Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Side 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Side 45
ríkisstjórn stuðning fjölmiðlanna. Fréttastofa ríkis- útvarpsins, uppnefnd „RÚV“ af sjálfri sér, hefur fylgt ríkisstjórninni betur en flokksbundnir stuðningsmenn hennar, sem eru raunar margir hættir sínum stuðn- ingi öfugt við „RÚV“. Fréttablaðið og ljósvikamiðlar gamla Baugs hafa ekki verið langt undan allan tímann. Hið „frjálsa og óháða“ Dagblað hefur verið eins og pólitískur síams- tvíburi ríkisstjórnarinnar, sem hún er auðvitað ekki öfundsverð af. Meira að segja Morgunblaðið stóð í að- draganda og upphafi ferils fráfarandi ríkisstjórnar að gagnrýnislausri þjónkun við hana, á borð við þá sem Fréttablaðið sýnir nú, að svo miklu leyti sem það sinn- ir fréttamennsku sem virðist núorðið hrein aukaafurð í þeirri starfsemi. En þrátt fyrir óskabyrjun og ein- stakt og yfirgengilegt fjölmiðlaskjól allan tímann, stendur lítið sem ekkert eftir af stuðningi við ríkis- stjórnina. Nú hefur hún sett upp „flóttamannabúðir“ svo villuráfandi fyrrverandi stuðningsmenn á eyði- merkurgöngu geti slysast þangað í skjól. En sífellt fleiri sjá í gegnum það hrófatildur sem á því ekki bjarta framtíð. Hið banvæna faðmlag Og er þá rétt að víkja að enn einni „viðurkenndu“ kenningunni, sem mjög er hampað í kringum kosn- ingar. Stjórnmálamenn og frétta- og fræðimenn, sem bundnir eru þeim sömu í anda og fylgispekt, en gæta þess að flokksskírteini sé alls ekki gefið út, flytja kenninguna oft og drýgindalega. Hún eru sú „að það tapi allir flokkar á því að fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum“. Þetta hefur verið áréttað árum saman af spekingunum og pólitískum lagsbræðrum þeirra, af sama öryggi og þegar sagt er að sólin komi upp í austri. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði verst á síðustu öld þeg- ar hann hafði verið í stjórn með Framsókn. Flokknum hefur aldrei dottið í hug að kenna Framsókn um það. Ríkisstjórnin sú hafði um margt verið prýðileg. Hún tók við mun snúnara búi en sú sem sífellt hefur verið að barma sér að undanförnu. Verðbólgan var rúmlega 80 prósent á ári og fór upp í 120 prósent mánuðina áð- ur en sú ríkisstjórn tók við. Miklu betur var um að lit- ast í lok þess tímabils. Sjálfstæðisflokknum tókst samt að tapa. Og enn verr tapaði hann svo vorið 2009 en flokksmenn höfðu lengi vonað að 1987 yrði jafnan talin hans daprasta tíð. Vorið 2009 kom flokkurinn úr ríkisstjórn með Samfylkingu, sem átti, ef réttlætis- kvarði er notaður, að sæta sama áfalli a.m.k. og sam- starfsflokkurinn. Það gerði Samfylkingin ekki. Samanburðurinn Framsóknarflokkurinn fékk mjög viðunandi kosningu í stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn bæði 1999 og 2003 þótt útkoma hans árið 1995, eftir fjögur ár í stjórnarandstöðu, hafi verið enn hagstæðari. En á þessu kjörtímabili hefur Samfylkingin verið svo lánsöm að hafa verið í stjórnarsamstarfi við VG og engan annan (og eru þá varahjólin, Hreyfing og Guð- mundur Steingrímsson, ekki talin með). Og VG hefur verið svo lánsamt að hafa verið í stjórn með andlegum vopnabróður, Samfylkingunni. Og ekki verður betur séð, ef marka má spár, en að varla hafi nokkur ríkis- stjórn Íslands goldið annað eins afhroð í kosningum eftir aðeins fjögurra ára feril. Sjálfstæðisflokkurinn fór þannig í gegnum fernar kosningar í röð, 1991, 1995, 1999 og 2003, að hann var jafnan talinn sjálfkjörinn til stjórnarmyndunar. Ríkis- stjórnir voru myndaðar fljótt og örugglega og þær sátu allar út kjörtímabilið. Það var auðvitað gleðiríkt fyrir alla þá sem þar áttu hlut að máli. En þýðingar- mest var að hagur alls almennings batnaði jafnt og þétt allan þennan tíma, kaupmáttur óx jafnt og þétt, skuldir ríkisins minnkuðu ört og verðbólga var hófleg, svo „verðtryggingin“ sem nú er ofarlega á baugi, var sárasjaldan til umræðu. Það gæti verið fróðlegt að birta næstu dagana aðgengilegar töflur sem sýna glöggt, hvaða áhrif það hefur fyrir lífskjör fólks og þrótt fyrirtækja, að festa og frumkvæði, afl og öryggi sé einkennismerki stjórnarfars og leiðsagnar í land- inu. Morgunblaðið/Kristinn 21.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.