Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Side 53
Rugguhestur Sá sem átti þennan ruggu-
hest er fæddur árið 1950 og leikfangið er
smíðað á 6. áratug síðustu aldar. Töluvert
er til af leikföngum á Þjóðminjasafninu.
Brúður, bílar og fleira. Þau eru nær öll frá
20. öld enda ekki mikið um leikföng fyrir
þann tíma. Víða má finna rugguhest á heim-
ilum og margir vilja koma því til safnsins til
varðveislu. Líklega var hesturinn smíðaður,
málaður og skreyttur á Íslandi.
Konunglegur ferðakamar Þegar Friðrik VIII Dana-
konungur var í konunglegri heimsókn á Íslandi árið
1907 dugði ekkert minna en ferðakamar þegar kon-
ungurinn létti á sér. Í kamrinum er skál eða koppur.
Hægt er að opna hann að framan til að ná í koppinn
til að hreinsa hann. Þetta er íslensk smíði en ekki er
vitað hver smíðaði hann. Kamarinn er fagurlega
málaður og með sértilgerðum vatnsbúnaði sem var
fátíður í þá daga. Konungurinn heimsótti meðal
annars Þingvelli og Geysi á ferð sinni.
Predikunarstóll Þessi kemur
úr Staðarfellskirkju í Dölum og
er talinn frá því um 1600.
Maðurinn sem skar hann út
heitir Gísli Guðbrandsson. Á
stólnum má sjá Pétur, Pál,
Lúkas og Jóhannes postula út-
skorna. Eins eru útskorin guð-
spjallamerkin lykill, naut, ljón og dreki.
Stóllinn sver sig í ætt við tíðarandann.
Andlitin eru klossuð og útskurðurinn
er frumstæður og kannski gerður
meira af vilja en mætti.
Skrifborð Jónasar
Hallgrímssonar Borðið
kemur til safnsins frá Páli Mel-
steð sagnfræðingi árið 1924
en hafði verið í einkaeigu
fram að því. Jónas dó árið
1845 en talið er að hann hafi
átt borðið frá 1839-1842 í
Reykjavík. Þá ritaði Jónas
meðal annars verk um nátt-
úrufar á Íslandi eftir að hann
fékk styrk til þess frá íslenska
ríkinu.
Legsteinn frá 16. öld Undir
þessum steini hvíldi Úlfheiður Þor-
steinsdóttir sem bjó að Burstafelli
sem er einhver best varðveitti
burstabær landsins. Eiríkur Þor-
steinsson, sonur hennar, lét smíða
steininn í Þýskalandi og er hann
fagurlega útskorinn. Steinninn
barst til Reykjavíkur á 17. öld en er
nú í geymslu Þjóðminjasafnsins.
Vaðmálsúlpa Þessi flík var gerð árið 1925
og er dæmigerð fyrir klæðnað sveitafólks
þess tíma. Úlpan kemur frá Húsafelli. Vað-
málið í úlpunni er heimaofið og garnið var lit-
að með sortulyngi.
Úlpan er ofin af Þorsteini Jónssyni úr Borg-
arfirði og hefur greinilega verið mikið notuð
enda er hún slitin eftir sveitastörf.
21.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Málþing um Eirík Magnússon
(f. 1833 – d. 1913) bókavörð
í Cambridge haldið í Þjóð-
arbókhlöðu 20. apríl kl. 14-
16:30. Á sama tíma er opnuð sýning
um Eirík sem var mikilvirkur þýðandi
og útgefandi ýmissa fornrita.
2
Norræna bíóleikhússýningin
The Gerpla Drive verður
sýnd í Tjarnarbíói bæði laug-
ardags- og sunnudagskvöld
kl. 20. Meðal leikara er Þórey Sig-
þórsdóttir en verkið fjallar um hrun í
bæði efnahagslegum og persónu-
legum skilningi. Leikstjóri og höf-
undur er Arn-Henrik Blomqvist.
4
Ari Þór Vilhjálmsson og Svan-
ur Vilbergsson leika á fiðlu og
gítar á tónleikum í bókasal
Þjóðmenningarhússins 20.
apríl kl. 17. Á efnisskránni eru verk
eftir N. Paganini, A. Piazzolla og A.
Ourkouzounov.
5
Rakel Pétursdóttir safna-
fræðingur verður með leið-
sögn um sýningarnar Gamlar
gersemar og Erlendir áhrifa-
valdar í Listasafni Íslands 21. apríl kl.
14. Hér má sjá verk úr safneign Lista-
safnsins sem áhugavert er að skoða
með hliðsjón af samspili íslenskrar og
erlendrar listar en tíundi hluti safn-
eignar er eftir erlenda listamenn.
3
Söngvarinn Þór Breiðfjörð fer
yfir feril sinn í tali og tónum í
Salnum í Kópavogi laugardag-
inn 20. apríl kl. 20:30. Þór
flutti heim sl. vetur til að syngja hlut-
verk Jean Valjean í söngleiknum Vesa-
lingunum eftir farsælan feril erlendis.
MÆLT MEÐ
1
Hátíðartónleikar verða haldnir íHallgrímskirkju sunnudaginn 21.apríl kl. 17 í tilefni af endurnýjun
Klais-orgels kirkjunnar, sem lauk nú um
páskana. Á tónleikunum flytja Mótettukór
Hallgrímskirkju og Björn Steinar Sólbergs-
son organisti hátíðartónlist fyrir kór og
orgel undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Á efnisskránni eru verk eftir Hafliða
Hallgrímsson, Louis Vierne og William
Walton. „Burðarás efnisskrárinnar er Há-
tíðarmessa fyrir tvö orgel og kór eftir
franska tónskáldið Louis Vierne, sem
frumflutt var í kirkjunni St. Sulpice í Par-
ís á páskadag árið 1900. Hin verkin eru
Lofið Guð í hans helgidóm fyrir kór,
trompet, hörpu, slagverk og orgel eftir
Hafliða Hallgrímsson frá 1996/2012 og
Coronation Te Deum eftir William Walton
frá 1953. Verk Waltons var samið fyrir
krýningu Elísabetar Englandsdrottningar
og frumflutt í Westminster-kirkjunni í
London við það tækifæri. Auk þess leikur
Björn Steinar Carillon de Westminster og
Impromtu, vinsælar orgelfantasíur eftir
Vierne,“ segir m.a. í tilkynningu frá List-
vinafélagi Hallgrímskirkju sem sér um
skipulagningu tónleikanna.
Með kórnum koma fram auk Björns
Steinars þau Lenka Máteóvá organisti,
Ásgeir H. Steingrímsson trompetleikari,
Elísabet Waage hörpuleikari og Frank
Aarnink slagverksleikari.
FAGNA NÝLOKINNI ENDURNÝJUN KLAIS-ORGELS KIRKJUNNAR
Hátíðartónleikar í Hallgrímskirkju
SKIPULEGGJENDUR SEGJA VERKIN
Á EFNISSKRÁNNI TÚLKA ÞAKKAR-
GJÖRÐ TIL SKAPARANS FYRIR LÍFIÐ,
KÆRLEIKANN OG LISTINA.
Hörður Áskelsson og Björn Steinar Sólbergsson ásamt hluta Mótettukórs Hallgrímskirkju.
Morgunblaðið/Ómar