Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Page 15
tónlist en það skipti ekki nokkru einasta
máli. Hún hvíldi í kjarnanum og söng af inn-
lifun og sannfæringu. Þessu augnabliki
gleymi ég aldrei meðan ég lifi. Þarna gerði
ég mér grein fyrir því hverju ég hafði tapað
í akademíunni. Ég vissi um leið að ég yrði að
halda áfram að gera það sem skiptir mig
mestu, sem er löngunin og sannfæringin sem
fylgir því við að segja góða sögu í öllum
þeim fínlegu blæbrigðum sem tónlistin býr
yfir.“
Hvernig er tónlist þín?
„Þegar ég skrifa, þá syng ég nóturnar og
ef ég get ekki sungið þær, þá er ég óánægð-
ur með það sem ég er að gera. Þegar ég var
eitt sinn að semja verk fyrir sinfóníuhljóm-
sveit þá hafði ég meira að segja ljóð í huga
en þegar verkið var fullsamið strokaði ég út
ljóðið og eftir stóð hljómsveitarverkið. Þessi
aðferð virkar fyrir mig.
Ég blanda gjarnan saman endurreisnar-
barokk og þjóðlagatónlist. Einnig hef ég
kynnt mér slavneska tónlist undarfarin ár og
er búinn að tileinka mér tónsmíðatækni, sem
er skyld tónlist austurkirkjunnar. Mér þykir
vænt um angurværa andann sem hvílir í ís-
lenskum þjóðlögum og reyni nú að hlusta
eftir honum með slavneskum heyrnar-
tækjum.
Ég er hrifinn af finnsku þjóðinni. Ýmis ís-
lensk þjóðlög, eins og til dæmis Sofðu unga
ástin mín, gætu allt eins verið finnsk þjóðlög
og Finnar hafa mikið dálæti á angurværum
íslenskum þjóðlögum. Ég hélt að Finnar og
Eistar væru líkar þjóðir en þegar ég kom til
Eistlands til að ljúka þar mastersprófi komst
ég að því að svo var ekki. Mér reyndist erf-
iðara að skilja eistnesku þjóðarsálina.“
Með erkiengli í draumi
Þú ert staðartónskáld í Skálholti og kirkju-
vörður í Hallgrímskirkju og hefur samið
verk við trúarlega texta. Ertu trúaður?
„Ég var áður einn af þeim Íslendingum
sem segja: Já, já, ég er svo sem alveg trúað-
ur. En svo breyttist það í Eistlandi. Kennari
minn þar, er trúaður og við ræddum mikið
um trú. Hann krafðist þess að ég yrði forvit-
inn um lífið og tilveruna og spyrði sjálfan
mig stórra spurninga. Og ég fór að spyrja
sjálfan mig. Er ég trúaður? Finn ég fyrir
Guði? Ég las bækur um trúleysi og sann-
færðist um að trú á Guð væri bull og vit-
leysa. En svo gerðist það að á tveimur árum
fór ég smám saman að finna fyrir þunglyndi.
Allt hélst í hendur, 20. aldar akademían var
að sliga mig og trúleysið bættist þar við.
Mér fór að líða æ verr. Ég hafði ætlað í
doktorsnám í Eistlandi en það var minningin
um gömlu konuna sem söng svo sannfærandi
við vatnið sem varð til þess að ég ákvað að
gera það ekki. Ég ákvað að fara heim til Ís-
lands og finna kjarnann í sjálfum mér. Mér
fannst ég ekki lengur vera í tengslum við
sjálfið mitt. Ég kom heim til Íslands og tal-
aði opinskátt um trúleysi mitt við aðra í von
um að skilja mig betur. Allt þetta varð til
þess að ég skrifaði ekki tónlist í að minnsta
kosti eitt ár.
En svo eina nóttina gerðist mjög und-
arlegur atburður. Mig dreymdi að maður
nokkur stæði við hliðina á mér, afar viðkunn-
anlegur og fallegur. Í draumnum ferðuðumst
við um heiminn og þegar við vorum staddir í
skógi varð mér litið í augu hans. Þau opn-
uðust og frá þeim streymdu ótrúlegir geislar
í bláum lit. Ég vaknaði með tárin í augunum.
Hver var þetta? spurði ég mig og það var
eins og sjálfið hefði svarað: Mikael. Á netinu
leitaði ég að upplýsingum um engla, vissi lít-
ið um þá, og sá þá að nákvæmlega þessi blái
litur átti við Mikael erkiengil. Eftir þennan
undurlega draum fór mér smám saman að
líða betur og núna finn ég að ég er í með-
byr.“
Hreiðar Ingi í Hallgrímskirkju. Í baksýn má sjá mynd
Kristínar Gunnlaugsdóttur af Mikael erkiengli.
Hreiðar Inga dreymdi einmitt draum um Mikael.
Morgunblaðið/Golli
* Þessu augnabliki gleymi ég aldrei meðan ég lifi. Þarna gerði ég mér grein fyrir því hverju
ég hafði tapað í akademíunni. Ég
vissi um leið að ég yrði að halda
áfram að gera það sem skiptir mig
mestu, sem er löngunin og sann-
færingin sem fylgir því við að segja
góða sögu í öllum þeim fínlegu
blæbrigðum sem tónlistin býr yfir.
14.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
GJÖRIÐ
SVO VEL!
Hafðu það hollt
í hádeginu
HAFÐU SAMBAN
D
OG FÁÐU TILBO
Ð!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og
næringaríkan mat í hádegi.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari
og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta
matreiðslukeppni heims.