Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Blaðsíða 20
*Heilsa og hreyfingHentug ráð Borghildar um hvað er gott að gæða sér á dagana fyrir hlaup »22
Við miklar og stífar æfingar geta vöðvar stífnað upp og jafnvel geta myndast hnútar. Svokall-
aðar „foam“ rúllur eru vinsælar og nýtast öllum, sérstaklega íþróttamönnum sem reyna mik-
ið á vöðvana. Hún dugar vel á bak, læri, kálfa og rass, og mýkir upp vöðva og eykur blóð-
flæðið. Þegar rúllan er notuð er yfirleitt lagst á hana á það svæði sem á að
nudda, og rúllað fram og tilbaka. Hálf mínúta á hvert svæði ætti að duga,
eða eins mikið og hægt er að þola. Ekki er laust við sársauka við þessar
æfingar, sérstaklega í byrjun, en rúllan á að losa um hnúta og brjóta þá upp.
Ef hnútarnir eru látnir óáreittnir get-
ur það skert hreyfigetu og jafnvel
leitt til meiðsla. Þrýstingurinn frá
rúllunni losar um bandvef og
undirbýr vöðvana fyrir kom-
andi átök. Margir líkams-
ræktarkennarar mæla með
þessari einföldu rúllu til
að minnka óþægindi
og eymsli sem
fylgja gjarnan
álagi á vöðvana.
LOSAR UM HNÚTA
Nuddrúlla mýkir vöðvana
S
miðurinn, múrarinn og pípulagningamaðurinn Björgvin
H. Björgvinsson fer ekki aðeins daglega upp á Esj-
una heldur hefur hann þá venju, þegar hann kemur
niður að rótum hennar, að fara strax aftur upp.
Blaðamanni Morgunblaðsins lék forvitni á því hvað fengi
mann til að fara aftur upp á fjall sem nýbúið væri að sigra.
Aðspurður segist Björgvin vera að æfa sig fyrir að hlaupa
Laugaveginn í sumar og því færi hann reglulega tvisvar á
Esjuna sem hann segir að taki sig tvo tíma og korter sam-
anlagt. „Það er vissulega alltaf erfiðara að fara seinna skipt-
ið, en þetta er bara gaman,“ segir Björgvin. „Það er svo gott
að geta þetta og maður er þakklátur fyrir það. Iðnaðarmenn
eru oftast í þokkalegu formi. Þetta er svolítið einhæf hreyf-
ing í vinnunni og gott að hafa einhverja aðra hreyfingu en
bara það.
Ég byrjaði á þessum gönguferðum fyrir nokkrum árum.
Fór í klúbb eða prógramm hjá 66°N sem hafði það að mark-
miði að fara á Hvannadalshnjúk. Þetta var hálfs árs pró-
gramm þar sem var farið á Eyjafjallajökul og Skarðsheiðina
og þessi stærri fjöll áður en farið var á Hvannadalshnjúkinn.
Maður stefnir að því að hlaupa hnjúkinn einhvern tímann,
það væri gaman. Kannski ekki bæði upp og niður, en aðra
leiðina í það minnsta. Það er bara gaman að þessu, það eru
forréttindi að geta þetta.
Hér er áður fyrr sá maður fyrir sér sjötugt fólk með stafi
sem varla komst yfir göturnar en núna arkar það um öll fjöll.
Þetta er orðið svo breytt.
Ég er reyndar ekki nema 53 ára þannig að ég á nóg eftir
ennþá.
Ég er í skokkhópi Hauka, þetta snýst mikið um félagsskap
og að hafa gaman af þessu. Við erum sjö saman sem ætlum
að hlaupa Laugaveginn en hluti hópsins ætlar að labba. Kon-
an mín, Ágústa Hauksdóttir, ætlar að leggja af stað sólar-
hring á undan og vera komin í Bása í Þórsmörk á undan mér
og taka á móti mér þegar ég skríð í mark,“ segir Björgvin.Morgunblaðið/Rósa Braga
HLEYPUR ESJUNA TVISVAR Í RÖÐ
Esjan
bara hóll
MARGIR REYKVÍKINGAR HAFA EKKI ENN
SIGRAÐ ESJUNA EN AÐRIR FARA Á TOPP
HENNAR DAGLEGA OG ÞAÐ JAFNVEL
TVISVAR Í RÖÐ Á HVERJUM DEGI.
Börkur Gunnarssonborkur@mbl.is
Þegar streitan er að buga þig borgar sig að fara að huga
að heilsunni. Stundum er eins og lífsorkan sé týnd og
þreytan sé sest að í líkamanum. Þá er um að gera að
reyna að finna orkuna aftur og nýta hana vel. Qi gong
þýðir á kínversku: leiðin til lífsorku, en þessar æfingar
eru ævafornar. Með æfingunum er lögð áhersla á að ná
tökum á önduninni, ásamt hægum, endurteknum hreyf-
ingum. Æfingarnar eiga að hjálpa við að ná betri einbeit-
ingu og auka andlegt úthald. Gott er að sameina æfingar
fyrir líkama og sál og finna innri ró. Æfingarnar má
stunda hvar og hvenær sem er, þó best sé að vera úti í
guðsgrænni náttúru. Einnig getur Qi gong hjálpað fólki
að virkja sköpunarkraftinn og öðlast nýja sýn, en einnig
er talað um að rækta jurt skynseminnar, langlífis og heil-
brigðis. Qi gong-fylgjendur á Íslandi segja Qi gong best
lýst á íslensku með orðinu ræktun, en einstaklingurinn á
að ganga til móts við lífsorkuna. Til er á Íslandi áhuga-
mannafélag iðkenda Qi Gong sem stunda saman æfingar
en einnig bjóða þau reglulega til sín erlendum kennurum
sem halda námskeið. Nánar má lesa um það á aflinn.org. AFP
LÍFSORKAN VIRKJUÐ
Hvað er Qi gong?