Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Blaðsíða 19
þ.e. Kreml, Rauða torginu og dómkirkju St. Basils. Til
marks um breytta tíma voru rokktónleikar á torginu
daginn sem greinarhöfundur var þar á ferð. Sungu ung-
lingasveitir þar bandaríska slagara á sviði skammt frá
grafhýsi Leníns, sem einhvern tímann hefði þótt saga til
næsta bæjar.
Tilvalið er að mæla með því að heimsækja torgið
einnig þegar halla tekur en mikill fjöldi vill vera þar á
daginn. Þar er hins vegar opið alla nóttina og alltaf ein-
hverjir á ferli. Er ekki síður tilkomumikið að virða þess-
ar byggingar fyrir sér upplýstar á þeim tíma.
Hægt væri að hafa mörg orð um söguna á þessum
slóðum en fjölmargar greinar og bækur gera þeim betri
skil. Ekki var hins vegar síður áhugavert að heimsækja
lítt kunnari slóðir í Moskvuborg.
Minna þekkt en líka áhugaverð
Á meðal síðari tíma kennileita sem vert er að skoða má
nefna dómkirkju Krists frelsara, sem var reist á tíunda
áratugnum og stendur steinsnar frá Kreml við bakka
Moskvuárinnar. Dómkirkjan stendur á lóð samnefndrar
kirkju, sem Stalín lét jafna við jörðu, og komst í fréttir
á síðasta ári fyrir tónleika rokksveitarinnar Pussy Riot.
Hugðist Stalín reisa þar eitt stórhýsið til, sem tákn um
mikilfengleik kommúnismans á sínum tíma, en náði ekki
fyrir andlátið. Alls reisti hann sjö slík stórhýsi víða um
borgina, þ.á m. Moskvuháskóla. Stendur skólinn á hæð-
inni Vorobevy gory, en óvíða er betra útsýni yfir borg-
ina.
Handan árinnar, gegnt kirkjunni, er komið í fyrrver-
andi verksmiðjuhverfi sem á skömmum tíma hefur
breyst í vinsælt svæði gallería, bara og skemmtistaða.
Iðar þara allt af lífi frá morgni til kvölds og oft fram á
nætur. Staðurinn Strelka nýtur þar mikilla vinsælda en
hann er m.a. innréttaður í skandinavískum stíl að hluta
og vinsæll hjá listaspírum, fjölmiðlafólki og hipsterum
borgarinnar, sem eru ófáir.
Á sama svæði liggur almenningsgarðurinn Gorky
Park. Þar er m.a. að finna nútímagalleríið The Garage,
sem Dasha Zhukova, unnusta Chelsea-eigandans Rom-
ans Abrahmovich, rekur meðal annarra.
Hafi fólk hug á minjagripum er Izmailovsky-
markaðurinn rétt utan við miðbæinn einnig tilvalinn án-
ingarstaður en þar má gera góð kaup svo sem á babúsk-
um og öðrum rússneskum munum.
Fjölbreytt úrval veitingastaða og bara
Moskva verður seint talin ódýr heim að sækja. Verðlag-
ið ætti þó ekki að skjóta Íslendingum skelk í bringu
enda oftar en ekki sambærilegt við það sem maður á að
venjast að heiman eða ódýrara.
Úrval veitingastaða er fjölbreytt og úr nægu að velja.
Matseðlar fást nánast undantekningarlaust í enskri út-
gáfu, sem er vel fyrir ferðamenn.
Óhikað má mæla með veitingastað skáldsins, Cafe
Pushkin, sem nýtur mikilla vinsælda og virðingar. Vilji
menn upplifa gömlu sovét-stemninguna kemur klúbb-
urinn Petrovich sterkur inn. Hann lætur kannski lítið yf-
ir sér að utan, enda í lítt merktum kjallara, en þegar inn
er komið kveður við annan tón. Þar ríkir stórskemmtileg
stemning, vodka er afgreitt í mjólkurglösum, með ljúf-
fengum mat og lifandi tónlist. Sé fólk á höttunum eftir
léttari matreiðslu, jafnvel í anda Miðjarðarhafsins, skal
sérstaklega bent á Oldich – Dress & Drink, en það ein-
staklega skemmtilegur staður með bakgarði. Er inn-
gangurinn falinn baka til í vinsælli vintage-verslun, en
það á að vera vísun í kanínuholuna frægu sem leiddi
Lísu til Undralands.
Sé það næturlíf og tilhugsunin um drykk í huggulegu
umhverfi sem heillar koma fyrrnefndir Oldich og Strelka
sterkir inn. Annar skemmtilegur staður í anda liðins
tíma er Kvartira 44. Sá er til húsa í gamalli íbúð, í anda
sovét-tímans, skammt frá Rauða torginu. Athygli vakti
að hipsterar frá öðrum löndum voru þar áberandi og
staðurinn um margt líkur íslenskum bar. Sé það hins
vegar útsýni sem heillar má m.a. leggja leið sína á bar-
inn á þaki Ritz-hótelsins við Tverskaya Ulitsa-versl-
unargötuna í miðbænum. Þar sést vel yfir Rauða torgið,
St. Basil-dómkirkjuna, Dúmuna og Kreml. Verið þó
viðbúin að þurfa að greiða ríflega íslenskt verð fyrir
hanastélið hér.
Eitt er víst að Moskva hefur upp á fjölmargt að bjóða
fyrir áhugasama, hvort sem hugurinn beinist að sögu,
listum, mat, drykk eða næturlífi. Passið bara að hafa
orðabókina eða a.m.k. kyrillíska stafrófið alltaf með ykk-
ur – en það auðveldar ferðalagið til muna.
14.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
A81
Hönnuðir: Atli Jensen og
Kristinn Guðmundsson
Verð frá: 27.800,-
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
Neðanjarðarlestakerfi
Moskvuborgar er eitt hið
fullkomnasta í heimi, þótt
komið sé til ára sinna.
Ekki einungis eru
stöðvarnar fagurlega
skreyttar og hver annarri
glæsilegri, heldur er kerf-
ið jafnframt eitt það skil-
virkasta sem fyrirfinnst.
Daglega flytur Metró-
ið í Moskvu fleiri farþega
en sambærileg kerfi í
New York og Lundúnum
til samans. Liggur í augum
uppi að miklu skiptir að
slíkt kerfi gangi hratt og
skipulega fyrir sig og sem
dæmi líða aldrei fleiri en
30 sekúndur á milli lesta á
mesta annatíma.
Fyrir ferðamanninn gildir hér eins og annars staðar í Moskvu að gott
er að vera búinn að kynna sér letur heimamanna, enda allar merkingar
á kyrillísku. Flestar ferðahandbækur innihalda kort sem sýna stöðv-
arheitin bæði á upprunamálinu sem og ensku, auk þess sem oftar en
ekki er hægt að nálgast slík kort á hótelum. Þarf bara að gefa sér lengri
tíma til að komast í gegnum stöðvarnar, vilji maður enda á réttum
stað, en er vel gerlegt.
Skilvirk listaverk neðanjarðar
Stalín lét reisa flestar bygginganna við breiðgötuna Tverskaya Ulitsa. Margar þeirra hýsa nú vestrænar verslunarkeðjur.
Morgunblaðið/Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
Það er varla hægt að skrifa um Moskvu án þess að minnast á Bolshoi-
leikhúsið og samnefndan ballettflokk.
Eigi fólk leið um borgina er það eindregið hvatt til að ná sér í miða,
enda einungis dansarar á heimsmælikvarða sem fá að starfa með
flokknum.
Ballettunnandi eður ei – ekki er annað hægt en að heillast af fim-
legum tilburðum dansaranna, þar sem þeir líða um sviðið í gulli
skreyttum salnum, við verk allra helstu tónsmíðameistaranna. Ljóst
er að allir hafa þeir undirgengist stífa þjálfun frá barnsaldri, til að ná
þarna á svið. Það verður ekki miklu hærra komist í ballettheiminum.
Fregnir af ósætti og árásum innan veggja leikhússins, eins og und-
anfarið hafa verið í fréttum, varpa ljósi á hvaða áhrif samkeppnin í
þessum heimi getur haft. Það er hins vegar fljótt að gleymast á með-
an fylgst er með fótaburði og tígulegum hreyfingum á sviðinu.
Ballett á heimsmælikvarða
í Bolshoi