Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Síða 24
Nokkrar bíómyndir og kvikmyndaleikstjórar skara fram í leik- myndahönnun þar sem heimili og vistarverur aðalpersónanna verða ekki síður eftirminnileg en söguþráðurinn. Meðal fremstu leikstjóra á þessu sviði eru Pedro Almodovar. Hann er ófeiminn við að nota heita liti, rauða og appelsínugula tóna, djörf veggfóður og notast gjarnan við miklar andstæður. Margar bíómyndir 6. og 7. áratugarins eru þá líka skemmti- legar en með eftirminnilegri myndum sem hægt væri að horfa og ráðast svo í að hressa upp á heimilið eru Breakfast at Tiff- anýs, Peter Sellers-myndin The Party og Aunte Mame. Eins og getið er hér til hliðar eru bláir og fjólubláir, sófasnið og lampar sem fást í verslunum þessa dagana ekkert svo ósvipaðir þeim stíl sem er í myndinni. Nýrri myndir hafa líka heillað smekklegar húsmæður og -feð- ur svo sem Somethinǵs gotta give og It́s Complicated, ekki síst sófar í eilítið amerískum stíl, háir eldhúskollar við stórar eyjur og eldhús sem eru ekki of stílhrein en björt – með opnum hillum og bastkörfum. AÐ INNRÉTTA HEIMILIÐ UNDIR ÁHRIFUM EFTIRLÆTISBÍÓMYNDARINNAR HLÝTUR AÐ VERA STÓRSKEMMTILEGT VERKEFNI. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Húsgögn bíómyndanna Margir hafa hrifist af þeim innanstokksmunum sem sjást í kvik- myndunum Somethinǵs gotta give frá árinu 2003 It́s Comp- licated frá 2009 enda var það sami hönnuður sem sá um útlit- ið. Húsgögnin eru hlýleg, í gráum tónum og jarðlitum. Þessi hægindastóll frá ILVU myndi smellpassa inn í bíómyndirnar. Spænski leikarinn Pedro Almodovar er þekktur fyrir að nota sérstaklega fallega innanhússhönnun í kvikmyndum sínum og þau eldhús, stofur og svefnherbergi sem sjást í kvikmyndum eins og High heels eru litrík, mynstruð og öðruvísi. Þessi sófi vakti feiknaathygli á sínum tíma og sniðugt ef einhvern langar að bólstra gamla sófann og skoða þennan möguleika - að blanda saman litum. Meðal þekktra húsgagna í Austin Powers er svo- kallaður Marilyn Bocca sófi, endurhannaður í minningu Marilyn Monroe árið 1972. Það var Studio ́65 sem átti frumkvæðið að framleiðslunni og voru hönnuðirnir undir áhrifum sófa sem lista- maðurinn Salvador Dali hannaði árið 1930 og svipar um margt með Marilyn sófanum. Þá er dönsk hönnun einnig sjáanleg, meðal annars svo- kallaður Uxi, eða „Ox Chair“ eftir hús- gagnahönnuðinn Hans J. Wegner. Wegner var undir áhrifum Picasso þegar hann hannaði stólinn.Renée Zellweger átti bleika „vömb“eða „The Womb“, eins og hálffinnski og hálfbandaríski hönnuðurinn Eero Saarinen kallaði stól sinn, í kvikmyndinni Down with love. Vömbin er ein klassískasta stólahönnun síð- ustu aldar og var settur á mark- að á 5. áratug síðustu aldar. HEIMILIN UNDIR ÁHRIFUM KVIKMYNDANNA Kvikmyndin Auntie Mame er fyrir margt löngu rómuð fyrir híbýlahönnunina. Ljósfjólubláir, bláir og gráir tónar eru mest áberandi. Við nánari skoðun má sjá að ISALA-lína IKEA er sniðin í slíkt umhverfi ef einhvern langar að stæla stofurnar. Bíómyndin er frá árinu 1958. *Heimili og hönnunVið mælum með fallegum vörum til heimilisins í vel völdum verslunum utan landsteinanna »26

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.