Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.04.2013, Qupperneq 57
28.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Íslenska steinabókin hefur lengi
verið einhver vinsælasta hand-
bókin á sínu sviði hér á landi og
er ætluð áhugamönnum um
íslenska steinaríkið.
Höfundar eru Kristján Sæ-
mundsson, jarðfræðingur hjá
ÍSOR, sem hefur víða unnið að
jarðfræðikortlagningu og jarð-
hitarannsóknum og Einar
Gunnlaugsson jarðefnafræð-
ingur sem starfar að jarð-
hitarannsóknum hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Grétar Eiríksson
tæknifræðingur tók myndirnar.
Gerð er grein fyrir
myndunarskilyrðum, bæði
bergtegunda og holufyllinga, en
þekking á slíku er nauðsynleg
hverjum áhugasömum
náttúruskoðara.
Steinabókin
endurútgefin
Unnendur rithöfundarins J.D. Salinger hafa
áratugum saman reynt að komast að ein-
hverju nýju um líf höfundarins, sem einangr-
aði sig frá umheiminum í áratugi eftir að met-
sölubók hans, Bjargvætturinn í grasinu
sem fjallar um unglinginn Holden Caulfield,
kom út árið 1951. Salinger lést árið 2010, 91
árs gamall. Nýju ljósi er varpað á líf höfund-
arins á árunum 1941 til 43, í bréfum sem
Morgan Libary and Museum í New York hef-
ur keypt af 95 ára gamalli konu, Majorie She-
ard.
Sheard og Salinger skiptust á nokkrum
bréfum á þessum árum, eftir að Sheard hafði
lesið smásögur eftir Salinger sem birtust í
tímaritum á þeim árum. Í bréfunum birtist
ungur maður sem virðist deila mörgum per-
sónueinkennum með sögupersónunni Caul-
field; það er leikur í textanum og ástríða í
skoðununum, og Salinger segir henni að von
sé á fyrstu „Holden-sögunni“ í tímariti.
„Hann hefur þegar fundið tóninn,“ hefur
The Telagraph eftir sérfræðingi.
J.D. Salinger faldi sig frá umheiminum sem vill
vita meira um manninn og skrif hans.
BRÉF FRÁ SALINGER
KOMA Í LEITIRNAR
Hópur fólks kom saman í síðustu viku í Borgarbókasafninu til að fagna því að 70 ár eru síðan
Litli prinsinn, hin heimsfræga saga Antoine de Saint-Exupéry kom út. Fólkið hafði verið
hvatt til þess að hafa með sér eintök af Litla prinsinum á sem flestum tungumálum. Var það
vel við hæfi því þessi hugljúfa saga hefur heillað umheiminn í áratugi. Ýmsir urðu til að heiðra
hinn hreinlynda prins og sátu saman og lásu í verkinu og skoðuðu vitaskuld einnig hinar
gullfallegu myndskreytingar höfundarins við eigin sögu.
Engin frönsk bók hefur náð viðlíka vinsældum og Litli prinsinn og Frakkar völdu hana ný-
lega bestu bók 20. aldar sem skrifuð væri á frönsku. Bókin hefur verið þýdd á yfir 250 tungu-
mál og áætlað er að yfir 140 milljónir eintaka hafi selst af henni. Höfundurinn, flugmaðurinn
Saint-Exupéry, varð ekki langlífur, hann lést árið 1944, 44 ára gamall. Hann hafði lagt upp í
flug en skilaði sér ekki. Hvarf hans varð fréttaefni víða um heim.
SJÖTUGUR PRINS
Litli prinsinn var lesinn á Borgarbókasafninu í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá útkomu bókarinnar.
Morgunblaðið/Ómar
Örugg tjáning – Betri samskipti
er bók eftir fjölmiðlakonuna
Sirrý. Hún hefur áralanga
reynslu af því að koma fram í
fjölmiðlum og kenna fólki bætt
samskipti. Hér gefur hún góð
ráð og miðlar aðferðum sem
hafa dugað henni vel. Hún
kryddar texta sinn með fjöl-
mörgum sögum úr raunveru-
leikanum. Í bókinni eru svo
verkefni sem nýtast þeim sem
vilja koma sér upp öruggri tján-
ingu og eiga betri samskipti.
Bók um
tjáningu og
samskipti
Álfar, tjáning
og íslensk
náttúra
NÝJAR BÆKUR
ÞAÐ ERU EKKI BARA SKÁLDSÖGUR SEM KOMA
ÚT NÚ UM STUNDIR ÞVÍ BÆKUR UM NÁTTÚRU
ÍSLANDS ERU EINNIG Á MARKAÐI. MÚMÍNÁLF-
ARNIR SÍGILDU MINNA SVO Á SIG OG GLEÐJA
BÖRNIN. ÞEIR SEM VILJA RÆKTA SJÁLFA SIG FÁ
SVO BÓK UM ÖRUGGA TJÁNINGU OG BETRI
SAMSKIPTI.
Í bókinni Íslensk fjöll – gönguleiðir á
151 tind leiðbeina tveir kunnir fjalla-
menn, þeir Ari Trausti Guðmunds-
son og Pétur Þorleifsson, fólki um
gönguferðir á íslensk fjöll.
Í bókinni er ljósmynd af hverju
fjalli um sig ásamt ítarlegri leiðarlýs-
ingu og korti þar sem gönguleiðin er
teiknuð inn. Einnig eru upplýsingar
um gönguna sjálfa og sagt frá jarð-
fræði, landslagi og útsýni.
Bók fyrir alla
fjallagarpa
Múmínálfar bregða á leik er bók um hina vinsælu Múmínálfa.
Bókin er í stóru broti og myndirnar eru einkar líflegar og lit-
ríkar. Í bókinni leynast fjölmargir flipar sem börnin hafa gam-
an af að gægjast undir. Um leið læra börnin ýmislegt um liti,
tölur og gagnleg orð, auk þess vitanlega að fræðast um þess
elskulegu vini sína í Múmíndalnum. Skemmtileg bók sem
hlýtur að gleðja og kæta börnin.
Líflegir múmínálfar
gleðja börnin
* „Ráð er síst að reiða sig upp á marga.“Hallgrímur Pétursson
BÓKSALA 7.-20. APRÍL
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar
1 Lág kolvetna lífsstíllinnGunnar Már Sigfússon
2 BrynhjartaJo Nesbo
3 IðrunHanne-Vibeke Holst
4 Halli hrekkjusvínEva Lynn Fogg, Guðrún Olga &
Jenný K. Kolsöe
5 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
6 IllskaEiríkur Örn Norðdahl
7 Nýttu kraftinnMaría Björk Óskarsdóttir &
Sigríður Snævarr
8 Sumar án karlmannaSiri Husvedt
9 Skýrsla 64Jussi Alder-Olsson
10 Litríkar lykkjur úr garðinumArne & Carlos
Kiljur
1 BrynhjartaJo Nesbo
2 IðrunHanne-Vibeke Holst
3 IllskaEiríkur Örn Norðdahl
4 Skýrsla 64Jussi Alder-Olsson
5 Sumar án karlmannaSiri Husvedt
6 SjóræninginnJón Gnarr
7 UndantekninginAuður Ava Ólafsdóttir
8 VerndarenglarKristina Ohlsson
9 ÓsjálfráttAuður Jónsdóttir
10 Hvítfeld fjölskyldusagaKristín Eiríksdóttir
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Dagur kemur eftir þennan dag.