Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Side 34
*Græjur og tækniPottaplöntur geta hreinsað loftið og eru æskilega þar sem mikið er af tölvum og tækjum »36
Á
nýlegri ráðstefnu í New York voru nýjungar kynntar í þrí-
víddarprentun. MakerBot, MakerGear, Mbot, og X-Object
kynntu prentarana sína en hægt er að prenta allt milli him-
ins og jarðar í þessum prenturum. Meira að segja Star
Wars-hetjuna Jóda sem kom reyndar rauður en ekki grænn. Og þar
sem tæknin er, þar koma vopn inn í jöfnuna. Bent hefur verið á að
hægt sé að prenta sinn eigin riffil, sína eigin skammbyssu og sína
eigin sprengju en sem betur fer stálu vopnabrjálaðingar í Bandaríkj-
unum ekki fyrirsögnunum.
Sculpteo mun verða app þar sem hægt verður að búa til þrívíddar-
mynd og prenta út. Allt niður í smæstu smáatriði mun eftirprentunin
koma ljóslifandi úr prentaranum. Tímaritið The Economist spáði því í
leiðara fyrir nokkrum árum að tilkoma þessara prentara gæti átt eftir
að hafa gríðarleg áhrif á efnahagslíf heimsins á næstu árum, hugs-
anlega jafnvíðtæk áhrif og tilkoma gufuvélarinnar og prentvélarinnar á
sinni tíð. Tæknin er komin ótrúlega langt enda voru fjölmargar bygg-
ingar prentaðar með ótrúlegri nákvæmni og sýndar á ráðstefnunni.
Eins og svo oft, þá segja myndirnar meira en þúsund orð.
Hægt er að prenta ótrúlegustu smáatriði. Dómkirkjustytta komin í mýflugumynd.
ÞRÍVÍDDARPRENTUNARRÁÐSTEFNA Í NEW YORK
Rauður Jóda
prentaður
TÆKNIN Í ÞRÍVÍDDARPRENTURUM ER ORÐIN ÓDÝR. SVO
ÓDÝR AÐ INNAN NOKKURRA ÁRA GETUR ALMENNINGUR
EIGNAST SLÍKA PRENTARA. ÞÁ ER HÆGT AÐ BÚA TIL
HVAÐ SEM ER – MEIRA AÐ SEGJA BYSSUR.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Jóda alveg að verða tilbúinn. Fínn og fallegur sem fyrr.
risinn í ryksugum á heimsvísu, hafnaði hugmyndinni og
Dyson tók til við að smíða ryksuguna sjálfur og ræður
nú þriðjungi Bretlandsmarkaðar.
Hin byltingarkenna hugmynd Dysons var að skilja
óhreinindin frá loftinu með einskonar loftþyrli og skila
þeim í sérstakt hólf, en loftinu er svo skilað út hreinu, eða
svo hreinu sem hægt er að ná því yfirleitt. Galdurinn við
þetta er að ryksugan missir ekki kraft eftir því sem rykið
safnast í hólfið eins og vill vera með aðrar gerðir, og út-
blásturinn er líka hreinni en ella. Óvísindalegar tilraunir
mínar benda svo til þess að Dyson nái upp meiri óhrein-
indum en venjuleg ryksuga með pokum og tilheyrandi. Svo
má ekki líta framhjá því hve skemmtilegt það er fyrir
græjuóða að fylgjast með vinnslunni í vélinni.
Það tók víst fimm ár og 5.127 frumgerðir áður en fyrsta
Dyson-ryksugan var tilbúin. Frá þeim tíma hafa þær tekið
talsverðum útlitsbreytingum þó grunntæknin sé sú sama.
Þessi tækni hefur síðan breiðst út til annarra framleið-
enda, þó þeir verði að fara aðrar leiðir en Dyson því
hann baktryggði sig með grúa einkaleyfa, eins og
Hoover fékk á kenna á í málaferlum fyrir nokkrum ár-
um, þegar Dyson vann fullnaðarsigur í málaferlum
vegna hugmyndastuldar.
Fátækur uppfinningamaður kemur til stórfyrirtækis með fram-úrstefnulega og óvænta hugmynd og stórfyrirtækið hafnarhenni. Uppfinningamaðurinn þráast við og tekur sjálfur að
framleiða eftir hugmyndinni sem stórfyrirtækið stelur síðan. All-
ir kannast við þetta ævintýri eða tilbrigði við það, en þó flestar
sögurnar séu uppspuni að miklu eða
öllu leyti eru sumar sannar, eins og til að
mynda sagan af breska uppfininngamann-
inum James Dyson og ryksugunni hans.
Nú eru ryksugur ekki sérstaklega for-
vitnileg apparöt, eða hvað; loftstraumur ber
óhreinindi með sér að síu þar sem (flest)
óhreinindin sitja eftir og safnast í sekk sem
var forðum tæmdur reglulega, en aftir
að ryksugupokar úr pappír komu
til sögunnar er pokanum hent
með öllu saman.
Það gefur augaleið að líkt og með rakvélina og rak-
blöðin þá er aðalgróðinn í því að selja ryksugupoka og
sú er líka raunin. Í því ljósi má skilja frammámenn
Hoover þegar James Dyson kom á fund Hoov-
er-stjóra og kynnti þeim hugmyndir sínar um ryksug-
ur sem gerðu ryksugupoka óþarfa. Hoover, sem var þá
RYKINU ÞYRLAÐ ÚR HEIMINUM
VIÐ FYRSTU SÝN ER EKKI MARGT HÆGT AÐ ENDURBÆTA ÞEGAR RYKSUGUR ERU ANNARS VEGAR, EN UPPFINN-
INGAMAÐURINN JAMES DYSON VAR Á ÖÐRU MÁLI SEM SANNAST Í FRAMÚRSTEFNULEGUM DYSON-RYKSUGUM.
Græja
vikunnar * Eins og getið er hér tilhliðar er útblástur úr Dyson-
vélum hreinni en gengur og
gerist með ryksugur, nær nið-
ur í 0,5 míkron, en það er
líka hægt að hreinsa enn
meira með HEPA-loftsíu í
dýrari gerðum.
* Gamla Nilfisk-ryksugansem til var á æskuheimilinu
var úr stáli, en í dag er allt
úr plasti, líka ryksugur.
Plastið í Dyson-ryksugum er
venju fremur sterklegt, en
gerir hana líka þyngri.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Dyson-ryksugurnar eruóvenjulegar og ekki fyrir alla,
en eftir að hafa kynnt mér
slíkar í nokkra daga finnst
mér þær í alla staði fram-
úrskarandi verkfæri og frum-
legar. Víst er óvenjulegt að
rykhólfið er gagnsætt, en það
er langf í frá fráhrindandi, í
raun mun betra.
Prentuð andlit. Ótrúlegt en satt.
Gríðarlega raunveruleg.
AFP