Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2013
Föt og fylgihlutir
Þ
að voru þau Mark Ascoli og Martine Sit-
bon, listrænir stjórnendur tískuhússins,
sem buðu Arnari Má Jónssyni fatahönn-
uði starf, en hann hafði áður starfað sem
starfsnemi hjá tískuhúsinu vorið 2011 í gegnum
starfsnámsáfanga í Listaháskólanum.
Martine og Marc höfðu heillast að útskriftar-
línu Arnars sem er einstaklega textílmiðuð. Lín-
an, sem er innblásin af hamskiptum og umbreyt-
ingu efna, var aðallega unnin úr ull. Arnar segir
mjög gott að vinna með ullina því hún bjóði upp
á svo marga möguleika. „Ég vann bæði með ofna
og prjónaða ull og samtvinnaði og breytti þessum
tveim eiginleikum í sömu flíkinni,“ segir hann.
Áhugi á textíl kviknaði hjá
A child of the Jago
Eftir fyrsta árið í Listaháskólanum fór Arnar til
London á Erasmus-styrk í starfsnám hjá A child
of the Jago. Þar vann Arnar mikið með textíl og
vann meðal annars við handunnar sérgerðar flík-
ur eða „one-off“ og þar má segja að áhuginn á
textíl hafi kviknað. Eftir sumarið var það Joe
Corre, listrænn stjórnandi tískuhússins, sem
bauð Arnari starf hjá móður sinni, tísku-pönk
drottingunni Vivienne Westwood, sem hann þáði
og starfaði hjá sumarið eftir.
Vivienne er mikill umhverfissinni og berst fyrir
ýmsum málefnum sem viðkemur verndun náttúr-
unnar, segir Arnar. „Allir sem starfa hjá fyrir-
tækinu fá sérstakan bækling og þurfa að kynna
sér umhverfismál, hún hugsar mikið um náttúr-
una og það mátti til dæmis aldrei vera kveikt ljós
ef það var bjart úti.“ Arnar starfaði hjá Vivienne
í 6 mánuði og náði því að vinna með tískuhúsinu
að sumarlínunni 2013 sem ber heitið „Climate re-
volution“.
Verkefnin snerust aðallega um að sérhanna
flíkur og teikna upp línuna sjálfa.
Arnar telur það mikilvæga reynslu að vera
starfsnemi. „Það kom mér á óvart hvað námið er
í raun mikil vinna, en ég hef tamið mér það að
reyna að læra eins mikið og ég get, bæði í nám-
inu og af öðrum hönnuðum.“
Arnar hlaut Leónardó-styrkinn, sem er styrk-
ur fyrir nýútskrifaða nemendur til starfsþjálf-
unar á evrópskum vinnumarkaði og er því ný-
fluttur til Parísar þar sem hann starfar í
hönnunarhluta stúdíós Rue du Mail við rann-
sókn, textíl og skissuvinnu. Hjá Rue du Mail
verður Arnar aðallega að vinna með kvenfatnað
sem er honum nýtt verkefni því alla sína skóla-
göngu hefur hann eingöngu unnið með herra-
fatnað.
Rue du Mail er mjög textílmiðað fyrirtæki sem
sýnir einstaklega fágaða franska hönnun. Þetta
er því gífurlega spennandi verkefni fyrir ungan
hönnuð og góð byrjun. Aðspurður hvað hann ætli
að gera við útskriftarverkefnið segist Arnar ætla
að taka þátt í sem flestum hönnunarkeppnum.
„Það er góður vettvangur til þess að kynna verk-
efnið, eftir sex mánaða vinnutörn er synd að
setja verkefnið bara inní skáp,“ segir hann. Þess
má geta að hann var valinn til þess að sýna
hönnun sína á keppninni Designers Nest, sem er
í tengslum við tískuvikuna í Kaupmannahöfn, en
það er vettvangur fyrir nýútskrifaða fatahönnuði
til þess að kynna verkefni sín.
ARNAR MÁR JÓNSSON FATAHÖNNUÐUR
Starfar hjá stóru
tískuhúsi í París
ARNAR MÁR JÓNSSON ER NÝÚTSKRIFAÐUR FATAHÖNNUÐUR FRÁ LISTAHÁ-
SKÓLA ÍSLANDS. HANN HLAUT ÞANN HEIÐUR AÐ VERA BOÐIÐ STARF HJÁ HINU
VIRTA FRANSKA TÍSKUHÚSI RUE DU MAIL, DAGINN EFTIR ÚTSKRIFTARSÝNINGU.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Arnar Már Jónsson fatahönnuður
mun starfa í hönnunarhluta
Rue du Mail, aðallega við
rannsóknir, textíl og skissuvinnu.
Morgunblaðið/Eggert
Instagram var logandi eftir cout-
ure-sýningu Chanel þegar tísku-
húsið sýndi svokallaða nagla-
hringa. Þetta svala fyrirbæri
kemur nánast í stað naglalakks,
NÝTT ÚR HEIMI TÍSKUNNAR
Naglahringar hjá Chanel
þrátt fyrir að vera sennilega
óbærilega ópraktískt er þetta
svakalega flott og á án efa eftir að
verða vinsælt hjá hörðustu tísku-
fórnalömbum.
Naglahringarnir eiga eflaust eftir að ná vinsældum enda virkilega flott fyrirbæri.
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖS 12 - 18 / LOKAÐ LAUGARDAGA Í JÚLÍ
RETRO SÓFI
Nostalgía í stofuna...
kr. 175.800