Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2013
Þetta lá allt nokkuð ljóst fyrir. Við
máttum ekki fara niður að á. Alls
ekki nálægt stíflunni. Ekki klifra
upp á þök. Vera með hatt í sól. Og
aldrei með trefla. Alveg þar til tal-
ið barst að treflunum var hægt að
setja sig inn í þessi helstu boð og
bönn, jánka og skilja hættuna.
Meira að segja sólstinginn.
Þetta með treflana gat hins
vegar ært mann. Enda gat það
gerst að þessi voðalega flík rataði
inn á borð til manns. Trefillinn
sem ég prjónaði í handmennt var
rammaður inn í gler eins og gam-
almennaföndur. Það mátti horfa á
hann. Þetta var ferlega fúlt. Og
það var ekki eins og allt ætti yfir
einn að ganga. Börn af góðum
heimilum gengu með trefla.
Löngu, löngu síðar skildi ég
þetta. Þetta var öryggisráðstöfun
par excellence. Slysavarnir nú-
tímans hafa marið það í gegn að
börn séu ekki með reimar, trefla
og annað laust sem þau geta flækt
sig í og slasað sig á; ekki á skaut-
um, ekki á skíðum, ekki í leik-
grindum.
Sjúkraþjálfarinn og eiginkona
Hallgríms Sigurðssonar, Þóra
Hlynsdóttir, tók strax fyrir það
þegar þau hjónin kynntust að eig-
inmaðurinn með vélsleðadelluna
stigi á sleðann án ríkulegs örygg-
isbúnaðar. Í viðtali við Sunnu-
dagsblað Morgunblaðsins í dag
segir Hallgrímur frá því að daginn
sem hann stórslasaðist í vélsleða-
slysi í vor hafi hann séð suma fé-
laga sína sleðast á heiðinni „nán-
ast á hlýrabolnum“. Hann segir
það hafa verið ákaflega freistandi
að skella sér á sleðann, frjáls und-
an þungum öryggisbúnaði en
hann setti þó á sig hálskragann,
brynju sem er sérstaklega styrkt
yfir hryggjarliði, nýrnabelti, sér-
stakar hnéspelkur, besta hjálminn
og úlnliðsteygjubönd. Það varð
honum til lífs. Skiptum ekki á
„óþarfa“ öryggi og lífinu.
RABBIÐ
Til vonar og vara
Júlía Margrét Alexandersdóttir
Dægradvöl mannanna er misjöfn. Sumir æða um allar trissur hlaupandi eða á hjóli, á meðan aðrir kjósa rólegheitin. Á meðan að sumir hanga yfir tölvum
og símum allan daginn, eru aðrir sem vilja fremur njóta lesturs góðrar bókar. Það má alltaf finna sér griðastað frá erli hversdagslífsins til að leggjast í
græna lautu og glugga í bók. Í friði og ró er gott að finna lyktina af gróðri og hlusta á suðið í hungangsflugunum. Að vera einn með sjálfum sér nærir
bæði líkama og sál og ekki skemmir fyrir að lifa sig inn í heim bókmenntana. Það eru svona augnablik sem gefa lífinu gildi. Munið bara að slökkva á sím-
anum í vasanum til að nútímatæknin skemmi ekki fyrir. Þessi ferðalangur var búinn að draga ferðatöskuna sína um langa leið og átti skilið að hvíla sig áð-
ur en hann hélt áfram ferð sinni. Hvert förinni var heitið vitum við ekki.
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í GRÆNNI LAUTU
ÞÓ AÐ VEÐURGUÐIRNIR HAFI VERIÐ Í HAM UNDANFARIÐ OG VÖKVAÐ VEL JÖRÐINA, KOMA ALLTAF ÞURRAR
STUNDIR INN Á MILLI. ÞÁ ER GOTT AÐ FINNA SÉR GRÆNA LAUT, LEGGJAST ÞAR NIÐUR OG HVÍLA LÚIN BEIN.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Hríseyjarhátíð.
Hvar? Hrísey.
Hvenær? Laugardag, 13. júlí.
Nánar: Leiktæki, sápurennibraut og
sápufótbolti svo fátt eitt sé nefnt.
Trúbadorar á hverju götuhorni.
Hátíð í Hrísey
Hvað? Rauðasandur
Festival.
Hvar? Gamli Gauk-
urinn, Tryggvagötu.
Hvenær? Laugardag
13. júlí, kl. 22.
Nánar: Stjórnendur Rauðsandi Festival
og listamenn bæta upp fyrir ofsaviðri há-
tíðarinnar síðustu helgi með tónleikum.
Rauðasandsævintýrið
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Glíma – Geir
Ólafs vs. Rökkvi Vésteins.
Hvar? Mjölni, Seljavegi 2.
Hvenær? Laugardag 13.
júlí, kl. 14.
Nánar: Söngvarinn Geir
Ólafs tekst á við grínistann
Rökkva Vésteins í hörku glímu. Að-
gangseyrir er 500 krónur og rennur til
Barnaspítala Hringsins.
Glíma til góðs
Hvað? Pöddu-
ganga.
Hvar? Í Kjarna-
skógi á Akureyri.
Hvenær? Laug-
ardag 13. júlí kl.
13:30.
Nánar. Bjarni Guðleifsson nátt-
úrufræðingur fræðir göngugarpa um
hvaða skordýr leynast í jarðveginum í
skóginum. Boðið upp á veitingar að
göngu lokinni. Allir velkomnir.
Pödduganga á Akureyri
Hvað? Sumarjazz.
Hvar? Jómfrúnni
við Lækjargötu.
Hvenær? Laug-
ardag 13. júlí, kl.
15-17.
Nánar: Reykjavík Swing Syndicate spil-
ar jazz fyrir gesti í portinu aftan við hús-
ið. Aðgangur er ókeypis.
Sumarjazz á Jómfrúnni
Hvað? Harmonikkuhátíð Reykjavíkur.
Hvar? Árbæjarsafni.
Hvenær? Sunnudag 14. júlí, kl. 13-17.
Nánar: Saga Reykvíkinga rifjuð upp við
undirleik ljúfra harmonikkutóna nokk-
urra þekktustu harmonikkuleikara
landsins.
Harmonikkuhátíð
* Forsíðumyndina tók Skapti Hallgrímsson.