Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Page 20
*Heilsa og hreyfingHægt er að draga úr streitu og stuðla að heilbrigði með því að hlæja á hverjum degi »22 L eitin að leyndarmálum golfsveiflunnar byrjaði strax eftir að fyrsta höggið var slegið. Sunnudagsblað Morgunblaðsins fylgdist með þegar Brynjar kenndi Bjarna Ólafi Eiríks- syni, leikmanni Vals í fótbolta. Bjarni hefur spilað mikið golf síðustu ár en hefur aldrei farið í kennslu. Hann er með 14,1 í forgjöf en með tækninni gat Brynjar greint hvað Bjarni þarf að gera til að bæta sig og ná stöðugleikanum sem margir kylfingar leita eftir. „Þetta snýst svolítið um það. Að fólk geti gengið upp á teig og vitað hvert það er að fara að slá. Við erum með tvær vélar sem taka upp sveifluna frá tveimur sjónarhornum svo er ég með háhraðamyndavél þegar menn eins og Bjarni koma. Þeir sem eru með góða sveiflu og venjuleg myndavél nær ekki sveifluhraðanum þá er gott að geta gripið í háhraðavélina. Menn geta alltaf bætt sig í þessari íþrótt hvort sem það eru byrjendur eða Íslandsmeistarar og þar koma þessi helstu vísindi inn. Eftir að golfkennsla fór að nota tæknina hefur orðið algjör bylting í kennslu,“ segir Brynjar en hann og ProGolf skólinn eru leiðandi í kennslu hér á landi. Með aðstoð tæknibúnaðar hafa komið í ljós munstur þegar fólk leitar að leyndarmálum sveifl- unnar. „Við erum með kennslu allt árið og svo sjáum við um unglingakennslu hér í Básum þar sem við erum staðsettir. Við erum í miklu samstarfi við Golfbúðina Örninn uppi á Bíldshöfða varðandi tæki sem getur greint sveifluna enn frekar og leiðbeint fólki hvaða kylfur eigi að kaupa og fleira. Það eru alltof margir uppteknir af smáatriðum sem skipta ekki máli.“ Brynjar gat lagað ýmislegt hjá Bjarna. Hann þarf að laga gripið, hann læsir hnénu, kylfan vísar ekki rétt í uppsveiflunni og hægri fóturinn er útskeifur í staðinn fyrir að vera beinn. Bjarni hefur spilað golf í Noregi og Danmörku, þar sem hann var atvinnumaður í fótbolta, segir að hann muni taka þessari leiðsögn og nýta hana í sumar. Hann geti í raun ekki beðið eftir sumrinu. Bæði til að spila fótbolta og golf. Þrátt fyrir tæknina er mannlegi þátturinn mikilvægur. Morgunblaðið/Golli Eftir sveiflugreiningu kom í ljós að Bjarni á að nota stíf sköft. Hér má sjá hvernig Bjarni sló eitt högg. Notast var við fleygjárn. Bjarni greindur. Við hliðina er Haraldur Franklín Magnús Íslandsmeistari. „Við erum með frábært forrit í iPadinum sem við notum mikið.“ GOLFKYLFURNAR Á LEIÐ ÚR VETRARDVALA BRYNJAR GEIRSSON, GOLFKENNARI HJÁ PROGOLF, ER MEÐ NÝJUSTU TÆKNI TIL AÐ SKOÐA NEMENDUR SÍNA. HÁHRAÐAMYNDAVÉL, FORRIT Í IPADINUM OG TVÆR MYNDAVÉLAR ÁSAMT FORRITI Í TÖLVU. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Sveiflan komin á 21. öldina Tveir góðir. Brynjar og Bjarni fara yfir málin.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.