Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.7. 2013
Ferðalög og flakk
Þ
egar stigið var út á torgið fyrir utan Len-
ingratskiy-lestarstöðina, varð strax ljóst að í
Moskvu kveður við töluvert annan tón en í
borginni með síkin norðar. Ys og þys og mann-
mergð á þönum, enda þrjár stórar lestarstöðvar, auk
einnar neðanjarðar, á þessum eina og sama punkti.
Ekki var skilti eða staf á ensku að sjá og því handhægt
að fólk væri aðeins farið stauta sig fram úr kyrillíska
letrinu (og með góða handbók meðferðis). Heimamenn
virðast þó, illu heilli, ekki hafa verið alveg jafn mikið
fyrir nýyrðasmíðar og við hér á Íslandi. Kom sér oft vel
að hægt var að stauta sig fram úr þónokkrum orðum
sem höfðu að mestu verið tekin óbreytt upp úr öðrum
tungum, ef frá er talinn rithátturinn.
Alþjóðavæðing og eðalvagnar
Borgin átti annars eftir að heilla blaðamann og eig-
inmann upp úr skónum. Enda er hún allt í senn, stór-
brotin og -merkileg, með margbrotna fortíð og nútíð,
auk þess sem fang hennar virðist að mörgu leyti opið
fyrir því sem koma skal.
Stórmerkilegt er að virða Moskvu fyrir sér í dag þeg-
ar haft er í huga hversu skammt er í raun frá því Sov-
étríkin liðu undir lok.
Allir þekkja söguna, í borginni sló hjarta komm-
únismans, allt þar til það brast árið 1991 og Sovétríkin
liðuðust í sundur. Við tók erfiður tími á meðan Rúss-
land kom sér aftur á fæturna á heimssviðinu. Undanfar-
inn áratug eða svo virðist alþjóðavæðingin hins vegar
hafa tekið stórstökk inn í borgina. Fjölmargar vestræn-
ar verslunar- og veitingahúsakeðjur hafa skotið þar rót-
um, floti evrópskra eðalvagna ekur um göturnar, tekk-
húsgögn og hvers kyns hönnun nýtur mikilla vinsælda,
rétt eins og tíska þeirra stallsystra Zöru, Chanel og
Prada auk fleiri til, í bland við búðir með vintage-fatnað.
Spjaldtölvur og snjallsímar sáust líka hvarvetna á lofti
enda „heitir reitir“ algengir og að því er virtist flestir
tengdir.
Breyttir tímar á Rauða torginu
Í Moskvu liggur leið ferðamanna líklega undantekning-
arlaust að frægustu kennileitum borgarinnar í fyrstu,
BABÚSKUR OG HIPSTERAR Í BLAND
Mögnuð Moskva
MEÐ BEINU FLUGI Á MILLI ÍSLANDS OG
RÚSSLANDS AUÐVELDAST ÍSLENDINGUM
FERÐALÖG Í AUSTURVEG TIL MUNA.
MOSKVA ER TIL DÆMIS Í EINUNGIS UM
FIMM KLUKKUSTUNDA FJARLÆGÐ FRÁ
SANKTI PÉTURSBORG MEÐ HRAÐLEST.
HEIMSÓKN ÞANGAÐ ER SVO SANN-
ARLEGA ÞESS VIRÐI ENDA MARGT AÐ SJÁ,
BÆÐI GAMALT OG NÝTT.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Rauða torgið er alltaf opið og St. Basil-dómkirkjan ekki síðri á kvöldin.
Útsýnið af þakverönd Strelka. Dómkirkja frelsarans Krists þar handan árinnar.
Horft yfir Moskvuborg frá útsýnisstaðnum Vorobevy gory við Moskvuháskóla. Greina má nokkur af stórhýsum Stalíns, „systrunum sjö.“ Vildi hann reisa það áttunda, með risastyttu af Lenín, en lést áður.
Klassísk hönnun frá 1960
Hægt að velja um lit og áferð að eigin vali
Íslensk hönnun og framleiðsla
r. 24.300
E 60-
Verð frá k
Greinarhöfundur ásamt eiginmanni við St. Basils í björtu.