Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2013
Einhvers konar vírusóþverri virðist
hafa gengið um Fésbókina að und-
anförnu sem margir hafa brennt sig
á. Stuðmaðurinn og miðborg-
arstjórinn Jakob
Frímann Magn-
ússon taldi ærna
ástæðu til að vara
vini sína við og
skrifaði eftirfar-
andi tilkynningu: „Varist vírus með
þeldökkri ástarlífsmynd og opnið
ekki – ekki einu sinni „comment“
til viðvörunar.“ Þegar þetta er ritað
höfðu 13 deilt færslunni.
Sirkuslistahátíðin Volcano hófst á
fimmtudaginn sl. í Vatnsmýrinni.
Sjónvarpskonan Margrét Erla
Maack er á meðal
þeirra sem koma
þar fram, en hún
fer fyrir sýning-
unni Skinnsemi.
Margrét hefur
hugsanlega bjargað blygð-
unarkennd fjögurra barna þar ef
marka má skrif hennar á Facebbo-
ok:. „Í kvöld kl. 23 þurfti ég að vísa
fjórum börnum út úr sirkustjaldi
því foreldrarnir höfðu keypt miða á
dónasirkus. Börnin voru á aldr-
inum 4-10 ára. Úbbsassí.“
Meistaraflokkur karla hjá KR sló
norðurírska félagið Glentoran úr
Evrópukeppni á miðvikudagskvöld.
Í kjölfarið skrifaði Guðmundur
Reynir Gunnarsson, leikmaður
liðsins, á Facebook: „3-0 í Europa!
Er ekki hægt að fá lið með hærri
standard?“ Slíkt væri svo sem ekki í
frásögur færandi nema vegna þess
að í næstu umferð keppninnar
mætir liðið einmitt Standard Liege
frá Belgíu.
Einar Bárð-
arson, sem gjarn-
an hefur verið
nefndur umboðs-
maður Íslands,
skrifaði þessa
skemmtilegu færslu: „Hér eru fjór-
ar sjö ára á hljómsveita æfingu í bíl-
skúrnum hjá mér. Syngja hér há-
stöfum með Miley Cyrus – stefnir í
Nylon II ef ég fer ekki stöðva
þetta.“ Nú er bara að bíða og sjá.
Er ekki alveg kominn tími á nýtt ís-
lenskt stúlknaband?
AF NETINU
Clara Rankin kallar ekki allt ömmu sína.
Hún er fædd árið 1917 og er því 96 ára en
lætur aldurinn ekki stöðva sig. Hún er
hingað komin til að ferðast um Ísland með
hópi fólks frá Cleveland, Ohio í Bandaríkj-
unum, ferð sem Náttúrugripasafnið þar í
borg skipulagði. Með í för er fuglafræð-
ingur og vænta þau þess að sjá mikið af
fuglum, en ferðinni er meðal annars heitið
til Flateyjar. Einnig munu þau skoða ís-
lenska myndlist og handverk. Rankin hefur
ferðast víða um heim, frá fimmtán ára aldri
og hefur heimsótt fjöldann allan af löndum.
Hún er heilluð af eyjum, og hefur til að
mynda farið til Galapagos-eyja. „Ég gat
ekki staðist freistinguna, þegar ég heyrði
af þessari ferð, ég elska eyjur,“ segir hún.
Hún segir að henni líði mjög vel á Íslandi
og fólkið sé vinalegt. „Ég hlýt að vera með
norrænt blóð,“ segir hún og hlær. Þegar
hún er spurð hvort hún hyggst ferðast meir
á ævinni, svarar hún: „Hver veit!“
Clara hefur ferðast um heiminn í áttatíu ár.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ferða-
langur á
tíræðisaldri
Vettvangur
Ekki kann ég svarið en hef það á tilfinningunniað það kunni að vera erfiðara að svara þess-ari spurningu fyrirsagnarinnar en virðist við
fyrstu sýn. Ég sé ekki betur en það gangi í einhvers
konar tískusveiflum hvernig fólk vill svara spurn-
ingunni. Það hljómar vel í eyrum að vilja stytta
nám. Það þykir sýna vilja til að nýta tímann vel,
drífa alla út á vinnumarkað sem allra fyrst þannig
að unga fólkið geti í snarhasti farið að búa til verð-
mæti eða ef sá hæfileiki er ekki fyrir hendi að
braska og hafa það gott, græða á daginn og grilla á
kvöldin, eins og einhvern tímann var sagt. Er þetta
kannski málið? Eða hvað? Mín kynslóð, óháð hvar
hún stendur í pólitík, virðist á einu máli um hve gott
það hafi verið að hafa fengið tækifæri til að vinna á
sumrin með skólanámi, það hafi gefið innsýn í vídd-
ir tilverunnar og margbreytileika atvinnulífsins og
þjóðlífsins. Þetta var löngu fyrir daga grillsins. Og
á þessum tíma áttu vesalings braskararnir ekki sjö
dagana sæla. Úthrópaðir. Mér er það í fersku
minni, þótt nokkuð sé um liðið, að koma til náms við
Edinborgarháskóla og heyra af félögum mínum í
öðrum háskólum vítt og breitt um heiminn. Nánast
alls staðar vegnaði landanum vel. En hvers vegna?
Var það vegna þess að við höfðum setið svo lengi á
skólabekk? Vegna þess að skólarnir okkar hefðu
verið betri? Vissulega voru þeir ágætir, en nei, það
var vegna þess að við vorum eldri en unga og
óreynda fólkið sem var að koma inn í bresku há-
skólana á þessum tíma. Við vorum þroskaðri! Og
það var árafjöldinn og lífsreynslan sem aldurinn
hafði fært okkur, sem þarna skipti sköpum. Ef
þetta er rétt þá þarf að staldra við áður en hrapað
er að ákvörðunum um lengd á námi upprennandi
kynslóða með tilheyrandi styttingu á sumarhléum
og enn pakkaðri námskrá. Með öðrum orðum,
spyrja þarf hvort rétt sé að ræða um lengd náms
einvörðungu með hliðsjón af magni fræðslu sem
megi innbyrða á sem skemmstum tíma og sparnaði
við að stytta nám eða hvort horfa þurfi til þroska og
lífsreynslu sem árin færa í gjöfulu umhverfi
menntastofnana. Bestu ár ævi minnar voru námsár
mín. Ég mun ævinlega standa í þakkarskuld við
samfélag mitt sem gerði mér kleift að stunda nám á
þrítugsaldri. Þá var ég að ganga í gegnum mót-
unarár lífs míns. Það var ekki lítils virði að fá að
vera í örvandi umhverfi á slíku tímakeiði í lífinu.
Ekki ætla ég að bera þetta saman við grillstund að
lokinni góðri gróðalotu. Auðvitað hefur margt
breyst í samfélaginu frá því mín kynslóð var að
alast upp. Það er ekki lengur auðhlaupið að því að
skapa ungu fólki sumarstarf í samfélagi sem er bú-
ið að einangra sig frá árstíðunum og hætt að vera
tarna-atvinnulíf hinna löngu sumarnátta; og afi og
amma á sveitabænum fyrir löngu komin á Grund
og Eir, þrotabú bankanna jafnvel komin með ráðn-
ingarvaldið á Brú, Bolastöðum og í Maríuhvammi.
Engin ömmubörn og unglingar á þeim bæjum.
Margt er breytt. En varla við sjálf að upplaginu til.
Þurfum við ekki að hugsa þessi mál saman. Ég held
að við séum flest á svipuðum nótum. Látum ekki
hina póltísku lausnagerðarmenn eina um hituna.
Þeir horfa á kostnaðinn í dag og á morgun. En
þetta er ekki spurning um stundarsparnað heldur
eitthvað miklu meira. Þetta snýst um hjartsláttinn í
samfélaginu.
Á að stytta nám eða lengja?
* „Þurfum við ekki aðhugsa þessi mál saman.Ég held að við séum flest á
svipuðum nótum.“
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Act alone, elsta leiklistarhátíð landsins, verður
haldin tíunda árið í röð á Suðureyri dagana 8.-11.
ágúst. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir gesti
og verður dagskráin sérlega einleikin og einstök í
ár að sögn Ársæls Níelssonar, yfirsviðsstjóra Act
alone.
„Hátíðin var upphaflega hugsuð sem leiklist-
arhátíð þar sem áhersla er lögð á einleiki. Smátt
og smátt höfum við hins vegar víkkað sjóndeild-
arhringinn og nú er þetta orðin fjölbreytt hátíð
fyrir alla þá sem eru einyrkjar í sinni list. Við höf-
um undanfarin ár verið með danssýningar, tón-
leika og myndlistarsýningar og það hefur tekist
mjög vel,“ segir Ársæll, en meðal þeirra sem
munu koma fram á hátíðinni í ár eru Mugison,
Víkingur Kristjánsson úr Vesturporti og Bjart-
mar Guðlaugsson.
Í fyrsta skipti í sögu hátíðarinnar var efnt til
handritakeppni undir yfirskriftinni „íslenski sjó-
maðurinn“. Óskað var eftir einleik sem fjallaði um
íslenska sjómenn, en sá höfundur sem þykir eiga
besta einleikinn að mati dómnefndar Act alone
mun hljóta 250.000 krónur í verðlaun. „Við aug-
lýstum eftir handritum fyrir keppnina en eina
skilyrðið var að verkið þyrfti að fjalla um íslenska
sjómanninn. Það kom okkur skemmtilega á óvart
hversu mikill áhugi var fyrir keppninni og það
verður spennandi að sjá hver hlýtur fyrstu verð-
laun,“ segir Ársæll.
Efndu til handritakeppni
Leiklist Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir gesti
en hátíðin leggur áherslu á einyrkja í sinni list.