Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Qupperneq 45
samfellt í 4.888 daga undir sömu forystu, sem er
einstakt í okkar sögu.
Um hagvöxt var dómurinn: Framar vonum.
Um stöðugleika á þessum rúmu 13 árum var
dómurinn: Bylting frá því sem áður þekktist.
Um verðbólgu var dómurinn: Í fínum málum.
Um kaupmátt ráðstöfunartekna var dómurinn:
Stórglæsilegur árangur.
Og um atvinnuleysi var dómurinn: Einstakur
árangur. Með því besta sem þekkist í heiminum.
Ritstjórinn hrósaði EES-samningnum, frjálsu
fjármagnsflæði (sem af samningnum leiddi).
Hann taldi sölu ríkisbankanna sérlega mikilvæga.
Hún hefði verið „eitt af helstu markmiðum Viðeyj-
arstjórnarinnar“ þótt það hafi ekki náðst í hennar
tíð. En ritstjórinn nefndi einnig til sögunnar gagn-
rýnisefni sem færð hefðu verið fram um þennan
þátt. Eini þátturinn sem honum þótti ekki hafa tek-
ist nægjanlega vel í þessum úttektardómi sneri að
lágum raunvöxtum.
Krossaprófið
Svo gerði ritstjórinn krossapróf sem samanstóð af
20 spurningum. Í plúsdálkinn færði hann 14 atriði:
Hagvöxtur, stöðugleiki, lítil verðbólga, kaupmáttur
ráðstöfunartekna, þjóðartekjur á mann, full at-
vinna, EES-samningurinn, frjálst fjármagnsflæði,
löggjöf um hringamyndun, sala ríkisbanka, fjár-
lagahalla útrýmt, skuldir ríkissjóðs, erlendar skuld-
ir, bygging álvera.
Í mínusdálkinn færði hann tvö atriði af 20:
Lækkun skatta (ekki tekist sem skyldi) og skuldir
heimila. Í meðaltalsdálkinn féllu fjögur: Lágir raun-
vextir, lífeyrisskuldbinding ríkissjóðs, uppbygging
þorskstofna og tekjudreifing í þjóðfélaginu. Um síð-
asta lið sagði: Meiri ójöfnuður – hins vegar eru allir
ríkari!
Ritstjórinn sagði niðurstöðu krossaprófsins um
árangur vera í einu orði: Einstakur.
Nú geta aðrir haft hvaða skoðun sem þeir vilja á
þeirri niðurstöðu ritstjóra Frjálsrar verslunar sem
hann kynnti haustið 2004 og margir hafa með
nokkrum erfiðismunum reynt að ýta staðreyndum
sögunnar til hliðar eftir sínum hentugleikum. Aðrir
hafa í áróðursstarfsemi sinni gengið fram eins og
þeim séu þessir tímar með öllu ókunnir. En þeir
sömu verða þá væntanlega að leita einhvers staðar
að skynsamlegri skýringu á því hvers vegna slík
festa var í stjórnmálum á þeim tíma sem Jón G.
Hauksson tók þarna til skoðunar og hvers vegna
hann felldi svo afgerandi dóm. En mikilvægasta
spurningin er þó sú, hvers vegna kjósendur stuðl-
uðu að því, fernar kosningar í röð, að hægt væri að
tryggja forystu um þá festu sem svo miklum ár-
angri skilaði.
Eitt er víst að allt þetta langa skeið þurfti ekki
að grípa til þeirra örþrifaráða fyrir kosningar, sem
ríkisstjórn, uppiskroppa með fylgi, hefur reynt að
grípa til síðustu vikurnar. Og forysta sem svo lengi
sat með meiri sátt við kjósendur en náðst hefur í
annan tíma fór sæl á braut úr sínum sessi, þegar
henni þótti þetta orðið gott. Vonandi gefst nú aftur
færi á framfaraskeiði á borð við það sem fékk þann
dóm að hafa verið einstakt. Þá verður örvænting-
arfullt uppboð fyrir kosningar óþarft eftir fjögur
ár.
pa örvæntingu og uppgjöf
* Slíkir gjafagerningar ráðherranna eru því fyrst og síðast af pólitískum
toga og binda viðkomandi
ráðherra og/eða ríkisstjórn
eingöngu pólitískri ábyrgð.
Heimild: Frjáls verslun, 7.tbl. 2004
Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann
Atvinnuleysi
-2,7
-7,6
0,0
3,8 4,1
2,5
8,7
6,5
5,2
2,0
-0,1
2,7
2,0
2,7
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003
1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003
2,5
4,3
5,3 5,3
4,9
3,7
3,9
2,7
2,0
2,3
2,3
3,3 3,4
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45