Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.4. 2013 Matur og drykkir V öfflur er klassíkt að baka um helg- ar og bjóða í gott helgarkaffi. Það getur verið skemmtilegt að leika sér dálítið með vöffludeigið og gera það óhefðbundið. Vöfflurnar sem hér er gefin uppskrift að innihalda engin egg og eru meira í líkingu við hollenskar kara- melluvöfflur sem kallast á hollensku „stro- opwafel“. Þær eru þunnar með karamellu- kenndu sýrópi á milli og hafa verið búnar til í Hollandi síðan seint á 18. öld. Það má rekja til þess að bakarar í hollensku borg- inni Gouda bökuðu gjarnan kökur úr af- göngum, t.d. brauðmylsnu sem sýrópi var bætt saman við. Áður fyrr voru fjölmargir slíkir vöfflubakarar í Gouda en árið 1960 voru 17 slíkar verksmiðjur í borginni. Hefðin er sú að leggja vöffluna yfir bolla með heitum drykk. Þannig verður vafflan mýkri að innan en stökk að utan og hið mesta góðgæti með góðu kaffi eða te. Þetta má prófa fyrir þá sem baka vöfflurnar í panínigrilli og forma í hringlaga kökur. Vöfflur sem þessar er best að baka litlar en þær verða dálítið stökkar og eru góðar með te- eða kaffibolla. Morgunblaðið/Kristinn Á vöfflurnar er gott að nota súkkulaðismjör og jafnvel búa til samlokur úr þeim séu þær mót- aðar sem hringlaga kökur. Gott morg- unverðarte gerir góðar vöfflur enn þá betri. VÖFFLUR MEÐ ÖÐRU SNIÐI Mjúkar að innan stökkar að utan ÞAÐ ER UM AÐ GERA AÐ PRÓFA SIG ÁFRAM MEÐ ÓHEFÐBUNDINN VÖFFLUBAKSTUR. ÞESSAR VERÐA MEIRA EINS OG HOLLENSKAR KARAMELLUVÖFFLUR, LITLAR OG STÖKKAR, EN ÞÆR MÁ LÍKA FORMA SEM KRINGLÓTTAR KÖKUR OG BAKA ÞÁ Í PANÍNÍGRILLI. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Hollenskir bakarar byrjuðu að baka karamelluvöfflur á 18. öld. AFP 1 bolli rjómi 1 ½ tsk vanilluessens 1½ bolli flórsykur 1½ bolli hveiti ¼ tsk kanill 1 msk kartöflumjöl Aðferð Hrærið rjómann og vanilluessens saman í hrærivél þar til að áferð rjómans hans er orðin nokkuð þétt en þó mjúk. Sigtið saman flórsykurinn, hveitið, kanil og kartöflumjöl saman í skál, blandið saman og bætið síðan var- lega saman við rjómann. Setjið síðan plastfilmu yfir skálina og látið bíða við stofuhita í 30 mínútur. Fyrir þá sem eiga panínígrill skal hita það við meðalhita og setja góða matskeið af deigi á miðju grillsins. Lokið og bakið í um eina og hálfa mínútu. Takið síðan vöffluna úr grill- inu og notið um 5 cm breitt köku- mót eða glas til að skera út köku úr deiginu. Ef slíkt grill er ekki til á heimilinu má nota gamla, góða vöfflujárnið og gera þá litlar vöfflur úr deiginu. Kælið vöfflurnar eða kökurnar og smyrjið síðan með súkkulaðismjöri. En ýmist má bera fram kökurnar sem sam- lokur með súkkulaðismjöri á milli eða sem litlar vöfflur og þær má þá nota annað hvort á kaffiborðið eða jafnvel sem ískex með ís og heitri karamellusósu. Ef þið búið til kökurnar í grillinu er rétt að benda á að hraðar hendur þarf að hafa við að móta kökurnar áður en deigið harðnar og verður ill- viðráðanlegt. VÖFFLU-SAMLOKUR MEÐ SÚKKULAÐISMJÖRI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.