hendi. Arnar Már hefur unnið talsvert með textíl í gegnum árin sem má segja að fari hönd í hönd við fatahönnun og hefur hann hug á að vinna með hvoru tveggja í framtíðinni. „Skemmtilegast við námið er klárlega útskriftarsýningin en margt við námið hefur komið mér skemmtilega á óvart. Ég kunni t.d. ekkert að sauma þegar ég hóf nám en tel mig vera nokkuð góðan í því í dag,“ segir Arnar Már. Hann vann út- skriftarlínuna sína út frá útópískum heimi sem hann bjó til og byggði á því að textíll væri lifandi. Eftir alls konar prufur varð sú hugmynd ofan á að flíkur væru sífellt að umbreytast og end- urspeglar fatnaðurinn það. Arnar Már hefur t.a.m. búið til göt á fötin úr gömlu jakkaefni og saumað á milli, blandað saman hálfri peysu og hálfum jakka og þar fram eftir götunum. „Ég vildi nýta efnin eins vel og ég gat og nýtti það langmest með því að slíta þræði úr jökkum og nota á fötin. Ég notaði mestmegnis íslenska ull sem ég vann með og þæfði, litaði og gerði mýkri. Glófi sá mér fyrir allri ull og prjón sem var mjög gott,“ segir Arnar Már. Hann segir áhrifavald sinn í hönnun helst vera Raf Simons þó svo að sín eigin hönnun sé ekki sérlega lík hans. ARNAR MÁR JÓNSSON Lifandi textíll í útópískum heimi Arnar notar mestmegnis íslenska ull sem hann þæfir og mýkir. Morgunblaðið/Rósa Braga Bethina Elverdam Nielsen er dönsk að uppruna en hefur búið hérlendis í fjögur ár. Það hafði ætíð blundað í Bethinu að læra fatahönnun en hún prófaði þó fyrst að læra viðskiptafræði og fann að það hentaði sér ekki. Þó segir hún viðskiptafræðina eflaust geta komið til góða síðar meir með hönnuninni. „Ég hef alltaf saumað mikið og leikið mér með mismunandi stíl. Ég saumaði mér t.d. búninga áður en ég fór á tónleika þeg- ar ég var yngri. Skemmtilegast við námið er hvernig það hefur ýtt mér í nýja átt. Áður en ég byrjaði í náminu hélt ég að ég gæti mun meira en var í raun og ég hef lært ótrúlega mikið á þessum tíma,“ segir Bethina. Línan hennar Bethinu er klassísk og innblásin af þeim breyt- ingum sem urðu á kventískunni í byrjun 20. aldarinnar. Þá byrjuðu konur að ganga í buxum og um leið urðu pilsin víðari og þægilegri. Má segja að þessi tími hafa verið ákveðinn frelsistími í kvenfatnaði og segir Bethina hafa verið gaman að sökkva sér ofan í rannsóknarvinnu um þessar breytingar sem síðan skili sér í hönnuninni. Hún notar mikið til ull og silki í fatnaðinn en einnig leður sem hún hefur prentað á sjálf. „Ég hef alltaf verið meira fyrir götustíl heldur en eiginlega tísku og get því ekki nefnt ákveðinn áhrifavald í minni hönnun. Auðvitað er alltaf eitthvað flott og spennandi í kringum mann en ég sæki líka minn innblástur í lista- og mannkynssöguna,“ segir Bethina. BETHINA ELVERDAM NIELSEN Frelsi í kvenfatnaði einkennir útskriftarlínu Bethinu. Morgunblaðið/Rósa Braga Konur í buxum innblásturinn Elísabet Karlsdóttir er 24 ára og segir það hafa legið beint við að fara í fatahönnunarnám enda hafi hún haft áhuga á hönnun alveg síðan hún hannaði dúkkulísuföt í barnæsku. „Ég hef alltaf saumað mikið á sjálfa mig en ég hef aldrei get- að gert neitt eftir uppskrift heldur hef frekar viljað breyta þeim eftir eigin höfði. Þetta hefur verið kostur í náminu þar sem að lögð er áhersla á að hanna eftir eigin hugmyndum,“ segir Elísabet. Hún segir að það hafi verið mjög gott við námið að fá leiðsögn og mest hafi það gefið henni að vinna raunveruleg verkefni eins og lokatískusýninguna. Í þeim undirbúningi kynnist nemendur líka fleiri hliðum tískuheimsins. Lína Elísabetar er innblásin af gráköldum veruleika Sovéts- ins þar sem hún vinnur með grátóna skala og notar Sovét- blokkirnar í mynstur á efnið. „Ég hafði lengi verið að velta fyrir mér myndum af Sovét- blokkum sem ég tók á ferðalagi og hugsaði með mér hvort ég gæti ekki notað þær einhvern veginn. Þetta varð síðan niður- staðan en ég nota mjúk efni eins og feld, flauel og ullarefni til að fá smá mýkt í línuna í bland,“ segir Elísabet. Hún segir helst fylgjast með hönnun Christophers Kanes. Hann sé spennandi og upprennandi ferskur hönnuður sem sé óhræddur að blanda saman hefðbundnum og óhefðbundnum stíl. Eftir útskriftina langar Elísabetu að reyna fyrir sér erlendis og þá helst að komast í starfsnám eða vinnu í London. ELÍSABET KARLSDÓTTIR Sovétblokkir eru skemmtilega óvenjulegt mynstur á fatnaði. Morgunblaðið/Rósa Braga Grákaldur veruleiki Sovétsins Tíu manna hópur fatahönnunarnema útskrifast umþessar mundir af fatahönnunarbraut ListaháskólaÍslands eftir þriggja ára nám. Í náminu er lögðáhersla á fagmennsku og framsækni nemenda. Blaðamaður og ljósmyndari litu inn þar sem nemendur voru í óðaönn að undirbúa útskriftarsýningu sína. „Þau eru öll að vinna með eigin stíl og hugmyndin þarf að vera glæný og ekki eitthvað sem þú gætir keypt úti í næstu verslun. Að geta komið með eigin hugmyndir tryggir árangur í framtíðinni en um leið verður fatnaður- inn að vera tískufatnaður og eitthvað sem hægt er að ganga í,“ segir Linda Björg Árnadóttir, aðjunkt og fags- tjóri fatahönnunarbrautar. Fatnaður nemendanna er eins fjölbreyttur og þeir eru margir en Linda segir að þar megi sjá sitt lítið af hverju, þjóðleg áhrif, framúrstefnuleg og allt þar á milli. Gestakennarar hafa vanið komur sínar í deildina en í vetur var gestakennarinn Robert Cary-Wiliams. Linda segir gott að fá erlenda kennara í heimsókn sem gjarnan hugsi langt út fyrir boxið til að hrista upp í krökkunum. Spurð um framhaldið hjá nemendum í kjölfar útskriftar segir Linda að þeir séu margir með ákveðnar hugmyndir. Nokkrir séu ákveðnir í að vinna í útlöndum en spenn- andi tækifæri hafa skapast með samstarfi við tískuversl- unarkeðjuna H&M. Síðastliðin tæp tvö ár hafa tveir nýút- skrifaðir nemendur verið ráðnir þangað til starfa. „Starfsmannastjóri H&M kemur á tískusýninguna í ár og tekur alla nemendur í starfsmannaviðtöl. En í fyrra sendum við portfólíó nemenda út til hennar. Ég hef reynt að nýta þau sambönd sem ég hef komið upp til að koma nemendum að hjá fyrirtækjum sem þau hafa áhuga á að vinna hjá. Ég hef rekið mig á að oft átta þau sig ekki á þeim tækifærum sem þau hafa og nýta þau ekki eins vel og þau gætu. En það er mikilvægt að grípa tækifærin um leið og þau gefast,“ segir Linda. Aðsókn í fatahönnunarnám hefur verið jöfn og þétt en Linda segir einn af hverjum fjórum umsækjendum komast að. „Það er fín stærð að hafa tíu nemendur í hópnum. Það er alveg mátulega mikið álag á kennarana því námið er að stórum hluta samræður við einstaklinginn. Það sem hefur gerst hins vegar síðastliðin ár er að ég er alltaf að fá betri og betri umsækjendur sem vita æ meira um fagið. Ef þú hefur á annað borð áhuga á tísku hefur þú enga afsökun fyrir því að koma af fjöllum í inntöku- viðtalinu. Ég vil fá þá tilfinningu að viðkomandi hafi kynnt sér og viti eitthvað um tísku, geti nefnt hönnuði og blöð og sé sæmilega vel að sér,“ segir Linda og bætir við að þeir nemendur sem hafi útskrifast síðastliðin ár úr fata- hönnun hafi gjörbreytt landslaginu í tískuheiminum og taki þátt í að byggja upp fag sem eigi framtíðina fyrir sér. Fatahönnun er fag sem á framtíðina fyrir sér ÚTSKRIFTARLÍNUR FATAHÖNNUNARNEMA AF FATAHÖNNUNARBRAUT LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS ERU JAFN ÓLÍKAR OG NEMENDURNIR ERU MARGIR. HÉR MÁ SJÁ BROT AF ÞVÍ SEM ÚTSKRIFTARNEMENDUR HAFA HANNAÐ Í ÁR. María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.