Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.4. 2013
Ferðalög og flakk
V
egalengdin sem kepp-
endur leggja að baki er
um 1820 km og liggur
leiðin um fjöll og firn-
indi frá Anchorage allt til bæj-
arins Nome við Beringssundið. Í
ár lögðu 66 keppendur af stað,
en 16 hundar fara fyrir hverjum
sleða.
Mikið gengur á í startinu. Yfir
1000 hundar bíða spenntir eftir
að komast af stað, mikið um
hróp og köll og hundarnir gelta
og spangóla. Keppendur geta lent
í óveðrum á þessari löngu leið
um óbyggðir Alaska og frostið
fer niður í allt að -50°C.
Hvað er Iditarod?
Keppninni var komið á fót til
minningar um sleðahunda og
björgunarafrek þeirra. Árið 1925
kom upp skæð barnaveiki í
Nome. Um miðjan vetur var
bóluefnið flutt á hundasleðum yfir
1000 km leið. Frægastur forystu-
hunda þessa mikla björgunarleið-
angurs var hundurinn Balto sem
varð þjóðsagnarpersóna í Banda-
ríkjunum og er koparstyttu af
þessum fræga hundi að finna í
Central Park í New York.
Leiðin
Fyrsta verkefni keppenda er að
komast yfir Alaska-fjallgarðinn. Á
þeirri leið þarf að fara um há og
þröng fjallaskörð og getur fann-
fergi verið mikið og auk þess
snjóflóðahætta. Annar hlutinn
liggur norður að Yukon-fljótinu.
Á þessum hluta leiðarinnar getur
verið mjög snjólétt og í ár voru
um 60 km nánast snjólausir.
Þriðji hluti liggur síðan um 400
km eftir Yukon fljótinu. Loka-
áfanginn er síðan um ísinn á
Beringshafinu til Nome, um 400
km leið.
Leiðinni liggur á milli þorpa
indíána og eskimóa, sæluhúsa og
gullgrafarabæja. Keppnin dregur
nafn sitt af einum slíkum, Idit-
arod en þar fannst gull árið
1908.
Um 900 einstaklingar leggja
fram um 40.000 vinnustundir við
undirbúning og framkvæmd.
Fjöldi manns kemur víða að úr
heiminum ár eftir ár til að
leggja fram sjálfboðna vinnu.
Einn hópur sjálfboðaliða eru flug-
menn sem leggja fram tíma og
flugvélar til flutnings matarbirgða
og sjálfboðaliða út á áfangastaði.
Annar hópur telur 50 dýralækna
en á hverjum áfangastað eru
tveir til þrír dýralæknar sem
taka á móti hverju teymi þegar
komið er í hlað og er hver ein-
asti hundur hlustaður og skoð-
aður nákvæmlega og síðan úr-
skurðaður hæfur til að halda
áfram eða ekki. Auk fram-
angreinds leysa síðan sjálf-
boðaliðar af hendi fjöldann allan
af störfum sem fylgja keppn-
ishaldinu.
Flestir keppendur í Iditarod
koma frá Alaska. Í ár tóku einn-
ig þátt keppendur frá Brasilíu,
Jamaica, Nýja-Sjálandi, Noregi og
Rússlandi. Það krefst mikillar
reynslu og þekkingar að verða
með þeim fremstu auk verulegra
fjárhæða. Sumir keppendur búa
einnig að reynslu þeirra sem
eldri eru þar sem hundaræktun
og keppni er fjölskyldusport sem
stundað hefur í fleiri en einn
ættlið. Sigurvegarinn í fyrra og
jafnframt yngsti sigurvegari
keppninnar Dallas Seavey er t.d.
barnabarn Dan Seavey sem varð
þriðji í mark í fyrstu keppninni
fyrir 41 ári. Faðir Dallas, Mitch
var fyrstur í mark árið 2004 og
stóð einnig uppi sem sigurvegari
í ár.
Hundarnir
Upphaflegu sleðahundarnir í
Alaska voru hundar eskimóanna
en það eru taldir vera fyrstu
hundar sem urðu að húsdýrum
manna. Fljótlega eftir komu
hvítra manna var farið að kyn-
IDITAROD 2013
Lengsta og erfiðasta
hundasleðakeppni í heimi
HIN ÁRLEGA IDITAROD HUNDASLEÐAKEPPNI VAR HALDIN Í ALASKA Í MARS. ÞÚSUND HUNDAR
FÓRU FYRIR 66 SLEÐUM YFIR 1800 KÍLÓMETRA LEIÐ Í FIMBULKULDA. HJÓNIN ÞÓRA HRÖNN OG
SIGURJÓN FYLGDU KEPPNINNI EFTIR EN ÞETTA VAR FIMMTA FERÐ ÞEIRRA TIL ALASKA. ÞAÐ HAFÐI
VERIÐ DRAUMUR ÞEIRRA Í FIMM ÁR AÐ MYNDA ÞESSA LENGSTU HUNDASLEÐAKEPPNI HEIMS.
Texti og myndir: Þóra Hrönn Njálsdóttir og Sigurjón Pétursson sigurjonp@gmail.com
60
g áferð að eigin vali
Íslensk hönnun og framleiðsla
nun frá 19
elja um lit o
r. 24.300
E60-
Klassísk hön
Hægt að v
Verð frá k