Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Blaðsíða 12
H
in Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík eða
Reykjavík International Film Festival (RIFF)
heldur upp á tíu ára afmæli sitt í haust.
Stofnandi hátíðarinnar er Hrönn Mar-
inósdóttir og situr hún enn við stjórnvölinn
og búin að koma hátíðinni í gegnum góða sem slæma tíma,
því þrátt fyrir kreppu og hart árferði hefur hátíðin aldrei
fallið niður, þvert á móti bara vaxið og dafnað. Aðsókn hef-
ur aukist úr 13.000 gestum í 30.000 manns og veltan farið
úr 6 milljónum króna árið 2004 og upp í 57 milljónir króna
árið 2012. Svo er það fjölbreytnin sem hátíðin býður upp á,
en í fyrra voru sýndar myndir frá 119 löndum og árið 2010
voru myndir frá 181 landi á boðstólum, en þjóðríki heimsins
eru ekki mikið fleiri en það. Það eru 193 ríki hjá Sameinuðu
þjóðunum og fá lönd sem eru utan þeirra samtaka, þótt þess
séu dæmi eins og Vatíkanið til dæmis.
Þá hafa stór nöfn í kvikmyndaheiminum komið til að taka
við verðlaunum, eins og Jim Jarmush, Abbas Kiarostami og
Milos Forman. Hátíðin var á síðasta ári valin ein af 15
áhugaverðustu hátíðum Evrópu af MEDIA-sjóðnum. Umfjöll-
un um hana erlendis sem innanlands hefur verið afburðagóð.
Ekki kom þessi árangur öllum á óvart á Íslandi eða eins og
einn ónefndur kvikmyndagerðarmaður sagði í samtali við
undirritaðan vakti Hrönn strax athygli þegar hún kom að
spænskri kvikmyndahátíð á Íslandi. „Það sást strax að hún
var fær um að gera flotta sýningu í kringum þetta, þannig
að eftir var tekið,“ segir hann.
Hrönn Marinósdóttir segir sjálf að það hafi verið mik-
ilvægt að vinna vel með erlendum fjölmiðlum. „En lykillinn
að góðri byrjun var aftur á móti tvímælalaust sá að við fór-
um strax þá leið að leita til fagfólks úti í heimi til að taka
þátt í þessu með okkur,“ segir Hrönn. „Við leituðum til
fólks með mikla reynslu svo sem Helgu Stephenson sem á
rætur að rekja til Íslands en stjórnaði lengi vel kvik-
myndahátíðinni í Toronto sem er ein sú stærsta í heimi. Við
bárum líka gæfu til þess að koma þegar í upphafi á sam-
starfi við reyndan dagskrárstjóra sem var Dimitri Eipides.
Hann vann sína vinnu vel og átti stóran þátt í að byggja
upp gott orðspor fyrir hátíðina, bæði hérlendis og erlendis.
Með það í farteskinu hefur okkur tekist að byggja upp gott
tengslanet. Fátt er mikilvægara fyrir starfsemi eins og
þessa. Á grundvelli þess hefur til dæmis orðið til mjög
sterkt lið erlendra ráðgjafa og starfsmanna. Þetta fólk hefur
hjálpað við að byggja upp reynslu og þekkingu hjá RIFF á
rekstri svona viðburðar. Frá byrjun höfum við jafnframt
fengið jákvæð viðbrögð og góðan stuðning frá íslenskum
kvikmyndagerðarmönnum í fremstu röð svo sem Baltasar
Kormáki, Degi Kára og Elísabetu Ronalds svo fáeinir séu
nefndir.“
Ekki allir sáttir
Engu að síður hafa ekki allir verið sáttir með hátíðina. Allir
eru sammála um að Hrönn hafi unnið þrekvirki við að koma
henni á laggirnar en sumir viðmælendur hafa viljað meina
að kominn væri tími á að skipta um mann í brúnni. Í vetur
var starfrækt nefnd á vegum borgarinnar sem tók viðtal við
fjölda manna sem höfðu starfað við hátíðina og báru ekki
allir Hrönn vel söguna. Menn komu jafnvel fram í fjöl-
miðlum og gagnrýndu hana mjög fyrir samstarfið, meðal
annarra Hlín Agnarsdóttir leikstjóri.
Þessi nefnd sem fór yfir málin skilaði minnisblaði til
Menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar en það var
aldrei birt. „Við vorum að sinna eftirlitshlutverki okkar með
stofnun þessarar nefndar og fara yfir starfsemina,“ segir
Einar Örn Benediktsson, formaður Menningar- og ferða-
málaráðs. „Þetta sneri að rekstrarfyrirkomulagi hátíðarinnar.
Okkur fannst tími til að staldra við og fara vandlega yfir
dæmið. Þetta er gert reglulega með hátíðir.“
Aðspurður hvort ekki hafi átt að setja hátíðina af segir
hann að svo hafi alls ekki verið. „Það er hluti af eftirlits-
skyldu okkar að fara yfir þau mál sem snúa að þeim sem fá
styrki frá okkur,“ segir Einar Örn. „Þetta var hluti af því.
Nefndin talaði við fjölda manns, hátíðin er níu ára gömul og
margir hafa unnið við hana. Auðvitað eru margir sem hafa
aðrar hugmyndir um svona hátíð og myndu vilja hafa hlut-
ina öðruvísi, það er bara eðlilegt. Ég held að þessi yfirferð
hafi verið hátíðinni til framdráttar, hollt að hafa staldrað við
og skoðað málin.
Grikkland
í hásæti á
tíundu RIFF
hátíðinni
Hrönn Marinósdóttir á blaðamannafundi fyrir þarsíðustu RIFF hátíð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sundbíó RIFF í Sundhöllinni er eitt af töfra uppákomum hátíðarinnar. En fleiri slík óvænt hafa vakið lukku.
RIFF/hag
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2013
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN RIFF VERÐUR HALDIN
Í REYKJAVÍK Í TÍUNDA SINN Í HAUST. HRÖNN
MARINÓSDÓTTIR ER STOFNANDI HÁTÍÐARINNAR
OG HEFUR STÝRT HENNI ÖLL ÁRIN. ÞÓNOKKUR
STYR STÓÐ UM HRÖNN Í VETUR OG HÉLDU
MENN UM TÍMA AÐ HÁTÍÐIN YRÐI TEKIN AF
HENNI. EN SÚ VARÐ EKKI RAUNIN OG HÁTÍÐIN
VEX OG DAFNAR Í HÖNDUM HRANNAR.
VELTA HÁTÍÐARINNAR HEFUR VAXIÐ
ÚR 6 MILLJÓNUM Í 57 MILLJÓNIR KRÓNA.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Alþjóðleg kvikmyndahátíð
í Reykjavík í tölum
200
180
160
140
120
100
80
60
40
20
0
200
4
200
5
200
6
200
7
200
8
200
9
201
0
201
1
201
2
16
70
88 83
94
153
181
142
119
Fjöldi mynda
200
4
200
5
200
6
200
7
200
8
200
9
201
0
201
1
201
2
45
40
35
30
25
20
15
10
5
0
41
6
26
30 29 30
36
30
34
Fjöldi landa
200
5
200
6
200
7
200
8
200
9
201
0
201
1
201
2
60
50
40
30
20
10
0
18
26
45 45
55
59 56 57
Velta í millj. kr.$
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
200
5
200
6
200
7
200
8
200
9
201
0
201
1
201
2
13
.0
00
13
.0
00
20
.0
00
21
.0
00
22
.0
00
25
.0
00
28
.0
00
30
.0
00
Fjöldi gesta