Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Page 16
*Það er margt að sjá í hinni fallegu og fjölbreyttu höfuðborg Rússlands, Moskvu »18Ferðalög og flakk Nú eru tæpar þrjár vikur liðnar frá því við vinkonurnar lögðum af stað í ferðalagið. Í sumar dveljum við á sveitasetri rétt utan við bandaríska smábæinn Sanford, í um 30 mínútna fjarlægð frá stærstu borg Norður- Karólínuríkis, Raleigh. Lóðin er stór og falleg og í garðinum við aðal- húsið má finna asna, lamadýr og hesta en einnig villta kalkúna og dádýr. Skammt frá Raleigh eru góðir háskólar og höfum við notað tímann og litið á þá nokkra, enda langþráður draumur að fara í frekara nám í Bandaríkjunum. Síðastliðna viku höfum við þó dvalið í strandhúsi í bænum Oak Island þar sem strandar- og bátamenning ræður ríkjum. Undanfarnir dagar hafa farið í slökun á ströndinni, sundspretti í yl- volgu Atlantshafinu ásamt skemmtiferðum Ingibjörg Thelma Leópoldsdóttir og Guðrún Haraldsdóttir Guðrún og Ingibjörg Thelma í Oak Island. Guðrún gefur dýrunum að borða. Sumarævintýri Við sveitasetrið fagra. PÓSTKORT F RÁ NORÐUR -KARÓLÍNU S íðastliðinn maí gaf Unnur Símonardóttir, náms- og starfs- ráðgjafi við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, út bók sem ber nafnið Ferðadagbókin mín – ÍSLAND. Bókin er hugsuð sem fræðslu- og skemmtibók fyrir börn á ferðalagi um landið, en í bókinni er að finna ýmsar þrautir og afþreyingu sem tengist náttúrunni og ferðalögum. „Bókin er hugsuð þannig að hún sé auð- veld í notkun fyrir börn en foreldrar eiga ekki að þurfa að lesa mikið upp úr bókinni fyrir börnin. Þau eiga alveg að geta gert þetta sjálf hvort sem það er aftur í bíl eða inni í tjaldi. Ég myndi segja að bókin henti best aldurshópnum 5-12 ára,“ segir Unnur. Að sögn Unnar kviknaði hugmyndin að bókinni fyrir mörgum árum, en bókin sjálf hefur verið að þróast undanfarið ár. „Upp- runalega hugmyndin kemur úr ferð sem ég fór í þegar ég var 18 ára, en þá fór ég á interrail um Evrópu. Áður en ég lagði af stað fjárfesti ég í korti af Evrópu og notaði svo kortið til að merkja inn leiðina og öll þau lönd sem ég heimsótti. Ég á kortið enn þann dag í dag og á því skemmtilegan minjagrip frá ferðinni,“ segir Unnur en eftir að hafa tekið þátt í Gullegginu, frumkvöðlakeppni ís- lenskra háskólanemenda og nýútskrifaðra, síðastliðinn janúar ákvað hún að setja bókina á fullt. Í bókinni eru m.a. landakort svo börnin geti merkt inn á kortin hvert þau eru að fara og hvaða staði þau heimsækja á ferð sinni um landið. Unnur telur þetta bæði gera börnin meðvitaðri um hvernig landið liggur og að þau eignist um leið skemmtilegan minjagrip um ferðina. „Þegar börnin mín voru orðin stálpuð og við fórum að ferðast um landið þá prentaði ég oft út kort af Íslandi og þau merktu á kortið hvert þau fóru. Ég fann að þau voru mjög ómeð- vituð um hvert við fórum hverju sinni þannig að kortið hjálpaði þeim að fylgjast betur með og gerðu þau um leið meiri þátttakendur í ferðinni,“ segir Unnur. Bókin fæst í verslunum N1 um allt land, en aðspurð hvort hún sé með aðra bók í smíðum segir Unnur: „Það stendur nú ekki til eins og er að skrifa aðra bók. Mig langar þó að gefa þessa bók út á erlendum tungumálum fyrir börn erlendra ferðamanna,“ segir hún. Morgunblaðið/Rósa Braga FERÐABÓK FYRIR BÖRNIN Skemmtilegur minjagripur UNNUR SÍMONARDÓTTIR GAF NÝLEGA ÚT BÓK SEM HUGSUÐ ER FYRIR BÖRN Á FERÐALAGI UM ÍSLAND, EN BÓKIN ER BÆÐI LÆRDÓMSRÍK OG SKEMMTILEG. Páll Fannar Einarson pfe@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.