Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 2013 Í fyrsta sinn á Íslandi gerðist það í vikunni að tveir menn hentu sér fram af fjalli í svifvæng, annar þeirra losaði sig frá, féll í frjálsu falli og sveif til jarðar í fall- hlíf. Gísli Steinar Jóhannesson svifvængjakennari hjá paragliding.is segir þetta hafa verið algjörlega ein- stakt. „Þetta hefur aldrei verið gert áður á Íslandi, og það eru kannski innan við hundrað manns í heiminum sem hafa gert þetta,“ segir hann. Fólk á tjaldstæði öskraði Það var hinn bandaríski Eric Jonathan Hill sem valdi að svífa svona til jarðar, en þeir stukku fram af Laug- arfelli við Laugarvatn. „Markmiðið var að komast nógu hátt, en við komust í 150 metra hæð,“ segir Gísli, en lágmarkið var 100 metrar. Gísli segir það hafi verið taugatrekkjandi þegar Hill sleit sig lausan. „Þetta gerðist allt mjög hægt, ég var ekki viss um að þetta tækist og vissi það í raun ekki fyrr en ég sá fallhlífina opnast,“ segir hann og bætir við: „Fólk sem var á tjaldstæðinu vissi ekkert hvað var í gangi og margir öskruðu þegar þeir sáu manninn falla.“ Vissum að þetta væri hægt Gísli segir að ástæðan fyrir þessu hafi verið einföld. „Við vissum að þetta væri hægt! Þetta var rosalegt, al- veg rosa gaman. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því.“ Þeir fóru ekki af stað fyrr en eftir góðan und- irbúning og voru búnir að æfa þetta vel á jörðu áður en þeir lögðu í fjallið. Einnig var þetta áskorun fyrir Gísla, því hann þurfti eftir stökkið hjá Hill, einn að stjórna tveggja manna svifvæng sem erfitt er að stýra þegar helmingur þyngdarinnar er farinn. Hill, sem er mikill ævintýramaður, er í heimsreisu en hann ætlar að ferðast til allra landa heims og stefn- ir á heimsmet. Markmiðið er að fara til allra landanna á sem skemmstum tíma. Skoða má allt um ferðir hans á gowitheric.com. Myndband af stökkinu má sjá á mbl.is. Eric Hill er að sleppa takinu af svifvængnum. STÖKK FRÁ SVIFVÆNG MEÐ FALLHLÍF „Þetta var rosalegt“ Ljósmynd/Gísli Steinar Jóhannesson Sigrún Sigríðardóttir eignaðist Skugga, Maine Coon-kött, fyrir tveimur árum. Tveir Maine Coon- kettir hafa bæst við síðan þá. „Ég hafði heyrt af sérstaklega stórum og blíðum kisum en það fyrsta sem datt upp úr mér þegar ég sá þá; „Ha, eru þeir ekki stærri?“ Ég hafði líklega séð ljón eða tígrisdýr fyrir mér, en ég er mjög hrifin af stórum kattar- dýrum. Þeir eru samt mjög stórir. Ég sagði við sonardóttur mína um daginn; „Sjáðu stóru kisu.“ „Nei, amma, sjáðu litla ljónið,“ svaraði hún,“ segir Sigrún. „Ég hef aldrei átt hund en ég myndi halda að þetta væri mitt á milli þess að eiga hund og kött. Þeir elta mann út um allt og eru ólíkt köttum – hópdýr. Skuggi er samt ekki dæmigerður Maine Co- on-köttur og það eru bara nokkrir sem hann er hrifinn af. Hann er seintekinn og sérvitur en ég er þannig að mér þykir oft sér- staklega vænt um karaktera sem eru ekki alveg dæmigerðir.“ Skuggi vill helst að Sigrún sitji hjá honum og lesi og hann veit fátt skemmtilegra en að sulla í vatni.“ Hann spjallar mikið og ég á móti og mér líður stundum eins og Sig- urjóni Kjartanssyni í Fóstbræðr- um þegar hann var að tala við blómin, og hugsa að það sé eins gott að enginn heyri til mín!“ SKUGGI ER SÉRSTAKUR Stór og ræðinn Sigrún Sigríðardóttir á Maine Coon-köttinn Skugga sem líkist litlu ljóni. Morgunblaðið/Eggert ÞRÍFARAR VIKUNNAR Bræðurnir Vignir Svavarsson, landsliðsmaður í handbolta, til vinstri, og bróðir hans Rúnar Svavarsson handboltamaður í Noregi, til hægri, eru ansi áþekkir leikararnum og hjartaknúsaranum Ryan Gosling. 4G kerfi Vodafone er komið í loftið í Eyjafirði og á völdum svæðum á Suður- og Vesturlandi. Nú er stóraukinn gagnahraði á Vodafone Farneti með innleiðingu 4G, sem er þráðlaus háhraða nettenging. Tilboðið gildir til 31. júlí Kynntu þér allt um 4G á vodafone.is, í verslunum Vodafone eða hringdu í 1414. Öflugri samskipti bæta lífið Ertu til í stóra stökkið? Ekkert mánaðargjald í Vodafone 4G Farneti í júlí og ágúst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.