Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Side 28
*Matur og drykkir Eyjapeyinn Einar ætlaði aldrei að verða kokkur enda matvandur sem barn »30
É
g er mjög mikið í hálfgerðum spuna í eldhúsinu, enda stöðugt að
fá nýjar hugmyndir,“ segir Lólý í samtali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins.
Hún segist alla tíð hafa haft mikinn áhuga á mat og matreiðslu
og var síbakandi strax sem barn. Foreldrar hennar eru einnig lunknir
áhugakokkar, sem varð ekki til að draga úr áhuga dótturinnar.
„Mér finnst bæði rosalega gott og gaman að vera í eldhúsinu og líður
eiginlega best þar. Það er einhver slökun í því að elda,“ bætir hún við.
Einfaldur en bragðmikill matur
Lólý segist ekki aðhyllast neina eina stefnu í matargerð umfram aðra.
„Ég legg hins vegar mikið upp úr því að elda ekki of flókinn mat, hef ein-
faldleikann að leiðarljósi en vil hafa matinn bragðmikinn,“ segir hún. Það
þýði ekki endilega að maturinn þurfi að vera sterkur.
Ferskleikinn er einnig lykilatriði og leggur hún mikið upp úr því að
elda einungis úr góðu hráefni.
Ný vefsíða senn í loftið
Virka daga starfar Lólý í heildverslun en hún er með BSc. gráðu í al-
þjóðamarkaðsfræði, Um skeið hefur hún einnig haldið úti matarblogginu
eldum.is, þar sem hún hefur miðlað spennandi og skemmtilegum upp-
skriftum í samstarfi við heildverslunina Nathan & Olsen. Samstarfið hefur
gengið vel og segist Lólý afar stolt af síðunni. Breytingar eru hins vegar í
farvatninu en von er á vefsíðunni loly.is, í loftið innan tíðar.
„Mig langaði til að taka þetta aðeins lengra en það er svo gaman að
geta deilt hlutunum með öðrum, það er svona það sem ég að hugsa,“ seg-
ir matgæðingurinn. Heimatökin eru líka hæg, en eiginmaður hennar, Jón
Örn Þorsteinsson, er grafískur hönnuður, og mun setja upp síðuna í sum-
arfríinu. Er von á loly.is í loftið um miðjan ágúst.
Megináherslan verður sem fyrr á mat og matargerð á nýju vefsíðunni,
auk þess sem ýmislegt annað mun slæðast þar með. „Mér dettur svo
margt í hug, bæði hvað varðar lífsstíl, góð ráð og annað, og mun læða því
inn líka,“ segir Lólý létt í bragði. Auk þess að vinna að nýju vefsíðunni í
sumarfríinu, stefna hjónin á að ferðast aðeins um landið þar sem m.a.
stendur til að þræða eitthvað af þeim fjölmörgu bændamörkuðum sem
víða er að finna. Matur verður því óneitanlega einkennandi fyrir sumarið
hjá matgæðingnum, sem er óneitanlega við hæfi.
Lólý gefur hér uppskrift af sumarlegum grillspjótum þar sem grillaðar
appelsínur og engifer koma meðal annars við sögu.
Morgunblaðið/Ómar
MATGÆÐINGUR FRÁ UNGA ALDRI
Spuni og slök-
un í eldhúsinu
MATGÆÐINGURINN ÓLÍNA S. ÞORVALDSDÓTTIR,
EÐA LÓLÝ, ER MÖRGUM KUNN FYRIR UPPSKRIFTASÍÐUNA
ELDUM.IS. ÞAR HEFUR HENNAR HELSTA ÁHUGAMÁL,
MATSELDIN, FENGIÐ AÐ BLÓMSTRA.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
gunnhildur@mbl.is
Ólínu S. Þorvaldsdóttur, Lólý, líður hvergi betur en í eldhúsinu. Hún leggur
mikið upp úr einföldum en jafnframt bragðmiklum réttum, úr fersku hráefni.
Uppskriftin miðast við fjóra.
4 kjúklingabringur
1-2 rauðlaukar
1 stór appelsína
2 dl ólífuolía
2 tsk. cumin
1 tsk. cayenne pipar
2 tsk. engifer(ferskt rifið
niður)
salt og pipar eftir smekk
Leggið 10 grillpinna í bleyti í
10-15 mínútur.
Skerið kjúklingabringurnar í
bita. Blandið saman í skál ólífu-
Sósa
1 dós sýrður rjómi
2 msk. grísk jógúrt
2 hvítlauksrif (pressuð)
1 tsk. engifer
1 tsk. cumin
salt og pipar eftir smekk
safi úr hálfri sítrónu
Best er að gera sósuna fyrst
og láta hana standa inni í ísskáp
á meðan verið er að grilla spjót-
in.
Gott er að hafa kartöflur
með í hvaða formi sem er, til
dæmis grillaðar eða úr ofni.
olíu og kryddi og leggið kjúk-
lingabitana í kryddlöginn. Skerið
appelsínuna í 16 bita og rauð-
laukinn í 20 bita. Takið þessu
næst grillpinnana og raðið á þá,
fyrst rauðlauk, síðan kjúklingi og
þar á eftir appelsínu (ég set
rauðlauk tvisvar sinnum, appels-
ínuna tvisvar sinnum og 3 bita af
kjúklingi á hvert spjót).
Hitið útigrillið vel og raðið
grillspjótunum á grillið. Það þarf
að grilla spjótin í 15-20 mínútur
eða þar til kjúklingurinn er vel
grillaður í gegn. Passið upp á að
snúa spjótunum reglulega.
Kjúklingaspjót með appelsínu og rauðlauk