Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Síða 34
*Græjur og tækniFyrirtækið Yahoo! er í stöðugri sókn þessa dagana með Marissu Mayer í broddi fylkingar »36
Samfélagsmiðillinn Twitter er skemmtilegt tól sem hefur margvíslegt notagildi, til dæmis nýt-
ist hann vel í samskiptum stórstjarna og aðdáenda þeirra.
Nýjustu heimsfrægu Íslendingarnir, ef svo má að orði komast, í hljómsveitinni Of Mon-
sters and Men eru á meðal þeirra sem hafa nýtt sér Twitter vel til að koma tónlist sinni á
framfæri og ef marka má skrif aðdáenda þeirra á miðlinum virðist sem söngkona sveit-
arinnar, Nanna Bryndís, sé orðin átrúnaðargoð og ástin í lífi manna úti um alla heimskringlu.
Blaðamaður tók saman tíu sérlega skemmtileg „tíst“ um Nönnu Bryndísi. elg@mbl.is
EF MARKA MÁ SKRIF AÐDÁENDA OF MONSTERS AND MEN Á TWITTER ER FÓLK
HVAÐANÆVA AÐ KOLFALLIÐ FYRIR NÖNNU BRYNDÍSI, SÖNGKONU SVEITARINNAR.
Líkt við Björk Joseph Horton frá Bretlandi segir Nönnu
Bryndísi frábæra og bætir við að hún sé eins og yngri út-
gáfa af Björk.
Vonbiðill í Kaliforníu Oscar Gardea frá Kaliforníu
skrifar: „Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Of Monsters and
Men, þú ert falleg. Gifstu mér.“
Elska þig meira en lífið Katrina Hatton er trúlega heit-
asti aðdáandi Nönnu en hún á tvö tíst sem birtast hér.
Hún tekur fram að henni finnist svo skemmtilegt hvernig
hún geti tjáð það sem máli skiptir (ást sína á Nönnu) með
sinni takmörkuðu íslenskukunnáttu.
NÖNNUÆÐI Á TWITTER
Toppar Shakira Icaro Lopez, brasilískur aðdáandi, skrif-
ar: „Ég segi ýmislegt um Shakira, en í raun ætla ég að gift-
ast Nönnu Bryndísi.“
Tískufyrirmynd Þessi bandaríska stúlka segist vilja
klæða sig eins og Nanna Bryndís.
Ástarkveðja frá Mexíkó Adam Shudder nokkur skrifar
einfaldlega: „Ég er ástfanginn af Nönnu Bryndísi.“
Magnaðasta kona heims? Þessi unga dama frá Banda-
ríkjunum sparar hvergi stóru orðin heldur kallar Nönnu
Bryndísi eina mögnuðustu konu sem er á lífi.
Þokkagyðja Breski tístarinn George Chiverton segir
Nönnu hafa verið „ofurkynþokkafulla“ á Reading-
tónlistarhátíðinni.
Skilgreining fullkomnunar Rayne Mazur, ung stúlka frá
Bandaríkjunum, deilir mynd af Nönnu og segir að Nanna
Bryndís sé skilgreining fullkomnunar.
Heitari en Hekla? Nathan Chapman frá Englandi er
ekki í nokkrum vafa um að Nanna Bryndís sé „það heit-
asta sem komið hefur frá Íslandi“.
„Gifstu mér, Nanna“
Morgunblaðið/Golli
Spekingar og fjárfestar í tæknigeir-anum binda vonir við að með tíð ogtíma aukist áhugi neytenda á aðbera smátölvur utan á sér í stað
þess að geyma þær einungis í vasanum, sbr.
snjallsíma. Slíkir stafrænir fylgihlutir eru
þegar farnir að láta á sér kræla, til dæmis
gleraugu á borð við Google Glass auk svo-
kallaðra snjallúra.
Framlenging snjallsímans
Í grunninn eru snjallúr einfaldlega úr sem
eru fær um fleiri aðgerðir en tímamælingar,
en í nútímasamhengi eru snjallúr arm-
bandstölvur sem oftast virka sem e.k.
framlengingar af snjallsímum. Það er að
segja, úrin geta mörg hver keyrt einföld
smáforrit auk þess sem „bluetooth-
samband“ milli síma og úrs gerir notendum
kleift að lesa t.d. tölvupósta eða SMS-
skilaboð, sem annars væru lesin í snjall-
auk þess sem fleiri fyrirtæki hafa lengi verið
grunuð um slík áform. Ber þar hæst að
nefna Apple en orðrómur hefur verið á
kreiki um svokallað iWatch frá 2009 og ný-
legar skrásetningar á vörumerkinu iWatch
í nokkrum ríkjum hafa ýtt enn frekar undir
orðróminn. Talið er líklegt að varan verði
kynnt til leiks snemma á næsta ári. Erki-
fjendurnir hjá Samsung hafa einnig látið
skrásetja vörumerkið Gear sem þykir lík-
legt til að verða nafn á vörulínu yfir hina
ýmsu stafrænu fylgihluti frá fyrirtækinu
þegar fram í sækir.
Eigi tækni stafrænna fylgihluta á borð við
snjallúrin að ná fótfestu er ljóst að fram-
leiðendur verða að huga jafnvel enn frekar
að útlitsþættinum heldur en þegar kemur
að snjallsímunum, enda ólíklegt að neyt-
endur séu tilbúnir að leggja fallegum skart-
gripum fyrir klunnalegar og ljótar arm-
bandstölvur.
símanum, beint af skjá úrsins. Háþróaðri
snjallúr eru meira að segja fær um taka á
móti áframsendum hringingum úr snjall-
símum, þ.e. hægt er að taka símtöl í gegn-
um hátalara á úrinu.
Snjallúr eru ekki glæný af nálinni, Micro-
soft kynnti t.a.m. eitt slíkt árið 2004, en nú
fyrst þykir tæknin nógu góð til að varan
geti náð fótfestu. Nú þegar er til fjölbreytt
flóra af snjallúrum sem kosta allt frá 150
upp í 4.500 bandaríkjadali. Helstu vörurnar
á markaðnum eru Pebble-úrin, i’m Watch
og Sony Smartwatch.
Apple iWatch á leiðinni?
Baráttan á umræddum markaði er þó ein-
ungis nýhafin enda eru helstu tæknirisar
heims allir að framleiða eigin útgáfur af
snjallúrum – eða svo er í það minnsta talið.
Acer, Foxconn, Sony, Samsung og Toshiba
hafa öll tilkynnt að von sé á úrum frá þeim
TÆKNIRISARNIR FRAMLEIÐA SNJALLÚR
Snjallúratískan handan við hornið?
Sony Smartwatch 2