Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Qupperneq 24
*Heimili og hönnunÁ Loft hostel í Bankastræti er vistvæn hönnun í fyrirrúmi og frábært útsýni af svölunum »32
A
lmanakið list í 365 daga er svokall-
að „tear-off“ dagatal af gömlu,
góðu gerðinni þar sem við blasir
nýr dagur þegar sá á undan er rif-
inn af. Almanak þetta verður þó mun stærra í
sniðum en gengur og gerist en þar munu 365
listamenn af ýmsum sviðum eiga sinn dag.
Verður almanakið litprentað verk og mun
vega um þrjú kg. Það eru þau Lind Völund-
ardóttir og Tim Junge sem setja almanakið
saman en þau starfa saman undir merkinu
art365.is. Verkefnið er hluti af lokaverkefni
Lindar úr menningarstjórnun við Háskólann í
Bifröst en Tim hefur starfað lengi sem graf-
ískur hönnuður í heimalandi sínu Hollandi.
Almanakið er m.a. hugsað til að skapa vett-
vang fyrir hinar fjölbreyttu starfsgreinar sem
rúmast innan listsköpunar og skapandi greina
og um leið að veita áhorfendum innsýn í þá
flóru sem blómstrar hérlendis.
„Við viljum hafa þetta fjölbreytt og blöndum saman þekktum
listamönnum við yngri listamenn og þá jafnvel
nýútskrifaða nemendur. Ég held líka að það vanti stað þar sem
allir listamenn geta rúmast saman en okkur hættir til að hólfa þá of
mikið niður,“ segir Lind. Þau hafa nú fengið 200 listamenn til liðs
við sig en vantar helst fleiri hönnuði og ljósmyndara.
„Ljósmyndasafn Reykjavíkur aðstoðar okkur við að ná í ljós-
myndara og svo verður bara bankað upp á hjá þeim síðustu,“ segir
Lind í léttum dúr. Lind og Tim sammælast um að nokkuð vel hafi
gengið að ná í listamenn til verksins. Helst hái þeim að sumir vilji
kynnast hugmyndinni fyrst og sjá hvernig hún virki.
„Samskiptin við listamennina hafa verið
skemmtileg en mikill munur þar á. Yngri
hönnuðir og listamenn virðast vinna skilvirkar
og ganga í málið eins og skot fái þeir boð sem
þessi,“ segir Lind en þau Tim eru sammála
um að slíkt almanak sé hægt að gefa út í það
minnsta nokkur ár í röð þar sem af nógu sé
að taka og sífellt komi nýir listamenn fram á
sjónarsviðið.
Myndir munu skreyta síður almanaksins
þar sem það á við en textar skáldanna í hópn-
um verða ekki endilega myndskreyttir heldur
er miðað að því að fólk geti frekar búið til eig-
in mynd í huganum. Þannig geti fólk örvað
sköpunarkraftinn um leið og dagatalið kveikir
áhuga fólks á ólíkum listsviðum. En líkt og áð-
ur sagði eru listamennirnir af ólíkum sviðum
og þar má finna arkitekta, skartgripasmiði,
fatahönnuði, keramiklistamenn, vöru- og graf-
íska hönnuði.
Til að hrinda verkefninu í framkvæmd leita Lind og Tim hefð-
bundinna styrkja en bjóða einnig fyrirtækjum sem vilja styðja við
bakið á sköpun og menningu í landinu að birta merki sitt á síðum
almanaksins. Miðað er að því almanakið fáist til að byrja með í for-
sölu en síðar meir í bóka- og hönnunarverslunum. Vonast Lind og
Tim til að geta náð kostnaði niður með styrkjum þannig að verðið
verði aðgengilegt almenningi en almanakið er einnig hugsað sem til-
valin gjöf til viðskiptavina jafnt innan landsteina sem utan. Þá hefur
Tim einnig búið til kort með listagalleríum í Reykjavík og sett inn
upplýsingar um þá listamenn sem eiga verk í almanakinu á vefsíð-
unni www.art365.is
Guðjón Ketilsson, myndlistarmaður, í mars.
Finnur Arnar, myndlistarmaður, í október.
Lind Völund-
ardóttir og
hundurinn Kátur.
Morgunblaðið/Eggert
365 LISTAMENN AF ÝMSUM SVIÐUM SAMEINAÐIR Á EINUM STAÐ
Þriggja kílóa almanak
ALMANAKIÐ LIST Í 365 DAGA SKAPAR SAMEIGINLEGAN VETTVANG FYRIR ÍSLENSKA LISTAMENN AF ÓLÍKUM SVIÐ-
UM. MARKMIÐIÐ ER AÐ KYNNA LISTAMENNINA OG UM LEIÐ AÐ VEKJA ÁHUGA FÓLKS Á NÝJUM LISTSVIÐUM.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Jón Helgi Hólmgeirsson, vöruhönnuður, í maí.
Guðrún Gunnarsdóttir, myndlistarmaður, í júlí.